Einleikarakeppni SÍ og LHÍ
Á hverju ári heldur SÍ í samstarfi við Listaháskóla Íslands einleikarakeppni sem er opin öllum íslenskum tónlistarnemum á háskólastigi.
Hlutskarpastir í þeirri keppni fá að leika einleik með Sinfóníuhljómsveitinni á tónleikum 14. janúar undir yfirskriftinni Ungir einleikarar. Sérstök stemning myndast á þessum tónleikum þar sem blístur, stapp og hvatningarhróp eru partur af fagnaðarlátunum.


