maxi3_listi

Barna- og fjölskyldutónleikar

Fjölskyldutónleikaröð Sinfóníuhljómsveitar Íslands - Litli tónsprotinn - er áskrift að góðri skemmtun fyrir alla fjölskylduna og gefur yngstu tónlistarunnendunum einstakt tækifæri til að kynnast töfrum tónlistarinnar á klukkutíma löngum tónleikum.

Sígild ævintýri eru á sínum stað og á fyrstu tónleikunum verður sögð sagan um prinsinn Ívan sem bjargar prinsessu úr klóm Eldfuglsins, við heimsfræga tónlist Stravinskíjs.

Hljómsveitin heimsækir dýragarð og hinn margverðlaunaði Maxímús Músíkús villist að þessu sinni inn í tónlistarskóla. Á Jólatónleikunum segir Páll Óskar Hjálmtýsson svo frá snjókarlinum sem lifnar óvænt við.

Áskrift á ferna tónleika kostar aðeins 5.100 kr.

Tónsprotatónleikarnir eru á laugardögum, hefjast kl. 14.00 og eru um klukkustundarlangir. Skemmtileg tónlistaratriði verða á boðstólum í anddyrinu á undan tónleikunum og verður það auglýst betur í hvert sinn.

Skoða tónleika í Litla tónsprotanum


Viðburðir

júlí 2010

(Sleppa dagatali)
F F L S M Þ M F F L S M Þ M F F L S M Þ M F F L S M Þ M F F L S M Þ M
1 2 3 4 5 6 7 8 9 10 11 12 13 14 15 16 17 18 19 20 21 22 23 24 25 26 27 28 29 30 31        


Aðalstyrktaraðilar

Borgun Morgunblaðið

Þetta vefsvæði byggir á Eplica