Rússneska goðsögnin Gennadíj Rosdestvenskíj hefur unnið hug og hjörtu íslenskra tónleikagesta. Færri komust að en vildu á tvennum tónleikum í mars síðastliðnum, og því vissara að tryggja sér miða sem fyrst. Ekki spillir fyrir að hann hefur tekið ástfóstri við Sinfóníuhljómsveit Íslands og fullyrðir að hún sé með allra bestu hljómsveitum heims. Efnisskrá kvöldsins er helguð rússneskum meisturum. Eitt af glansnúmerum Viktoriu Postnikovu um árabil hefur verið Píanókonsert Tsjajkovskíjs nr. 2 sem hljómar nú í sinni upprunalegu mynd og Sinfónískir dansar Sergei Rakhmaninoff þykja öðrum verkum betur sýna snilli hans í meðferð hljómsveitarinnar og allra þeirra glæsilegu litbrigða sem hún býr yfir.
Lesa meira Kaupa miða
Melkorka Ólafsdóttir starfar sem flautuleikari í Japan og því verður athyglisvert að heyra hana túlka seiðandi línur Takemitsus sem var meistari hinna fíngerðu stemninga. Nú er öld frá því að Gustav Mahler andaðist í Vínarborg. Hin stórfenglega sjöunda sinfónía hans er hrífandi og dulúðleg tónsmíð, með tveimur milliköflum sem bera yfirskriftina Nætursöngvar. Með þessum tónleikum tekur Ilan Volkov formlega við stöðu aðalstjórnanda Sinfóníuhljómsveitar Íslands. Það er mikið gleðiefni að þessi hæfileikaríki stjórnandi skuli ganga til liðs við hljómsveitina á þessum tímamótum í sögu hennar. Volkov hefur getið sér gott orð fyrir hljóðritanir sínar og sem aðalstjórnandi BBC hljómsveitarinnar í Skotlandi.
Lesa meira Kaupa miða
Sæunn Þorsteinsdóttir hefur vakið verðskuldaða athygli fyrir innblásinn og ástríðuþrunginn leik sinn. Heimsfrægir tónlistarmenn á borð við Itzhak Perlman og Mitsuko Uchida hafa valið hana til að leika með sér. Fyrir skömmu hlaut hún lof gagnrýnanda New York Times fyrir hrífandi spilamennsku. Nú leikur Sæunn einn af eftirlætis konsertum sínum, eftir franska meistarann Henri Dutilleux, sem kominn er hátt á tíræðisaldur. Anna Þorvaldsdóttir er í þann veginn að ljúka doktorsgráðu í tónsmíðum frá Kaliforníuháskóla. Nú frumflytur Sinfónían glænýtt verk eftir þessa snjöllu tónlistarkonu. Fjórða sinfónía Brahms var sú síðasta sem hann samdi. Hér mætast fortíð og nútíð á áhrifamikinn hátt.
Lesa meira Kaupa miða
Þegar Beethoven hóf tónsmíðaferil sinn var sinfóníska formið fyrst og fremst saklaus skemmtimúsík. Er hann lést var sinfónían form hinna risavöxnu átaka; í tónlist sinni speglaði hann bæði eigið sálarástand og heiminn allan í mikilfengleika sínum, fegurð og illsku, gleði og ljótleika. Fyrstu tvær sinfóníur Beethovens bera helst keim af verkum Mozarts og Haydns. Þó heyrist að hér var kominn ungur maður með nýja rödd. Með þriðju sinfóníu sinni hélt Beethoven inn á nýja braut. Hetjuhljómkviðan er almennt talin eitt af byltingarkenndustu verkum tónlistarinnar; verk sem breytti öllum viðmiðum og skilgreindi bæði form og innihald sinfóníunnar upp á nýtt.
Lesa meira Kaupa miða
Hin magnþrungna sinfónía nr. 11 eftir Sjostakovitsj hefur verið kölluð „kvikmyndatónlist án kvikmyndarinnar.“ Hún lýsir því þegar Rússakeisari sigaði hermönnum sínum á mótmælendur í Pétursborg árið 1905. Bandaríska fiðlustjarnan, Hilary Hahn sló í gegn með Sinfóníuhljómsveitinni í fyrra og lét strax í ljós ósk sína að leika í Hörpu. Hún hefur leikið hinn sólríka fiðlukonsert Mozarts víða um heim. Claude Vivier þótti eitt efnilegasta tónskáld sinnar kynslóðar þegar hann var myrtur á hrottafenginn hátt 1983. Stjórnandinn Peter Oundjian lærði á fiðlu hjá Itzhak Perlman og var fyrsti fiðluleikari Tókýó-strengjakvartettsins um fjórtán ára skeið. Hann er nú aðalstjórnandi Skosku þjóðarhljómsveitarinnar.
Lesa meira Kaupa miða
Paul McCreesh er í fremstu röð þeirra sem sérhæfa sig í tónlist barokks og klassíkur. Hann vakti mikla hrifningu er hann stjórnaði Sköpuninni eftir Haydn á tónleikum Sinfóníunnar 2009. McCreesh snýr aftur með Mozart-veislu í farteskinu. Messan í c-moll var stærsta tónsmíð Mozarts fyrir kór og hljómsveit, að undanskilinni sálumessunni sem hann náði ekki að ljúka. Annað eins einvalalið einsöngvara og einleikara hefur sjaldan sést á tónleikum hérlendis. Sænska sópransöngkonan Miah Persson, skoska sópransöngkonan Lisa Milne, Andrew Staples og Ágúst Ólafsson syngja. Elfa Rún Kristinsdóttir og Lise Berthaud leika einleik í Sinfonia Concertante fyrir fiðlu, viólu og hljómsveit.
Lesa meira Kaupa miða
Sinfóníuhljómsveitin lokar Beethovenhringnum. Tvær síðustu sinfóníum meistarans eru báðar meistaraverk hvor á sinn hátt. Sú níunda er eitt frægasta og áhrifamesta verk sígildrar tónlistar. Páll Ísólfsson komst þannig að orði í grein sinni um Beethoven frá árinu 1938: „Gleði og bræðralagi hefur aldrei verið sungið eins fagurlega lof og í 9. hljómkviðunni. Þess vegna er hún svo oft leikin við ýmis tímamót víðsvegar um heim. Því hvort heldur hún er leikin í Þýskalandi, Frakklandi, Englandi, Rússlandi: alls staðar snerta þessir tónar mannleg hjörtu, og fylla þau fögnuði vonarinnar um bætt kjör og betri örlög mannanna.“
Lesa meira Kaupa miða