Steven Osborne er einn fremsti píanóleikari Breta. Hann hefur getið sér framúrskarandi orðspor fyrir túlkun sína á klassískum og lítt þekktari verkum. Osborne hefur hlotið hin virtu Gramophone-verðlaun og í ár var hann útnefndur til BBC Music Magazine-verðlaunanna fyrir upptökur á heildarverkum Ravels fyrir píanó.
Lesa meira Kaupa miða
Eftirleikur - Hálftímalangir tónleikar þar sem spennandi verk 20. aldarinnar eru leikin í framhaldi af áskriftartónleikum. Tónleikarnir hefjast klukkan 22:00 og eru tónleikagestum sinfóníutónleika sama kvölds að kostnaðarlausu en einnig er hægt að kaupa staka miða á 1.000 kr.
Lesa meira Kaupa miða
Í tilefni þess að hartnær 100 ár voru liðin frá andláti Johannesar Brahms leitaði hljómsveitarstjórinn Wolfgang Sawallisch til þýska tónskáldsins Wolfgangs Rihm og bað hann um að semja verk af því tilefni. Ernster Gesang er hugleiðing Rihms um Brahms en jafnframt er verkið samið um föður Rihms sem þá var nýlátinn.
Konsert fyrir fiðlu og selló, op. 102 eftir Brahms var síðasta hljómsveitarverk hans. Konsertinn samdi hann fyrir vin sinn, fiðluleikarann Josef Joachim og selló leikarann Robert Hausmann sem um árabil hafði leikið kammertónlist með Brahms. Konsertinn er vinsæll meðal einleikara enda gerir tónsmíðin báðum einleikurunum hátt undir höfði
Lesa meira Kaupa miða
Það er engum ofsögum sagt að fiðluleikarinn Christian Tetzlaff sé eitt stærsta nafnið á meðal fiðluleikara heimsins í dag. Hann hefur unnið með hljómsveitarstjórum á borð við Pierre Boulez, Esa-Pekka Salonen, Daniel Harding og Kent Nagano og hefur fiðluleikur hans verið gefinn út af EMI og Deutsche Gramophone. Tetzlaff leikur báða fiðlukonserta pólska tónskáldsins Karols Szymanowski sem eru af mörgum taldir með mikilvægari fiðlukonsertum 20. aldarinnar.
Lesa meira Kaupa miða
Leonard Bernstein markaði djúp spor í menningu Bandaríkjanna á 20. öld sem tónskáld, hljómsveitarstjóri, sjónvarpsstjarna, píanisti og kennari. Sjálfur var Bernstein gyðingur og hafa mörg verka hans skírskotun til gyðingatrúar. Svo er einnig farið
með Chichester Psalms sem byggja á Davíðssálmum en eru sungnir á hebresku. Þrátt fyrir trúarlegan þunga textans er tónverkið iðandi af lífi.
Í ár eru 100 ár liðin frá frumflutningi Vorblótsins eftir Ígor Stravinskíj. Aldrei í tónlistarsögunni hefur frumflutningur á tónverki valdið jafn miklu fjaðrafoki og þann 29. maí árið 1913 í Théâtre des Champs-Elysées. Tónlistin og ballettinn gengu svo fram af viðstöddum að lögreglu þurfti til þess að stilla til friðar. Vorblótið er eitt áhrifamesta tónverk 20. aldarinnar, það kom sem sprengja inn í tónlistarsöguna og umbylti viðhorfum fólks til tónlistar.
Lesa meira Kaupa miða