Maí 2013

maí 2013

(Sleppa dagatali)
M F F L S M Þ M F F L S M Þ M F F L S M Þ M F F L S M Þ M F F
1 2 3 4 5 6 7 8 9 10 11 12 13 14 15 16 17 18 19 20 21 22 23 24 25 26 27 28 29 30 31

maxi_listi

OPIÐ HÚS Á MENNINGARNÓTT 18.8.2012 14:00 Harpa

Ævintýrið um Maxímús Músíkús er einstakt og hjartnæmt tónlistarævintýri um mús sem villist inn á æfingu hjá sinfóníuhljómsveit. Á æfingunni kynnist Maxi tónlistinni af eigin raun og tekur hlustendur með sér inn í heillandi hljóðheim sinfóníuhljómsveitarinnar. Tónlistin sem hljómar á tónleikunum er úr ýmsum áttum og má þar nefna Bolero eftir Maurice Ravel og Á Sprengisandi eftir Sigvalda Kaldalóns. Ævintýrið um Maxa hefur hlotið margvíslegar viðurkenningar og verðlaun og verður flutt af Sinfóníuhljómsveit Íslands í Kennedy Center í febrúar 2013.

Lesa meira
  • Efnisskrá
    Maxímús Músíkús heimsækir hljómsveitina
  • Stjórnandi
    Bernharður Wilkinson
  • Sögumaður
    Valur Freyr Einarsson
 
johann_nardeau_listi

OPIÐ HÚS Á MENNINGARNÓTT 18.8.2012 17:00 Harpa

Fjölbreytt og aðgengileg klukkutímalöng dagskrá flutt af Sinfóníuhljómsveit Íslands ásamt Jóhanni Má Nardeau trompetleikara. Jóhann Már er einn af okkar efnilegustu hljóðfæraleikurum, fæddur árið 1987. Hann ólst upp í Skólahljómsveit Kópa vogs og lauk
námi frá Tónlistarskólanum í Reykjavík aðeins 18 ára að aldri. Jóhann stundar nú framhaldsnám við Konservatoríið í París. Hann hefur unnið til verðlauna í alþjóðlegum keppnum og komið fram á tónleikum með Sinfóníuhljómsveit Íslands og Sinfóníuhljómsveit unga fólksins auk þess að leika með hljómsveitum erlendis. Stjórnandi er Bernharður Wilkinson.

Lesa meira
  • Efnisskrá
    John Adams
    Short Ride in a Fast Machine
    Edward Elgar
    Nimrod
    Alexander Arutiunian
    Trompetkonsert
    Georges Bizet
    L'Arlésienne svíta
  • Stjórnandi
    Bernharður Wilkinson
  • Einleikari
    Jóhann Már Nardeau
 
feldman_listi

EFTIRLEIKUR - FELDMAN 20.9.2012 22:00 Harpa

Eftirleikur - Hálftímalangir tónleikar þar sem spennandi verk 20. aldarinnar eru leikin í framhaldi af áskriftartónleikum. Tónleikarnir hefjast klukkan 22:00 og eru tónleikagestum sinfóníutónleika sama kvölds að kostnaðarlausu en einnig er hægt að kaupa staka miða á 1.000 kr.
Lesa meira Kaupa miða
  • Efnisskrá
    Morton Feldman
    Coptic Light
  • Stjórnandi
    Ilan Volkov
 
hof_listi

TÓNLEIKAR Í HOFI 21.9.2012 19:30 Hof Akureyri

Á síðasta starfsári heimsótti Sinfóníuhljómsveit Íslands Norðurland og lék í Hofi, nýju og glæsilegu menningarhúsi. Mikil tilhlökkun er að halda norður á ný með tvö meistaraverk á efnisskránni: Sellókonsert nr. 1 í C-dúr eftir Haydn og Sinfóníu nr. 5 eftir Tsjajkovskíj sem ber höfundi sínum fagurt vitni. Bæði verkin eru einnig flutt í Hörpu af Sinfóníuhljómsveit Íslands á tónleikunum Austurrískum tónjöfrum og upphafstónleikum hljómsveitarinnar.

Lesa meira Kaupa miða
  • Stjórnandi
    Ilan Volkov
  • Einleikari
    Bryndís Halla Gylfadóttir
  • Efnisskrá
    Joseph Haydn
    Sellókonsert nr. 1 í C-dúr
    Pjotr Tsjajkovskíj
    Sinfónía nr. 5
 
disney3_listi

TÖFRAVERÖLD DISNEYS 27.9.2012 19:30 Harpa

Töfraheimur Disneys lifnar við á tónleikum fyrir ævintýrafólk á öllum aldri þar sem leikin og sungin er ódauðleg tónlist úr smiðju Walts Disney. Framlag Disneys til teiknimyndanna er óþarft að kynna en hann hefur oftar en nokkur annar einstaklingur
hlotið Óskarsverðlaunin eftirsóttu. Á tónleikunum verða flutt eftirlætislög úr völdum myndum meistarans, syrpur í hljómsveitarbúningi og einsöngslög flutt af valinkunnum söngvurum í fremstu röð á Íslandi. Tónlist úr myndum Disneys hefur án efa ratað inn á fleiri heimili á heimsvísu en tónlist úr nokkrum öðrum myndum. Lögin hafa orðið að heimilisvinum og sem slík órjúfanlegur hluti af fallegum minningarbrotum bernskuáranna.

Lesa meira Kaupa miða
  • Efnisskrá
    Tónlist úr smiðju Walts Disney
  • Stjórnandi
    David Danzmayr
  • Einsöngvarar
    Felix Bergsson, Stefán Hilmarsson og Valgerður Guðnadóttir
 
disney3_listi

TÖFRAVERÖLD DISNEYS 28.9.2012 19:30 Harpa

Töfraheimur Disneys lifnar við á tónleikum fyrir ævintýrafólk á öllum aldri þar sem leikin og sungin er ódauðleg tónlist úr smiðju Walts Disney. Framlag Disneys til teiknimyndanna er óþarft að kynna en hann hefur oftar en nokkur annar einstaklingur
hlotið Óskarsverðlaunin eftirsóttu. Á tónleikunum verða flutt eftirlætislög úr völdum myndum meistarans, syrpur í hljómsveitarbúningi og einsöngslög flutt af valinkunnum söngvurum í fremstu röð á Íslandi. Tónlist úr myndum Disneys hefur án efa ratað inn á fleiri heimili á heimsvísu en tónlist úr nokkrum öðrum myndum. Lögin hafa orðið að heimilisvinum og sem slík órjúfanlegur hluti af fallegum minningarbrotum bernskuáranna.

Lesa meira Kaupa miða
  • Efnisskrá
    Tónlist úr smiðju Walts Disney
  • Stjórnandi
    David Danzmayr
  • Einsöngvarar
    Felix Bergsson, Stefán Hilmarsson og Valgerður Guðnadóttir
 
disney3_listi

TÖFRAVERÖLD DISNEYS 29.9.2012 16:00 Harpa

Töfraheimur Disneys lifnar við á tónleikum fyrir ævintýrafólk á öllum aldri þar sem leikin og sungin er ódauðleg tónlist úr smiðju Walts Disney. Framlag Disneys til teiknimyndanna er óþarft að kynna en hann hefur oftar en nokkur annar einstaklingur
hlotið Óskarsverðlaunin eftirsóttu. Á tónleikunum verða flutt eftirlætislög úr völdum myndum meistarans, syrpur í hljómsveitarbúningi og einsöngslög flutt af valinkunnum söngvurum í fremstu röð á Íslandi. Tónlist úr myndum Disneys hefur án efa ratað inn á fleiri heimili á heimsvísu en tónlist úr nokkrum öðrum myndum. Lögin hafa orðið að heimilisvinum og sem slík órjúfanlegur hluti af fallegum minningarbrotum bernskuáranna.

Lesa meira Kaupa miða
  • Efnisskrá
    Tónlist úr smiðju Walts Disney
  • Stjórnandi
    David Danzmayr
  • Einsöngvarar
    Felix Bergsson, Stefán Hilmarsson og Valgerður Guðnadóttir
 
ungsveit_listi

UNGSVEIT SINFÓNÍUNNAR 30.9.2012 14:00 Harpa

Pláneturnar eftir Gustav Holst er eitt vinsælasta og glæsilegasta hljómsveitarverk 20. aldarinnar. Sjö reikistjörnum er lýst í áhrifamiklu tón máli, allt frá upphafsþættinum Stríðsboðanum Mars til lokaþáttarins, Hins dulræna Neptúnusar, þar sem raddir
Stúlknakórs Reykjavíkur óma eins og úr órafjarlægð. Tónlistin hefur hljómað í mörgum kvikmyndum og verið innblástur fyrir fjölda tónskálda. Holst var áhugasamur um stjörnufræði og þannig fæddist hugmynd að verki sem byggði á reikistjörnunum sjö.
Lesa meira Kaupa miða
  • Efnisskrá
    Gustav Holst
    Pláneturnar
  • Stjórnandi
    Baldur Brönnimann
  • Hljómsveit
    Ungsveit Sinfóníuhljómsveitar Íslands
  • Kór
    Stúlknakór Reykjavíkur
    Margrét J. Pálmadóttir kórstjóri
 
barnastund_listi

BARNASTUND MEÐ SINFÓNÍUNNI 20.10.2012 11:30 Harpa

Barnastundin er ætluð yngstu hlustendunum. Í Barnastundinni er flutt tónlist í um það bil 30 mínútur í Hörpuhorni á 2. hæð fyrir framan Eldborg. Tónlistin og lengd Barnastundarinnar er sérstaklega sniðin að þeim hópi sem er of ungur til að sitja heila tónleika í Litla tónsprotanum. Barnastundin er börnum í fylgd forráðamanna sinna að kostnaðarlausu. Kynnir er trúðurinn Barbara og hljómsveitarstjóri er Guðmundur Óli Gunnarsson. Sérstakur gestur verður Maxímús Músíkús. Vinsamlega takið með ykkur púða til að sitja á.

AÐGANGUR ÓKEYPIS

Lesa meira
  • Stjórnandi
    Guðmundur Óli Gunnarsson
  • Einleikarar
    Leikfangasextett skipaður börnum og Maxa
  • Kynnir
    Trúðurinn Barbara
  • Efnisskrá
    1. þáttur Leikfangasinfóníu Leopold Mozart
    Úrval léttra og skemmtilegra laga
 
messiaen_listi

EFTIRLEIKUR - MESSIAEN 8.11.2012 22:00 Harpa

Eftirleikur - Hálftímalangir tónleikar þar sem spennandi verk 20. aldarinnar eru leikin í framhaldi af áskriftartónleikum. Tónleikarnir hefjast klukkan 22:00 og eru tónleikagestum sinfóníutónleika sama kvölds að kostnaðarlausu en einnig er hægt að kaupa staka miða á 1.000 kr.
Lesa meira Kaupa miða
  • Efnisskrá
    Olivier Messiaen
    Et exspecto resurrectionem mortuorum
  • Stjórnandi
    Ilan Volkov
 
vikingur_listi

VÍKINGUR SPILAR KEISARAKONSERTINN 9.11.2012 19:30 Harpa

Keisarakonsertinn er síðasti píanókonsertinn sem Beethoven samdi og sá tignarlegasti. Konsertinn gerir miklar kröfur til einleikarans, horfir fram á veginn hvað hljómaval og styrkleikabreytingar varðar. Keisarakonsertinn var saminn 1809 og frumfluttur í Leipzig 1811 af Friedrich Schneider og Gewandhaus hljómsveitinni.

Óratórían Kristur á Olíufjallinu (Christus am Ölberge) er nú flutt í fyrsta sinn á Íslandi. Óratórían, sú eina sem Beethoven samdi, er fyrir einsöngvara, kór og hljómsveit. Einsöngvararnir þrír, sópran, tenór og bassi, eru í hlut verkum engilsins, Jesú og Péturs postula.

Tónverk Beethovens skipa veigamikinn sess í verkefnaskrá Víkings Heiðars Ólafssonar. Víking þarf vart að kynna fyrir tónleikagestum, hann hefur leikið á mörgum ógleymanlegum tónleikum Sinfóníuhljómsveitarinnar undanfarin ár, meðal annars á opnunartónleikum Hörpu 2011, undir stjórn Ashkenazys.

Lesa meira Kaupa miða
  • Stjórnandi
    Ilan Volkov
  • Einleikari
    Víkingur Heiðar Ólafsson
  • Einsöngvarar
    Herdís Anna Jónasdóttir, Sveinn Dúa Hjörleifsson og Jóhann Smári Sævarsson
  • Kór
    Mótettukór Hallgrímskirkju
    Hörður Áskelsson kórstjóri
  • Efnisskrá
    Ludwig van Beethoven
    Píanókonsert nr. 5, Keisarakonsertinn
    Ludwig van Beethoven
    Kristur á Olíufjallinu
 
star_wars_listi

STAR WARS TÓNLEIKAR 28.11.2012 19:30 Harpa 29.11.2012 19:30 Harpa

John Williams er einn þekktasti og farsælasti tónsmiður í sögu Bandaríkjanna. Hann hefur verið tilnefndur í liðlega fjörutíu skipti til Óskarsverðlaunanna og hreppt þau fimm sinnum. Afrekalisti hans er of langur til að tæpa á hér en tónlist hans hefur öðlast alþjóðlega viðurkenningu og fádæma vinsældir. Í Stjörnustríðsmyndunum er áhorfandinn kynntur fyrir stjörnuþoku í órafjarlægð, nýrri veröld með fram andi verum. Á sama tíma hafa kvikmyndaunnendur uppgötvað, með tónlist Johns Williams, enn aðra veröld, þann magnaða hljóðheim sem hljóðfæri sinfóníuhljómsveitar skapa.

Lesa meira Kaupa miða
  • Stjórnandi
    Lucas Richman
  • Efnisskrá
    John Williams
    Tónlist úr Stjörnustríðsmyndunum
 
messias_listi

AÐVENTUTÓNLEIKAR – MESSÍAS 5.12.2012 19:30 Harpa 6.12.2012 19:30 Harpa

Óratórían Messías er eitt frægasta tónverk sem samið hefur verið og er víða ómissandi þáttur í jólaundirbúningnum. Fá meistaraverk sígildrar tónlistar eru jafn oft flutt við þvílíkar vinsældir og óratóría Händels. Händel var á miðjum aldri þegar hann samdi óratóríuna, hafði ferðast víða og þróað með sér sterkan persónulegan stíl – ókrýndur meistari sviðsuppfærslnanna.
Einvalalið söngvara kemur fram á þessum tónleikum. Helen-Jane Howells sópran hóf feril sinn sem tónlistarkennari, flautuleikari og djasssöngkona. Hún hefur meðal annars sungið með The Gabrieli Consort, The Academy of Ancient Music og Les Arts Florissant undir stjórn Williams Christie. Fyrir síðustu jól söng hún í árlegri uppfærslu á Messíasi við kertaljós í Royal Festival Hall.

Lesa meira Kaupa miða
  • Stjórnandi
    Nicholas Kraemer
  • Einsöngvarar
    Helen-Jane Howells, Marianne Beate Kielland, James Gilchrist og Roderick Williams
  • Kór
    Kór Áskirkju
    Magnús Ragnarsson kórstjóri
 
tonsproti_jol_listi

JÓLATÓNLEIKAR SINFÓNÍUNNAR 15.12.2012 16:00 Harpa 16.12.2012 14:00 Harpa

Jólatónleikar Sinfóníunnar eru fastur liður í jólahaldi margra fjölskyldna á Íslandi. Í ár, sem endranær, verður hátíðleikinn í fyrirrúmi með þjóðlegu ívafi. Nýr jólaforleikur í hátíðarútsetningu Sigurðar Ingva Snorrasonar lítur dagsins ljós þar sem sígild íslensk jólalög eru í forgrunni. Jólasveinasvíta Guðna Franzsonar, með Halldóru Geirharðsdóttur sögumanni, leggur
út frá Jólasveinavísum Jóhannesar úr Kötlum og má vera að bæði Grýla og jólakötturinn gægist inn í Eldborgarsal Hörpu. Úr því þjóðlega er farið yfir í ástsælt erlent jólalag, Litla trommuleikarann, sem verður flutt af ungum slagverksnemendum. Trommuslátturinn kemur öllum í réttan takt fyrir glæsileg tilþrif nemenda Listdansskóla Íslands sem túlka sívinsælt tónverk
Howards Blake um Snjókarlinn

Lesa meira Kaupa miða
  • Stjórnandi
    Bernharður Wilkinson
  • Einleikarar
    Ungir trommuleikarar
  • Kynnir
    Trúðurinn Barbara
  • Einsöngvari
    Þóra Einarsdóttir
  • Kór
    Bjöllukór Tónlistarskóla Reykjanesbæjar
    Karen Sturlaugsson stjórnandi
    Stúlknakór Reykjavíkur
 
hulda_listi

VÍNARTÓNLEIKAR 11.1.2013 19:30 Harpa 12.1.2013 16:00 Harpa

Á Vínartónleikunum 2013 hljómar sígild Vínartónlist undir stjórn Peters Guth sem er Íslendingum að góðu kunnur en hann hefur margsinnis stjórnað og leikið á fjörugum Vínartónleikum Sinfóníuhljómsveitarinnar. Guth hefur átt mikilli velgengni að fagna, bæði sem fiðluleikari og hljómsveitarstjóri. Hann hefur skapað sér nafn sem einn fremsti flytjandi heims á tónlist Strauss feðga og annarri Vínartónlist. Guth er eftirsóttur gestastjórnandi víða um heim og hvarvetna hlotið lof og framúrskarandi undirtektir við líflegri framkomu sinni og túlkun.

Lesa meira Kaupa miða
  • Stjórnandi
    Peter Guth
  • Einsöngvari
    Hulda Björk Garðarsdóttir
    Snorri Wium
  • Efnisskrá
    Glæsileiki og gleði einkenna Vínartónlistina sem mörgum þykir ómissandi upphaf á nýju ári.
 
ungir_listi

UNGIR EINLEIKARAR 15.1.2013 19:30 Harpa

Á hverju ári fer fram keppni ungra einleikara sem Sinfóníuhljómsveit Íslands stendur að í samvinnu við Listaháskóla Íslands. Keppnin er opin nemendum á háskólastigi, óháð því hvaða skóla þeir sækja, og fá þeir hlutskörpustu að leika einleik með Sinfóníuhljómsveit Íslands. Hver einleikari flytur hálftíma dagskrá með verkum af ólíkum toga en dómnefnd keppninnar skipar tónlistarfólk í fremstu röð. Það er stór stund þegar vinningshafar stíga á svið með hljómsveitinni en á þessum tónleikum ríkir
ávallt eftirvænting og gleði yfir þeim krafti sem býr í unga tónlistarfólkinu okkar. Sinfóníuhljómsveitin og Listaháskóli Íslands leiða saman hesta sína og styðja við okkar efnilegasta tónlistarfólk á leið þess inn í heim atvinnumennskunnar. Á sama tíma fá áheyrendur tækifæri til að fylgjast með þroska og framförum þessa unga listafólks.
Lesa meira Kaupa miða
  • Stjórnandi
    Bernharður Wilkinson
  • Einleikarar
    Einar Bjartur Egilsson Píanó
    Geirþrúður Anna Guðmundsdóttir Selló
    Sólveig Steinþórsdóttir Fiðla
    Unnsteinn Árnason Söngur
  • Efnisskrá
    Francis Poulenc
    Händel
    W.A. Mozart
    Jón Leifs
    Tsjajkovskíj
    Schumann
 
Aadland_listi

MAHLER OG BERNSTEIN 25.1.2013 19:30 Harpa

Leonard Bernstein markaði djúp spor í menningu Bandaríkjanna á 20. öld sem tónskáld, hljómsveitarstjóri, sjónvarpsstjarna, píanisti og kennari. Sjálfur var Bernstein gyðingur og hafa mörg verka hans skírskotun til gyðingatrúar. Svo er einnig farið með Chichester Psalms sem byggja á Davíðssálmum en eru sungnir á hebresku. Þrátt fyrir trúarlegan þunga textans er tónverkið iðandi af lífi.

Lesa meira Kaupa miða
  • Stjórnandi
    Eivind Aadland
  • Einsöngvari
    Pétur Úlfarsson, drengjasópran
  • Kór
    Hamrahlíðarkórarnir
    Þorgerður Ingólfsdóttir kórstjóri
  • Efnisskrá
    Leonard Bernstein
    Chichester Psalms
    Gustav Mahler
    Sinfónía nr. 1
 
myrkirdagar_listi

SINFÓNÍAN Á MYRKUM 31.1.2013 19:30 Harpa

Á tónleikum Sinfóníuhljómsveitarinnar á Myrkum músíkdögum verða frumflutt þrjú tónverk eftir þá Gunnar Andreas Kristinsson, Davíð Brynjar Franzson og Pál Ragnar Pálsson sem eru af yngri kynslóð íslenskra tónskálda. Auk þess verður flutt verkið Cheveux-de-frise eftir írska tónskáldið Gerald Barry. Verkið var pantað af BBC og vakti gríðarlega athygli þegar það var frumflutt á Proms-hátíðinni í London árið 1988. Gerald Barry nam hjá Stockhausen og Kagel en hann vakti fyrst eftirtekt 1979 með róttækum samspilsverkum á borð við '_______' og Ø.

Lesa meira Kaupa miða
  • Stjórnandi
    Ilan Volkov
  • Einleikari
    Una Sveinbjarnardóttir
  • Efnisskrá
    Davíð Brynjar Franzson
    On Sense and Subjectivity (frumflutningur)
    Gerald Barry
    Chevaux-de-frise
  • Efnisskrá
    Gunnar Andreas Kristinsson
    Gangverk englanna (frumflutningur)
    Páll Ragnar Pálsson
    Nostalgia, fiðlukonsert(frumflutningur)
 
burana_listi

CARMINA BURANA 7.2.2013 19:30 Harpa

Líklegt má telja að ekkert klassískt tón verk frá 20. öld hafi notið jafn mikilla vinsælda og Carmina Burana eftir þýska tónskáldið Carl Orff. Heiti verksins kemur úr handriti frá 12. og 13. öld þar sem er að finna trúar-, drykkjuog ástarsöngva. Upphafskaflinn O Fortuna, þar sem sungið er um gæfuhjólið sem snýst í sífellu og breytir stöðu manna á augabragði, er án efa þekktasti hluti verksins en tónlistina úr Carmina Burana má heyra víða, meðal annars í auglýsingum, kvikmyndum og tölvuleikjum.

Lesa meira Kaupa miða
  • Stjórnandi
    Hermann Bäumer
  • Einsöngvarar
    Sigrún Hjálmtýsdóttir, Einar Clausen og Hrólfur Sæmundsson
  • Kór
    Kór Áskirkju og Söngsveitin Fílharmónía
    Magnús Ragnarsson kórstjóri
    Gradualekór Langholtskirkju
    Jón Stefánsson, kórstjóri
  • Efnisskrá
    W.A. Mozart
    Sinfónía nr. 35, Haffner
    Carl Orff
    Carmina Burana
 
garrick_listi

VESTUR UM HAF 26.2.2013 19:30 Harpa

Sinfóníuhljómsveit Íslands er boðið á Norrænu menningarhátíðina Nordic Cool sem Kennedy Center í Washington DC stendur fyrir dagana 19. febrúar til 17. mars 2013. Sinfóníuhljómsveit Íslands flýgur vestur um haf með spennandi efnisskrá í farteskinu sem flutt verður í Hörpu fyrir tónleikaförina.  Af fjórum tónverkum efnisskrárinnar eru tvö íslensk tónverk, Nýtt verk eftir Hlyn Aðils Vilmarsson og AERIALITY eftir Önnu Þorvaldsdóttur sem frumflutt var á tónleikum Sinfóníuhljómsveitar Íslands árið 2011. Anna Þorvaldsdóttir hlaut Tónlistarverðlaun Norðurlandaráðs nú í vor fyrir verkið Dreymi sem einnig var frumflutt af Sinfóníuhljómsveitinni. Efnisskrána fullkomna svo tvö skandínavísk tónverk, píanókonsert í a-moll eftir Edvard Grieg og Lemminkäinen-svítan op. 22 eftir Jean Sibelius.
Lesa meira Kaupa miða
  • Stjórnandi
    Ilan Volkov
  • Einleikari
    Garrick Ohlsson
  • Efnisskrá
    Anna Þorvaldsdóttir
    AERIALITY
    Edvard Grieg
    Píanókonsert í a-moll
    Hlynur Aðils Vilmarsson
    Nýtt verk
    Jean Sibelius
    Lemminkäinen-svíta
 
tectonics_bordi_jpg_205x135

TECTONICS  18. - 20. apríl 2013  18.4.2013 - 20.4.2013 Harpa

Þriggja daga hátíð Sinfóníuhljómsveitar Íslands með nútímatónlist undir listrænni stjórn Ilans Volkov verður haldin öðru sinni. Tectonicstónlistarhátíðin sem hleypt var af stokkunum í marsmánuði í fyrra hlaut einróma lof innanlands sem utan. Á hátíðinni slást heimamenn í tónlist og listum í för með Sinfóníuhljómsveit Íslands og kynna fjölbreytt verk á nýjan og einstæðan máta. Ýmis rými Hörpu ásamt ólíkum eiginleikum og hljóðvistarlandslagi tónleikasala hússins verða nýtt til hins ýtrasta.

Kaupa hátíðarpassaKaupa dagpassa

Lesa meira
  • Stjórnandi
    Ilan Volkov listrænn stjórnandi
 
ccp_listi

EVE Online Sinfonía 24.4.2013 21:00 Harpa

Sinfóníuhljómsveit Íslands spilar í Hörpu fyrir EVE Fanfest 2013. Glænýjum og öðruvísi viðburði hefur verið bætt við dagskrá Sinfóníuhljómsveitar Íslands í Hörpu 24. apríl. EVE Online, hinn heimsþekkti sýndarveruleiki sem þróaður hefur verið af íslenska tölvuleikjafyrirtækinu CCP Games, heldur upp á tíu ára afmæli sitt á næsta ári, og í tilefni þess mun Sinfóníuhljómsveitin spila tónlist úr EVE Online og marka þar með byrjun hátíðahaldanna fyrir EVE spilarahátíðina sem fram munu fara í apríl á næsta ári. Hægt verður að sjá svipbrot af mikilli sjónrænni fegurð leikjarins á hvíta tjaldinu á meðan á tónleikunum stendur. Missið ekki af þessari einstöku upplifun!

Lesa meira Kaupa miða
 
barnastund_maxi_listi

BARNASTUND MEÐ SINFÓNÍUNNI 11.5.2013 11:30 Harpa

Barnastundin er ætluð yngstu hlustendunum. Í Barnastundinni er flutt tónlist í um það bil 30 mínútur í opnu rými á 2. hæð fyrir framan Eldborg. Tónlistin og lengd Barnastundarinnar er sérstaklega sniðin að þeim hópi sem er of ungur til að sitja heila tónleika í Litla tónsprotanum. Barnastundin með Sinfóníunni er börnum í fylgd forráðamanna sinna að kostnaðarlausu. Kynnir í Barnastundinni er trúðurinn Barbara og hljómsveitarstjóri er Bernharður Wilkinson. Sérstakur gestur er Maxímús Músíkús.
Vinsamlega takið með ykkur púða til að sitja á.

Lesa meira
  • Stjórnandi
    Bernharður Wilkinson
  • Kynnir
    Trúðurinn Barbara
  • Efnisskrá
    W. A. Mozart
    Eine kleine Nachtmusik
    Úrval skemmtilegra laga
 
artfest_listi

Dansar í Eldborg: Stravinskíj í 100 ár 24.5.2013 19:30 Harpa 25.5.2013 15:00 Harpa

Listahátíð í Reykjavík leiðir saman Sinfóníuhljómsveit Íslands og Íslenska dansflokkinn, sem dansar nú í fyrsta sinn við lifandi tónlistarflutning á Eldborgarsviði Hörpu. Hljómsveitin og dansflokkurinn flytja saman tvö af danstónverkum Stravinskíjs, Vorblótið og Petrúska. Verk hins unga Igors mörkuðu djúp spor í tónlistarsöguna fyrir 100 árum, á einu frjóasta tímabili í listsköpun 20. aldar.

Lesa meira Kaupa miða
  • Stjórnandi
    Pascal Rophé
 
songvaskald_listi

Söngvaskáldin og Sinfó 30.5.2013 20:00 Harpa

Á sannkölluðum stórtónleikum mun Sinfóníuhljómsveit Íslands og stórskotalið söngvara flytja mörg þekktustu lög íslenskar tónlistarsögu. Má þar nefna lög eins og Stingum af, Horfðu til himins, Tvær stjörnur, Don't try to fool me, Vetrarsól og fleiri perlur. Tónleikarnir eru haldnir í samvinnu við Félag tónskálda og textahöfunda, FTT, sem heldur upp á 30 ára afmæli á þessu ári.
Lesa meira Kaupa miða
 


Bakhjarlar

VÍS Gamma


Þetta vefsvæði byggir á Eplica