Ungt fólk og námsmenn
Námsmenn fá 50% afslátt af verði lausamiða ef keypt er samdægurs. Námsmenn og ungt fólk upp að 25 ára aldri fær 50% afslátt af Regnbogakortum.
Börn fimm ára og yngri fá frítt inn, að því gefnu að sæti séu ekki frátekin. Að öðrum kosti njóta þau sama afsláttar og námsmenn.
Helmingsafsláttur er af miðum í fjórar öftustu sætaraðirnar sem keyptir eru klukkutíma fyrir tónleika.
(Gildir ekki á Tónsprotann).
Veittur er 10% hópafsláttur fyrir 25-50 miða en 15% afsláttur fyrir hópa stærri en 50.


