Júní 2013

júní 2013

(Sleppa dagatali)
L S M Þ M F F L S M Þ M F F L S M Þ M F F L S M Þ M F F L S
1 2 3 4 5 6
fimmtudagur
7 8 9 10 11 12 13 14 15 16 17 18 19 20 21 22 23 24 25 26 27 28 29 30

petur_listi

PÉTUR OG ÚLFURINN 8.9.2012 14:00 Harpa

Flestir eiga sér uppáhaldsleikfang. Nú er tækifærið að taka gullin sín með á tónleika og upplifa Leikfangasinfóníuna með góðvinum. Fyrsti þáttur sinfóníunnar verður fluttur með aðstoð leikfangasextetts þar sem Maxímús Músíkús leikur á alls oddi. Leikfangasinfónían hefur notið mikilla vinsælda og er oft og tíðum leikin þegar mikið liggur við eins og á opnunartónleikum Litla tónsprotans. Ekki er með öllu ljóst hver samdi Leikfangasinfóníuna en hún hefur verið eignuð þremur tónskáldum: Leopold Mozart, Joseph Haydn og Edmund Angerer. Í sinfóníunni koma fyrir margvíslegar fuglaflautur, hrossabrestur, dótatrompet og fleiri áhugaverð hljóðfæri.

Lesa meira Kaupa miða
  • Stjórnandi
    Guðmundur Óli Gunnarsson
  • Einleikarar
    Leikfangasextett skipaður börnum og Maxa
  • Sögumaður
    Halldóra Geirharðsdóttir
    Bernd Ogrodnik brúðugerðarmeistari
  • Efnisskrá
    Leopold Mozart
    Úr leikfangasinfóníunni
    Sergei Prokofíev
    Pétur og úlfurinn
 
tonsproti_jol_listi

JÓLATÓNLEIKAR SINFÓNÍUNNAR 15.12.2012 14:00 Harpa

Jólatónleikar Sinfóníunnar eru fastur liður í jólahaldi margra fjölskyldna á Íslandi. Í ár, sem endranær, verður hátíðleikinn í fyrirrúmi með þjóðlegu ívafi. Nýr jólaforleikur í hátíðarútsetningu Sigurðar Ingva Snorrasonar lítur dagsins ljós þar sem sígild íslensk jólalög eru í forgrunni. Jólasveinasvíta Guðna Franzsonar, með Halldóru Geirharðsdóttur sögumanni, leggur
út frá Jólasveinavísum Jóhannesar úr Kötlum og má vera að bæði Grýla og jólakötturinn gægist inn í Eldborgarsal Hörpu. Úr því þjóðlega er farið yfir í ástsælt erlent jólalag, Litla trommuleikarann, sem verður flutt af ungum slagverksnemendum. Trommuslátturinn kemur öllum í réttan takt fyrir glæsileg tilþrif nemenda Listdansskóla Íslands sem túlka sívinsælt tónverk
Howards Blake um Snjókarlinn

Lesa meira Kaupa miða
  • Stjórnandi
    Bernharður Wilkinson
  • Einleikarar
    Ungir trommuleikarar
  • Kynnir
    Trúðurinn Barbara
  • Einsöngvari
    Þóra Einarsdóttir
  • Kór
    Bjöllukór Tónlistarskóla Reykjanesbæjar
    Karen Sturlaugsson stjórnandi
    Stúlknakór Reykjavíkur
    Margrét J. Pálmadóttir stjórnandi
 
nattfataparty_listi

NÁTTFATAPARTÝ 9.3.2013 14:00 Harpa

Það er tilvalið að láta fara vel um sig í náttfatapartíi Sinfóníunnar þar sem falleg næturtónlist og ljúfar kvöldlokkur ásamt vögguvísum hljóma í vel stilltum ljósum Eldborgarsalar Hörpu. Hvað er unaðslegra en að lygna aftur augunum og svífa á vit drauma undir slíkri tónlist. Eine kleine Nachtmusik er eitt þekktasta verk Mozarts og er þó af nógu að taka. Tónlistin er einstaklega ljúf og lagræn og kemur flestum í gott jafnvægi sem á hana hlusta. En í öllum náttfatapartíum þarf góða draugasögu, eitthvað til að halda fólki vakandi, allavega í smástund. Slíkir spennutónar slæðast með á þessa tónleika en einnig tónlist sem kveður niður allan draugagang. Með titillagi myndarinnar Ghostbusters kveður Sinfóníuhljómsveit Íslands niður alla móra og skottur sem leynast í Hörpu. Gaman er að koma í náttfötunum með uppáhalds bangsann sinn á tónleikana.

Lesa meira Kaupa miða
  • Stjórnandi
    Bernharður Wilkinson
  • Einleikari
    Sigurður Flosason
  • Sögumaður
    Trúðurinn Barbara
  • Efnisskrá
    W.A. Mozart
    Eine kleine Nachtmusik
    Veigar Margeirsson
    Sofðu unga ástin mín
    Ray Parker Jr.
    Draugabanar
    Alexandre Desplat
    Harry Potter
 
alfar_listi

ÁLFAR OG RIDDARAR 11.5.2013 14:00 Harpa

Nýtt og spennandi tónlistarævintýri eftir færeyska þríeykið Rakel Helmsdal rithöfund, Kára Bæk tónskáld og myndskreytinn Janus á Húsagarði. Einstaklega kraftmikið og heillandi færeyskt ævintýri sem byggir á minninu um riddarann Ólaf Liljurós og hetjudáðum hans. Seiðandi danstónlist, kraftmikið slagverk og riddaraleg lúðraköll einkenna þetta framúrskarandi barnaverk. Myndskreytingum Janusar er varpað upp á stórt tjald meðan á flutningi ævintýrsins stendur. Með því móti eru allir tilbúnir að taka þátt í ævintýrinu og fljúga af stað með litla bróður að „veiða vind“ alveg eins og Ólafur Liljurós gerði.

Lesa meira Kaupa miða
  • Stjórnandi
    Bernharður Wilkinson
  • Sögumaður
    Benedikt Erlingsson
  • Efnisskrá
    Jón Leifs
    Íslensk rímnadanslög
    Kári Bæk
    Veiða vind
    Atli K. Petursen
    Ólavur riddararós
 


Bakhjarlar

VÍS Gamma


Þetta vefsvæði byggir á Eplica