Maí 2012

maí 2012

(Sleppa dagatali)
Þ M F F L S M Þ M F F L S M Þ M F F L S M Þ M F F L S M Þ M F
1 2 3
fimmtudagur
4 5 6 7 8 9 10 11 12 13 14 15 16 17 18 19 20 21 22 23 24 25
föstudagur
26 27 28 29 30 31

maxi_listi

Maxímús heimsækir hljómsveitina 20.8.2011 14:00 Harpa

Ævintýrið um Maxímús Músíkús, sem villist óvart á æfingu hjá sinfóníuhljómsveit í glænýju tónlistarhúsi, hefur farið sigurför um heiminn á síðustu árum. Bókin með ævintýrinu hefur m.a. verið gefin út á ensku, þýsku og kóresku, og iPhone-leikur með músinni hlaut nýverið norræn verðlaun. Á tónleikunum hljómar tónlist úr ýmsum áttum, m.a. Hátíðargjall eftir Aaron Copland, Bolero eftir Maurice Ravel og Á Sprengisandi eftir Sigvalda Kaldalóns.

Lesa meira
  • Stjórnandi
    Bernharður Wilkinsson
  • Sögumaður
    Valur Freyr Einarsson
 
Stefan_Ragnar_litli

Klassík fyrir alla 20.8.2011 17:00 Harpa

Stefán Ragnar Höskuldsson flautuleikari er einn þeirra íslensku tónlistarmanna sem hvað lengst hafa náð í hinum alþjóðlega tónlistarheimi. Hann hefur verið flautuleikari við hina víðfrægu hljómsveit Metropolitan-óperunnar í New York frá árinu 2004 og hefur gegnt stöðu leiðandi flautuleikara við hljómsveitina í þrjú ár. Stefán Ragnar nam undir leiðsögn Bernharðar Wilkinsonar við Tónlistarskólann í Reykjavík og því er sérstakt ánægjuefni að hann skuli nú leika hinn ástsæla konsert Mozarts með Sinfóníunni undir stjórn síns gamla læriföður.

Lesa meira
  • Stjórnandi
    Bernharður Wilkinsson
  • Einleikari
    Stefán Ragnar Höskuldsson
  • Efnisskrá
    Mikhaíl Glinka: Rúslan og Lúdmíla, forleikur
    W.A. Mozart: Flautukonsert í D-dúr
    Sergei Prokofíev: Montag og Kapúlett, úr Rómeó og Júlíu
    Pjotr Tsjajkovskíj: Vals úr Þyrnirós
 
Ashkenazy_listi

Upphafstónleikar 7.9.2011 19:30 Harpa 8.9.2011 19:30 Harpa

Vladimir Ashkenazy er á heimavelli á upphafstónleikum Sinfóníunnar starfsárið 2011–12. Hann hljóðritaði píanókonserta Rakhmaninoffs í tvígang sem einleikari og útgáfurnar þykja enn meðal þeirra bestu. Ekki er síður tilhlökkunarefni að Víkingur Heiðar og Ashkenazy leiði nú saman hesta sína í annað sinn í hinum glæsilega þriðja píanókonserti Rakhmaninoffs. Heildarflutningur Ashkenazys á sinfóníum Sjostakovitsj var nýverið endurútgefinn hjá Decca í tilefni sjötugsafmælis hans. Fimmta sinfónía Sjostakovitsj var frumflutt í Leníngrad 1937, ári eftir að yfirvöld fordæmdu óperuna Lafði Makbeð úr Mstenskhéraði. Sinfónían er hádramatísk og af mörgum talin sú magnaðasta sem samin var á 20. öldinni.

Lesa meira Kaupa miða
  • Stjórnandi
    Vladimir Ashkenazy
  • Einleikari
    Víkingur Heiðar Ólafsson
  • Efnisskrá
    Sergei Rakhmaninoff: Píanókonsert nr. 3
    Dmítríj Sjostakovitsj: Sinfónía nr. 5
 
Ilan_listi

Námskeið fyrir hljómsveitarstjóra 30.9.2011 18:30 Harpa

Margir ganga með þann draum í maganum að standa á stjórnandapalli og stýra heilli sinfóníuhljómsveit, en hinir eru færri sem láta drauminn rætast. Samkeppnin meðal ungra hljómsveitarstjóra er feykihörð og tækifærin á stjórnandapallinum eru sárafá. Því efnir Sinfóníuhljómsveit Íslands til meistaranámskeiðs með Ilan Volkov, þar sem þrír ungir hljómsveitarstjórar láta ljós sitt skína og fá leiðsögn frá hinum nýja aðalstjórnanda Sinfóníunnar.

Helstu tónlistarskólum Evrópu var boðið að tilnefna þátttakendur í námskeiðið og var tilkynnt í júní síðastliðinn hverjir urðu fyrir valinu. Þeir eru: Kalle Kuusava (Finnlandi), Sergei Simakov (Rússlandi), Stephan Zilias (Þýskalandi) og Márcio da Silva (Brasilíu). Aðgangur er ókeypis og öllum opinn.

Lesa meira
  • Stjórnandi
    Fjórir efnilegir hljómsveitarstjórar, tilnefndir af leiðandi tónlistarháskólum í Evrópu, stjórna Sinfóníuhljómsveitinni undir leiðsögn Ilans Volkov.
  • Efnisskrá
    Johannes Brahms: þættir úr sinfóníu nr. 1
    Ígor Stravinskíj: Petrúska, fyrri hluti
 
janne_listi

Norrænir Músíkdagar 6.10.2011 19:30 Harpa

Norrænir músíkdagar eru haldnir í höfuðborgum Norðurlandanna annað hvert ár og nú er röðin komin að Íslandi. Ung norræn tónskáld eru áberandi á efnisskrá Sinfóníunnar í þetta sinn, m.a. þeir Perttu Haapanen, Uljas Pulkkis og Einar Torfi Einarsson. Í tilefni Norrænna músíkdaga var pantað nýtt verk hjá Einari Torfa og verður það í fyrsta sinn sem Sinfóníuhljómsveitin leikur verk þessa unga tónskálds. Martyn Brabbins, aðalgestastjórnandi Flæmsku fílharmóníuhljómsveitarinnar í Antwerpen, þykir einn fremsti hljómsveitarstjóri Evrópu þegar kemur að því að flytja nýja tónlist, enda hefur hann stjórnað helstu hljómsveitum á Bretlandi og Norðurlöndum auk þess að hljóðrita yfir 30 hljómdiska.

Lesa meira Kaupa miða
  • Stjórnandi
    Martyn Brabbins
  • Einleikarar
    Janne Rättyä
    Minna Pensola
  • Efnisskrá
    Uljas Pulkkis: Crystallizations
    Perttu Haapanen: Obsession Park
    Hendrik Strindberg: Neptuni åkrar
    Einar Torfi Einarsson: Repetition of Repetition
 
daniel_listi

Sinfónían á Airwaves 13.10.2011 20:00 Harpa

Sinfóníuhljómsveitin tekur í fyrsta sinn þátt í Iceland Airwaves. Á þrennum tónleikum hljóma verk eftir ung íslensk tónskáld, auk þess sem einn fremsti nútímatónlistarhópur Bandaríkjanna flytur Different Trains, eitt af meistaraverkum Steve Reich. Verkið er heillandi og áhrifarík hugleiðing um lestarferðir tónskáldsins í æsku þvert yfir Bandaríkin, og lestarferðir sem jafnaldrar hans fóru á meginlandinu, í útrýmingarbúðir nasista. Valgeir Sigurðsson hefur komið víða við á tónlistarferli sínum, er bæði tónskáld og upptökustjóri og Daníel Bjarnason hefur vakið mikla athygli fyrir tónlist sína að undanförnu. Þegar Víkingur Heiðar frumflutti píanókonsertinn Processions á Myrkum músíkdögum 2009 ætlaði þakið að rifna af Háskólabíói.

Lesa meira Kaupa miða
  • Stjórnandi
    Daníel Bjarnason
  • Einleikari
    Víkingur Heiðar Ólafsson
  • Einleikarar
    ICE (International Contemporary Ensemble)
  • Efnisskrá
    Valgeir Sigurðsson: Draumalandið
    Daníel Bjarnason: Processions, píanókonsert
    Birting
    Steve Reich: Different Trains
 
hof_listi

Sinfónían í Hofi 27.10.2011 19:30 Hof Akureyri

Nú eru þrjú ár síðan Sinfóníuhljómsveitin lék síðast á Akureyri. Þar er risið nýtt og glæsilegt tónlistarhús og því ekki seinna vænna að halda norður á ný. Á efnisskránni eru tvö meistaraverk: glæsilegur klarínettukonsert Webers og kraftmikil sinfónía Beethovens. Einar Jóhannesson hefur um árabil verið meðal fremstu tónlistarmanna landsins. Hann gegnir stöðu sólóklarínettuleikara við Sinfóníuhljómsveit Íslands, er stofnfélagi Blásarakvintetts Reykjavíkur og leikur með Kammersveit Reykjavíkur. Daníel Bjarnason starfar jöfnum höndum sem hljómsveitarstjóri, tónskáld og útsetjari. Meðal hljómsveita sem hann hefur stjórnað eru London Sinfonietta, Sinfóníuhljómsveit Íslands og hljómsveit Íslensku óperunnar. Auk þess er hann hljómsveitarstjóri og listrænn stjórnandi kammersveitarinnar Ísafoldar.

Lesa meira Kaupa miða
  • Stjórnandi
    Daníel Bjarnason
  • Einleikari
    Einar Jóhannesson
  • Efnisskrá
    Carl Maria von Weber:Klarínettukonsert nr. 2 í Es-dúr
    Ludwig van Beethoven: Sinfónía nr. 3, Eroica
 
ungsveit_listi

Ungsveit SÍ 6.11.2011 14:00 Harpa

Ungsveit Sinfóníuhljómsveitar Íslands er framtak sem vakið hefur verðskuldaða athygli. Markmið Sinfóníuhljómsveitarinnar með námskeiðum Ungsveitarinnar er að þjálfa unga nemendur í hljómsveitarleik á atvinnustigi. Á þessum fyrstu tónleikum Ungsveitarinnar í Hörpu er ekki ráðist á garðinn þar sem hann er lægstur. Fimmta sinfónía Mahlers er eitt glæsilegasta hljómsveitarverk sögunnar. Tónlistin spannar allt litróf mannlegra tilfinninga og víst að meðlimir Ungsveitarinnar munu vaxa mjög af samvistunum við stórbrotna tónlist Mahlers. Baldur Brönniman hefur áralanga reynslu af því að starfa með ungu fólki. Hann er aðalstjórnandi Þjóðarsinfóníuhljómsveitar Kólumbíu og BIT20-kammersveitarinnar í Noregi, en stofnaði auk þess Æskulýðshljómsveit Kólumbíu.

Lesa meira Kaupa miða
  • Stjórnandi
    Baldur Brönniman
  • Hljómsveit
    Um 100 íslenskir tónlistarnemar á aldrinum 12-25 ára flytja hina stórbrotnu fimmtu sinfóníu Gustavs Mahler.
  • Efnisskrá
    Gustav Mahler: Sinfónía nr. 5
 
ungir_oll_listi

Ungir einleikarar 12.1.2012 19:30 Harpa

Það er mikið gleðiefni hversu margir efnilegir tónlistarmenn leynast í skólum landsins og ávallt stór stund þegar nokkrir þeirra fá að stíga á stokk með hljómsveitinni.  Á þessum tónleikum ríkir ávallt sérstök spenna, eftirvænting og gleði yfir þeim mannauði sem íslensk þjóð býr yfir.

Á hverju ári fer fram keppni ungra einleikara sem Sinfóníuhljómsveitin stendur að í samvinnu við Listaháskóla Íslands. Keppnin er opin nemendum á háskólastigi, óháð því hvaða skóla þeir sækja. Hver nemandi flytur hálftíma dagskrá með verkum af ólíkum toga, og dómnefndin er skipuð listafólki úr fremstu röð. Það er mikið gleðiefni hversu margir efnilegir tónlistarmenn leynast í skólum landsins og á þessum tónleikum ríkir ávallt sérstök spenna, eftirvænting og gleði yfir þeim mannauði sem íslensk þjóð býr yfir.

Lesa meira Kaupa miða
  • Stjórnandi
    Bernharður Wilkinson
  • Einleikarar
    Elín Arnardóttir,píanó
    Ísak Ríkharðsson, fiðla
    Chrissie Thelma Guðmundsdóttir,fiðla
    Hrafnhildur Árnadóttir, söngur
  • Efnisskrá
    Saint-Saëns: Píanókonsert nr. 2
    Prokofiev: Fiðlukonsert nr.2, op.63
    W.A.Mozart: Fiðlukonsert í A-dúr K.219
    W.A.Mozart: Exultate Jubilate K.165
 
bond_listi

James Bond-veisla 19.1.2012 20:00 Harpa 20.1.2012 20:00 Harpa 21.1.2012 22:00 Harpa

Sinfóníuhljómsveitin býður nú til Bond-veislu þar sem fluttir verða allir helstu smellirnir úr myndunum, meðal annars You Only Live Twice, Nobody Does It Better og A View To a Kill. Breski stjórnandinn og tónskáldið Carl Davis hefur stýrt Bond-tónleikum víða um heim við góðan orðstír. Íslenskir söngvarar í fremstu röð taka þátt í tónleikunum. Árið 2012 eru 50 ár liðin frá því að James Bond birtist í fyrsta sinn á hvíta tjaldinu, í myndinni Dr. No með Sean Connery í aðalhlutverki. Eitt af því sem einkennir Bond-myndirnar er frábær tónlist. Titilstefið þekkja flestir enda hefur það fylgt myndunum frá upphafi.

Lesa meira Kaupa miða
  • Stjórnandi
    Carl Davis
  • Kynnir
    Jóhanna Vigdís Arnardóttir
  • Einsöngvarar
    Valgerður Guðnadóttir
    Sigríður Thorlacius
    Eyþór Ingi Gunnlaugsson
    Sigríður Beinteinsdóttir
    Inga Stefánsdóttir
    Páll Óskar Hjálmtýsson
    Jóhanna Vigdís Arnardóttir
  • Efnisskrá
    Leyndarmál Hennar Hátignar fram að tónleikum
 
Ilan_listi

Myrkir músíkdagar 26.1.2012 19:30 Harpa

Á Myrkum músíkdögum leikur Sinfóníuhljómsveitin íslensk verk í bland við erlenda samtímatónlist eftir nokkur af athyglisverðustu tónskáldum samtímans. Metastatis eftir Iannis Xenakis samanstendur af 61 hljóðfæri sem hvert leikur sína sjálfstæðu rödd, svo rennur allt saman í mikilfenglegan hljóðmassa. Hymnos ítalska meistarans Giacinto Scelsi skiptir hljómsveitinni í tvo hópa sem leika hvor á móti öðrum. Hans Abrahamsen er sérstakur gestur á þessum tónleikum og nýtt verk hans, 10 sinfóníur, er samið að hluta fyrir Sinfóníuhljómsveit Íslands. Meðal fyrrum nemenda Abrahamsen er Hugi Guðmundsson sem hlaut Íslensku tónlistarverðlaunin 2008 fyrir verk sitt Apocrypha.

Lesa meira Kaupa miða
  • Stjórnandi
    Ilan Volkov
  • Efnisskrá
    Giacinto Scelsi: Hymnos
    Hugi Guðmundsson: Orkestur
    Atli Ingólfsson: Mani
    Iannis Xenakis: Metastasis
    Hans Abrahamsen: 10 sinfóníur
 
Hans_Abrahamsen_listi

Tónskáldastofa 27.1.2012 9:30 Harpa

Sinfóníuhljómsveit Íslands vill stuðla að því að íslensk tónskáld fái þá þjálfun og leiðsögn sem nauðsynleg er til að semja fyrir hljómsveit. Í janúar 2012 efnir SÍ í annað sinn til svokallaðrar Tónskáldastofu, þar sem valin verða til þátttöku þrjú hljómsveitarverk eftir tónskáld undir 35 ára aldri. Hljómsveitin mun leika verkin undir stjórn Ilans Volkov, og í kjölfarið fá tónskáldin athugasemdir og leiðbeiningar frá hljómsveitarmeðlimum, stjórnanda, og tónskáldinu Hans Abrahamsen sem einnig verður viðstaddur. Skilafrestur tónverka í Tónskáldastofuna er föstudaginn 23. september 2011, klukkan 12 á hádegi.

Lesa meira
  • Stjórnandi
    Ilan Volkov
  • Efnisskrá
    Efnisskrá tilkynnt síðar
    Hans Abrahamsen leiðbeinandi
 
lotr_listi

Hringadróttinssinfónían 16.2.2012 20:00 Harpa 17.2.2012 20:00 Harpa

Sinfóníhljómsveit Íslands leikur tónlistina úr kvikmyndum Peters Jackson um Hringadróttinssögu Tolkien. Tónskáldið Howard Shore tónsetti myndirnar og vann m.a. til Óskarsverðlauna 2002 og 2004 fyrir framlag sitt. Undanfarin ár hefur tónleikaútgáfa verksins farið sigurför um heiminn og slegið aðsóknarmet hjá ýmsum hljómsveitum. Þetta verða stórglæsilegir tónleikar þar sem fram koma einsöngvarar, fjórir kórar og fjöldi óvenjulegra hljóðfæra, auk þess sem myndefni sem tengist kvikmyndunum og sögu Tolkiens verður varpað á tjald í Eldborg. Svissneska tónskáldið Ludwig Wicki hefur stýrt þessu stórvirki í London, New York og víðar.

Lesa meira Kaupa miða
  • Stjórnandi
    Erik Ochsner
  • Einsöngvari
    Nancy Allen Lundy
  • Kór
    Hljómeyki, Kór Áskirkju, Söngsveitin Filharmónía, Stúlknakór Reykjavíkur
    Magnús Ragnarsson, Margrét Pálmadóttir kórstjórar
  • Efnisskrá
    Howard Shore: Lord of the Rings Symphony
 
volkov_listi

Tectonics tónlistarhátíð 1. til 3. mars. 1.3.2012 Harpa 2.3.2012 Harpa 3.3.2012 Harpa

Nýr aðalstjórnandi Sinfóníunnar, Ilan Volkov, er mikill áhugamaður um nýja tónlist og hefur hlotið mikið lof fyrir störf sín á þeim vettvangi. Hann mun stýra árlegri tónlistarhátíð í Reykjavík sem verður helguð nýrri tónlist, bæði innlendri og erlendri, í samstarfi við tónlistarmenn úr ýmsum áttum. Þessi hátíð er spennandi viðbót við fjölbreytta tónleikaflóru landsins og hafa áform Volkovs þegar vakið athygli utan landsteinanna. John Tilbury og Oren Ambarchi koma fram með hljómsveitinni er hún leikur verk eftir John Cage, Magnús Blöndal o.fl.

 

Kaupa hátíðarpassa     Kaupa dagpassa

 

Lesa meira
 
Siggi_og_Sigga_listi

Ég veit þú kemur! 3.5.2012 20:00 Harpa

Tveir af flottustu dægurlagasöngvurum þjóðarinnar, Sigríður Thorlacius og Sigurður Guðmundsson, taka höndum saman með Sinfóníuhljómsveitinni og flytja vinsælar söngperlur frá 6. og 7. áratugnum í útsetningum Hrafnkels Orra Egilssonar.

Tónleikarnir eru nú endurteknir vegna fjölda áskorana, en þeir voru áður á dagskrá Sinfóníunnar í Hörpu í júní 2011. Uppselt var á tvenna tónleika sem frábæra dóma í fjölmiðlum. Upptaka frá tónleikunum var gefin út á geisladiski fyrir síðustu jól og var ein mest selda hljómplata ársins.
Lesa meira Kaupa miða
 
gudrun_listi

Rómeó og Júlía 25.5.2012 19:30 Harpa

Sinfóníuhljómsveitin flytur nú Rómeó og Júlíu eftir franska meistarann Hector Berlioz. Þetta einstaklega frumlega og forvitnilega verk er nú flutt í fyrsta sinn á Íslandi. Hér er sinfóníuformið teygt í ýmsar áttir svo úr verður eins konar bræðingur hljómsveitarverks og óperu. Sveinn Dúa Hjörleifsson hefur vakið hrifningu fyrir silkimjúka tenórrödd sína og Guðrún Jóhanna Ólafsdóttir hefur unnið til fjölda verðlauna fyrir söng sinn. Franski bassasöngvarinn Nicolas Cavallier fer með hlutverk Bróður Lárens í þessari uppfærslu og kemur beint til Íslands eftir að hafa sungið í Rómeó og Júlíu við Bastilluóperuna í París.

Lesa meira Kaupa miða
  • Stjórnandi
    Ilan Volkov
  • Einsöngvarar
    Guðrún Jóhanna Ólafsdóttir
    Sveinn Dúa Hjörleifsson
    Nicolas Cavallier
  • Kór
    Hljómeyki, Kór Áskirkju, Söngsveitin Fílharmónía
    Magnús Ragnarsson kórstjóri
  • Efnisskrá
    Hector Berlioz: Rómeó og Júlía
 


Bakhjarlar

Borgun VÍS Gamma


Þetta vefsvæði byggir á Eplica