Maí 2012

maí 2012

(Sleppa dagatali)
Þ M F F L S M Þ M F F L S M Þ M F F L S M Þ M F F L S M Þ M F
1 2 3
fimmtudagur
4 5 6 7 8 9 10 11 12 13 14 15 16 17 18 19 20 21 22 23 24 25
föstudagur
26 27 28 29 30 31

matsuev_listi

Pláneturnar 3.11.2011 19:30 Harpa 4.11.2011 19:30 Harpa

Pláneturnar eftir Gustav Holst eru eitt glæsilegasta hljómsveitarverk 20. aldar. Hér er sjö reikistjörnum lýst í tónum með sérlega áhrifamiklum hætti, allt frá ágengum upphafskaflanum (Stríðsboðinn Mars) til dulúðlegs lokaþáttarins (Hinn dulræni Neptúnus) þar sem kvennakór bætist við í fjarska. Tónlistin hefur hljómað í fjölmörgum kvikmyndum og verið tónskáldum eins og John Williams innblástur í eigin tónsmíðum. Þetta magnaða verk hljómar nú á Íslandi í fyrsta sinn í meira en áratug.

Lesa meira Kaupa miða
  • Stjórnandi
    Rumon Gamba
  • Einleikari
    Denis Matsuev
  • Kór
    Vox feminae
    Margrét Pálmadóttir kórstjóri
  • Efnisskrá
    Sergei Rakhmaninoff: Píanókonsert nr. 2
    Gustav Holst: Pláneturnar
 
Halls-Matthew-listi

Messías – Aðventutónleikar 2.12.2011 19:30 Harpa

Það er varla ofsögum sagt að óratórían Messías sé eitt frægasta klassíska tónverk heims. Hér er sagt frá boðun, fæðingu og krossfestingu Krists á hrífandi og dramatískan hátt. „Besta tónsmíð sem nokkru sinni hefur heyrst“, sagði einn gagnrýnandi eftir frumflutninginn í Dyflinni árið 1742. Í Messíasi er meðal annars Hallelúja-kórinn sem allir þekkja, en einnig dásamlegar aríur á borð við Rejoice greatly og I know that my redeemer liveth. Víða um heim er Messías orðinn ómissandi hluti jólaundirbúningsins og er því vel við hæfi að flytja verkið á fyrstu aðventutónleikum Sinfóníunnar í Hörpu.

Lesa meira Kaupa miða
  • Stjórnandi
    Matthew Halls
  • Einsöngvarar
    Susan Gritton
    Robin Blaze
    James Oxley
    Matthew Brook
  • Kór
    Kór Áskirkju og Hljómeyki
    Magnús Ragnarsson kórstjóri
  • Efnisskrá
    G.F. Händel: Messías
 
diddu_listi

Vínartónleikar 5.1.2012 19:30 Harpa 6.1.2012 19:30 Harpa 7.1.2012 17:00 Harpa

Vinsælustu tónleikar Sinfóníuhljómsveitar Íslands eru hinir árlegu Vínartónleikar, og víst er að margir hlakka til að heyra hljómsveitina í léttu og leikandi formi í Hörpu í fyrsta sinn. Dansandi flöskutappar, freyðandi kampavín, fallegir kjólar, reisn og glæsileiki eru einkenni Vínartónlistarinnar sem mörgum þykir ómissandi í upphafi árs. Á Vínartónleikunum 2012 hljómar sígild Vínartónlist, meðal annars Dónárvalsinn sívinsæli eftir valsakónginn sjálfan, Johann Strauss yngri.

Lesa meira Kaupa miða
  • Stjórnandi
    Willy Büchler
  • Einsöngvari
    Sigrún Hjálmtýsdóttir
  • Efnisskrá
    Lífleg og skemmtileg Vínartónlist úr ýmsum áttum, m.a. aríur úr Leðurblökunni eftir Johann Strauss og Dónárvalsinn sívinsæli.
 
kermes_listi

Eftirlætis barokk 23.2.2012 19:30 Harpa

Þýska sópransöngkonan Simone Kermes er einstök í sinni röð. Vald hennar á röddinni er með eindæmum, jafnt í ljóðrænum söng sem hröðustu tónarunum, og hún syngur með þvílíkri innlifun að leitun er að öðru eins. Hún hefur sungið aríur eftir m.a. Händel og Vivaldi inn á tvo verðlaunadiska hjá Sony Classical sem hafa sópað að sér viðurkenningum, meðal annars Echo-, Midem- og Choc de la Musique-verðlaununum, auk þess sem nýjasti diskur hennar var valinn diskur mánaðarins hjá tímaritinu Gramophone. Kermes hlaut fyrstu verðlaun í Bach-keppninni í Leipzig árið 1996 og hefur síðan sungið í öllum helstu óperu- og tónleikahúsum heims við mikinn fögnuð.

Lesa meira Kaupa miða
  • Stjórnandi
    Isabella Longo
  • Einleikari
    Isabella Longo
  • Stjórnandi á æfingum
    Enrico Casazza
  • Einsöngvari
    Simone Kermes
  • Efnisskrá
    Arcangelo Corelli: Concerto grosso op. 6 nr. 4
    G.F. Händel: Óperuaríur
    Antonio Vivaldi: Óperuaríur
    Antonio Vivaldi: Fiðlukonsertar í D-dúr og e-moll
 
mihaela_ursuleasa_listi

Uppáhalds Mozart 30.3.2012 19:30 Harpa

Rúmenski píanóleikarinn Mihaela Ursuleasa var aðeins sextán ára gömul þegar hún bar sigur úr býtum í Clöru Haskil-keppninni, og síðan hefur vegur hennar vaxið með hverju árinu. Nýlega debúteraði hún m.a. í Carnegie Hall og Concertgebouw, og í fyrra hlaut fyrsti hljómdiskur hennar hin virtu ECHOverðlaun sem einleiksdiskur árins. Leikandi létt spilamennska hennar þykir henta tónlist Mozarts fullkomlega.

Lesa meira Kaupa miða
  • Stjórnandi
    Eivind Aadland
  • Einleikari
    Mihaela Ursuleasa
  • Efnisskrá
    W.A. Mozart: Brúðkaup Fígarós, forleikur
    Píanókonsert nr. 21 í C-dúr, K. 467 og Sinfónía nr. 41 í C-dúr (Júpíter)
 


Bakhjarlar

Borgun VÍS Gamma


Þetta vefsvæði byggir á Eplica