Fröst er án efa einn fremsti klarinettleikari heims í dag. Hann hefur einstakan persónulegan stíl og býr yfir undraverðri tækni. Í klarinettukonsertinum Peacock Tales eftir sænska tónskáldið Anders Hillborg mynda tónlist, dans og tjáning órofa heild í einu eftirtektarverðasta tónverki síðari ára. Martin Fröst er tónleikagestum á Íslandi að góðu kunnur og hefur notið mikilla vinsælda fyrir túlkun og líflegan flutningsmáta.
Lesa meira Kaupa miða
Keisarakonsertinn er síðasti píanókonsertinn sem Beethoven samdi og sá tignarlegasti. Konsertinn gerir miklar kröfur til einleikarans, horfir fram á veginn hvað hljómaval og styrkleikabreytingar varðar. Keisarakonsertinn var saminn 1809 og frumfluttur í Leipzig 1811 af Friedrich Schneider og Gewandhaus hljómsveitinni.
Óratórían Kristur á Olíufjallinu (Christus am Ölberge) er nú flutt í fyrsta sinn á Íslandi. Óratórían, sú eina sem Beethoven samdi, er fyrir einsöngvara, kór og hljómsveit. Einsöngvararnir þrír, sópran, tenór og bassi, eru í hlut verkum engilsins, Jesú og Péturs postula. Textinn lýsir angist Jesú í Getsemanegarðinum til þeirrar stundar þegar hann er tekinn höndum.
Tónverk Beethovens skipa veigamikinn sess í verkefnaskrá Víkings Heiðars Ólafssonar. Víking þarf vart að kynna fyrir tónleikagestum, hann hefur leikið á mörgum ógleymanlegum tónleikum Sinfóníuhljómsveitarinnar undanfarin ár, meðal annars á opnunartónleikum Hörpu 2011, undir stjórn Ashkenazys.
Á Vínartónleikunum 2013 hljómar sígild Vínartónlist undir stjórn Peters Guth sem er Íslendingum að góðu kunnur en hann hefur margsinnis stjórnað og leikið á fjörugum Vínartónleikum Sinfóníuhljómsveitarinnar. Guth hefur átt mikilli velgengni að fagna, bæði sem fiðluleikari og hljómsveitarstjóri. Hann hefur skapað sér nafn sem einn fremsti flytjandi heims á tónlist Strauss feðga og annarri Vínartónlist. Guth er eftirsóttur gestastjórnandi víða um heim og hvarvetna hlotið lof og framúrskarandi undirtektir við líflegri framkomu sinni og túlkun.
Lesa meira Kaupa miða
Árið 2002 hlaut Jennifer Pike fiðluleikari hin virtu verðlaun frá BBC, Young Musician of the Year, aðeins 12 ára gömul, yngst allra vinningshafa. Í desember 2011 frumflutti Pike Fiðlukonsert Hafliða Hallgrímssonar með Skosku kammerhljómsveitinni undir stjórn Enrique Mazzola. Fiðlukonsertinn var saminn að beiðni Sinfóníuhljómsveitar Íslands og skrifaður fyrir Jennifer Pike. Fiðlukonsertinn hefur hlotið feykigóðar viðtökur og lofsamlega dóma.
Lesa meira Kaupa miða