Einleikarakeppni SÍ og LHÍ
Á hverju ári heldur Sinfóníuhljómsveitiní samstarfi við Listaháskóla Íslands einleikarakeppni sem er opin öllum tónlistarnemum á háskólastigi, óháð því hvaða skóla þeir sækja. Hver nemandi flytur hálftíma dagskrá með verkum af ólíkum toga, og dómnefndin er skipuð listafólki úr fremstu röð.
Einleikarakeppnin fer fram í október 2011 og í kjölfarið verða nöfn þeirra sem hreppa hnossið birt á hér á vef Sinfóníuhljómsveitarinnar.
Hlutskarpastir í þeirri keppni fá að leika einleik með Sinfóníuhljómsveitinni á tónleikum 12. janúar 2012 undir yfirskriftinni Ungir einleikarar. Sérstök stemning myndast á þessum tónleikum þar sem blístur, stapp og hvatningarhróp eru partur af fagnaðarlátunum.



