Maí 2012

maí 2012

(Sleppa dagatali)
Þ M F F L S M Þ M F F L S M Þ M F F L S M Þ M F F L S M Þ M F
1 2 3
fimmtudagur
4 5 6 7 8 9 10 11 12 13 14 15 16 17 18 19 20 21 22 23 24 25
föstudagur
26 27 28 29 30 31

tonsproti_kynnir_listi

Hljómsveitin kynnir sig 26.11.2011 14:00 Harpa

Í sinfóníuhljómsveit úir og grúir af ólíkum hljóðfærum: strengjahljóðfæri, blásturshljóðfæri úr tré og málmum, trommur og pákur eru meðal þess sem ber fyrir augu og eyru.

 

Útkoman er óneitanlega stórfengleg þegar öll þessi hljóðfæri renna saman í eitt, en þó getur einnig verið gaman að kynnast hljóðfærunum betur, hverju fyrir sig.

Lesa meira Kaupa miða
  • Stjórnandi
    Bernharður Wilkinson
  • Einleikarar
    Katie Buckley
    Hallfríður Ólafsdóttir
    Sigrún Eðvaldsdóttir
    Hávarður Tryggvason
  • Sögumaður
    Trúðurinn Barbara
  • Efnisskrá
    John Adams
    Henry Purcell
    John Williams
    Lars-Erik Larsson
    Paul Dukas
    Johann Sebastian Bach
    Claude Debussy
    Benjamin Britten
 
tonsproti_jol_listi

Jólatónleikar 16.12.2011 17:00 Harpa 17.12.2011 14:00 Harpa 17.12.2011 17:00 Harpa

Það er einatt bros á hverju andliti á jólatónleikum Sinfóníunnar. Það er orðin árviss hefð að ungur og efnilegur einleikari stigi á stokk með hljómsveitinni, og er haldin um það sérstök keppni vor hvert. Í þetta sinn urðu raunar tveir ungir tónlistarnemar fyrir valinu, fiðluleikari og saxófónleikari.

 

Segja má að suðræn sveifla verði áberandi á tónleikunum, því að Sölvi Kolbeinsson leikur brasilíska sömbu á saxófóninn sinn og Sólveig Steinþórsdóttir flytur seiðandi fiðlutóna frá Havana. Þá koma framhaldsnemendur úr Listdansskóla Íslands öllum í hátíðarskap með eftirlætis dönsunum sínum úr Hnotubrjótnum.

 

Ekki má heldur gleyma Jólaforleiknum sívinsæla þar sem mörg eftirlætis jólalög hljóma hvert á fætur öðru. Kristjana Stefánsdóttir syngur einsöng, og trúðurinn Barbara heldur utan um allt saman og sér til þess að bæði börn og foreldrar skemmti sér konunglega.

 

Lesa meira Kaupa miða
  • Stjórnandi
    Bernharður Wilkinson
  • Einleikarar
    Sólveig Steinþórsdóttir
    Sölvi Kolbeinsson
  • Einsöngvari
    Kristjana Stefánsdóttir
  • Sögumaður
    Trúðurinn Barbara
  • Kór
    Skólakór Kársness
    Nemendur úr Listdansskóla Íslands
  • Efnisskrá
    Anderson: Jólaforleikur
    Tsjajkovskíj: kaflar úr Hnotubrjótnum
    Milhaud: Brazileira, úr Scaramouche
    Saint-Saëns: Introduction og Rondo Capriccioso
    Vinsæl jólalög
 
tonsproti_sveit_listi

Úti í náttúrunni 28.4.2012 14:00 Harpa

Hvað er yndislegra en að njóta þess að eiga góðan dag í fallegri náttúru? Jú, kannski að heyra dásamlega tónlist sem er innblásin af náttúrunni. Tónskáld á öllum tímum sögunnar hafa leitað í náttúruna þegar kom að því að semja tónlist, og á þessum tónleikum hljóma nokkur slík verk. Í Árstíðum Vivaldis heyrum við fuglasöng að vori og dramatíska sumarstorma, í Sveitasinfóníu Beethovens hljómar heilmikið þrumuveður og sama er uppi á teningnum í annars fjörugum polka Johanns Strauss.

Lesa meira Kaupa miða
  • Stjórnandi
    Bernharður Wilkinson
  • Einleikari
    Sif Margrét Tulinius
  • Sögumaður
    Halldóra Geirharðsdóttir
  • Efnisskrá
    Grainger Sveitagarðar
    Vivaldi úr Árstíðunum
    Rimsky-Korsakov Býflugan
    Beethoven Stormurinn úr Sveitasinfóníunni
    Strauss Þrumur og eldingar
    Smetana Moldá
    Kakkalakkinn
 
tonsproti_maxi_ballet_listi

Maxímús bjargar ballettinum 19.5.2012 14:00 Harpa 19.5.2012 17:00 Harpa

Í nýja ævintýrinu um Maxa kynnist Maxímús Músíkús börnum sem hafa yndi af því að dansa við tónlist. Hann verður himinlifandi þegar tónlistarhúsið fyllist af ungum dönsurum því að honum finnst líka svo gaman að dilla sér í takt við tónlistina. Maxímús Músíkús dáist að færni ungu dansaranna og ákveður að kanna málið. Hann gerist laumufarþegi með einu barnanna og fylgist heillaður með dansæfingum nemendanna í listdansskólanum og því hvernig tónlistin er túlkuð í hreyfingum.

Lesa meira Kaupa miða
  • Stjórnandi
    Bernharður Wilkinson
  • Einleikarar
    Nemendur úr Listdansskóla Íslands
  • Sögumaður
    Valur Freyr Einarsson
  • Efnisskrá
    Alexander Glazunov: Veturinn
    Pjotr Tsjajkovskíj: úr Þyrnirós
    Maurice Ravel: Gæsamömmusvíta
    Jórunn Viðar: Eldur
 


Bakhjarlar

Borgun VÍS Gamma


Þetta vefsvæði byggir á Eplica