krakkar_stor

Fræðslustarf

Inngangur í hinn sinfóníska heim

Sinfóníuhljómsveit Íslands heldur uppi metnaðarfullu fræðslustarfi fyrir fólk á öllum aldri.

Fyrir utan fjölskyldutónleika hljómsveitarinnar eru á  hverju ári eru haldnir fjölmargir skólatónleikar fyrir nemendur, allt frá leikskólaaldri upp í menntaskólanema, þar sem gullmolar klassískrar tónlistar eru kynntir í tali og tónum.  

Árlega starfar hljómsveitin einnig með efnilegum tónlistarmönnum af yngri kynslóðinni. Ungsveit Sinfóníuhljómsveitar Íslands, skipuð tónlistarnemum, heldur sína þriðju tónleika í nóvember og flytur hina stórbrotnu sinfóníu nr. 5 eftir Mahler.

Þá eru haldnar árlega tvær keppnir þar sem framúrskarandi tónlistarnemar fá að leika einleik með Sinfóníunni: Grunnskólanemar á jólatónleikum í desember og nemar á menntaskóla- og háskólaaldri á tónleikunum Ungir einleikarar sem haldnir eru í janúar.

Tónleikakynningar eru á undan öllum tónleikum í gulri og rauðri tónleikaröð. Kynningarnar fara fram í Eldborg, hefjast kl. 18.30 og standa í um 30 mínútur. Kynningarnar eru eru tilvalin leið til að „hita upp“ fyrir tónleika með því að kynnast sögunni á bak við tónana.  Aðgangur er ókeypis og allir velkomnir.


Febrúar 2012

febrúar 2012

(Sleppa dagatali)
M F F L S M Þ M F F L S M Þ M F F L S M Þ M F F L S M Þ M
1 2
fimmtudagur
3 4 5 6 7 8 9
fimmtudagur
10 11 12 13 14 15 16 17 18 19 20 21 22 23
fimmtudagur
24 25 26 27 28 29


Bakhjarlar

Borgun VÍS Gamma


Þetta vefsvæði byggir á Eplica