Bókin um Maxímús

“Maxímús Músíkús heimsækir hljómsveitina” er myndskreytt barnabók með geisladiski. Þetta er skemmtiefni sem opnar börnum heim sinfóníuhljómsveitarinnar og lífsins innan hennar, hljóðfæranna og tónlistarinnar.

Höfundur er Hallfríður Ólafsdóttir flautuleikari sem auk þess að leiða flautudeild Sinfóníuhljómsveitar Íslands er móðir tveggja barna og hefur áratugalanga reynslu af hljóðfærakennslu. Myndskreytir er Þórarinn Már Baldursson, víóluleikari við Sinfóníuhljómsveit Íslands.

Sagan er sögð frá sjónarhóli músar, sem mannfólkið verður aldrei vart við. Músin heitir Maxímús Músíkús. Hann villist inn í tónlistarhúsið og verður vitni að ýmsu skemmtilegu og skringilegu, yfirþyrmandi og yndislegu, bæði á æfingu og á tónleikum. Honum finnst svo gaman og spennandi að upplifa allt þetta að hann ákveður í lok bókarinnar að hafast áfram við í tónlistarhúsinu og sjá hvað fleira skemmtilegt gerist daginn eftir.

Á geisladiskinum er að finna upplestur á sögunni með öllum þeim leikhljóðum sem henni fylgja, m.a. upphitun hljóðfæraleikaranna og stillingu hljóðfæranna. Sögumaður er leikarinn Valur Freyr Einarsson. Í lok disksins eru verkin flutt í heild sinni af Sinfóníuhljómsveit Íslands undir stjórn aðalhljómsveitarstjóra hennar, Rumon Gamba.

Ashkenazy er verndari verkefnsins 
Vladimir Ashkenazy, verndari verkefnisins, hefur þetta að segja um bókina:

“Í þessari bók tekst á einstæðan hátt að laða börn áreynslulaust að heillandi heimi sinfóníuhljómsveitarinnar og opna þeim jafnframt leið að stórfenglegustu tónlist veraldarinnar - glæsilegt afrek!“

Verkin sem leikin eru í sögunni voru valin af kostgæfni fyrir börnin; stutt, þekkt verk og aðgengileg.

Hátíðargjall Aarons Copland var valið vegna þess að það er mjög stutt, en er afar áhrifaríkt og gefur góða mynd af málmblásturshljóðfærunum.

Bolero er auðvelt áheyrnar vegna síendurtekins lagsins. Það er jafnframt spennandi vegna mismunandi blæbrigða og óviðjafnanlegrar uppbyggingar verksins enda er Ravel talinn einn besti “orkestrerari” sem uppi hefur verið. Í Bolero gefst bæði kostur á að heyra í einstökum hljóðfærum og mismunandi samsetningum hljóðfæra.

Örlagastef Beethovens úr fimmtu sinfóníu hans fær að hljóma skamma stund í bakgrunni, eitt af frægustu stefjum allra tíma.

Aukalag tónleikanna er svo Á Sprengisandi eftir Sigvalda Kaldalóns enda nauðsynlegt að hafa eitt íslenskt tónverk með. Sprengisandur hefur verið aukalag Sinfóníuhljómsveitar Íslands á ferðum hljómsveitarinnar erlendis og vekur hvarvetna mikla hrifningu. Það er eitt af vinsælustu lögum þjóðarinnar og snilldarleg útsetning Páls Pampichlers, fyrrverandi liðsmanns og stjórnanda SÍ, gerir lagið að frábærum endapunkti sögunnar.

 

 

 


Viðburðir

júlí 2010

(Sleppa dagatali)
F F L S M Þ M F F L S M Þ M F F L S M Þ M F F L S M Þ M F F L S M Þ M
1 2 3 4 5 6 7 8 9 10 11 12 13 14 15 16 17 18 19 20 21 22 23 24 25 26 27 28 29 30 31        


Aðalstyrktaraðilar

Borgun Morgunblaðið

Þetta vefsvæði byggir á Eplica