Skólaverkefni
Undanfarin ár hefur SÍ staðið fyrir vikulöngum tónsköpunarverkefnum í grunnskólum Reykjavíkur í samstarfi við Þórdísi Heiðu Kristjánsdóttur og Hildi Guðnýju Þórhallsdóttur.
Hljóðfæraleikarar úr SÍ vinna með nemendum að því að semja tónverk sem að lokum er flutt á tónleikum innan skólans. Þetta verkefni hefur notið mikilla vinsælda hjá nemendum sem mörg hver taka með þessum hætti þátt í lifandi tónlistarflutningi í fyrsta sinn.


