| L | S | M | Þ | M | F | F | L | S | M | Þ | M | F | F | L | S | M | Þ | M | F | F | L | S | M | Þ | M | F | F | L | S |
|---|---|---|---|---|---|---|---|---|---|---|---|---|---|---|---|---|---|---|---|---|---|---|---|---|---|---|---|---|---|
| 1 | 2 | 3 | 4 | 5 | 6 | 7 | 8 | 9 | 10 | 11 | 12 | 13 | 14 | 15 | 16 | 17 | 18 | 19 | 20 | 21 | 22 | 23 | 24 | 25 | 26 | 27 | 28 | 29 | 30 |
Dagskrá Sinfóníuhljómsveitar Íslands á næsta starfsári 2013-2014 er fjölbreytt og glæsileg. Boðið er upp á spennandi blöndu af sígildum hljómsveitarverkum, litríkum einleikskonsertum, léttri klassík, nýrri tónlist ásamt barna- og fjölskyldutónleikum.
Hljómsveitin býður marga stjórnendur velkomna, sem allir eiga það sameiginlegt að vera í fremstu röð, þeirra á meðal Jun Märkl, Andrew Manze, Christian Mandeal og Leo Hussein. Sjálfur Dmitri Kitajenko hefur starfsárið með tveimur rússneskum perlum sem hann túlkar með óviðjafnanlegum hætti. Auk þess er sérstök ánægja að taka á móti hljómsveitarstjórum sem hafa áður stjórnað Sinfóníuhljómsveitinni, eins og Ilan Volkov aðalhljómsveitarstjóra, Eivind Aadland, Matthew Halls og Markus Poschner. Starfsárið er svo fullkomnað með okkar ástsælu meisturum, Vladimir Ashkenazy og Gennady Rosdestvenskíj, sem hvor um sig mun stjórna hrífandi verkum á borð við fyrstu sinfóníu Brahms og tíundu sinfóníu Sjostakovitsj.
Lesa meira
Stjórn Sinfóníuhljómsveitar Íslands hefur ákveðið að ráða Örnu Kristínu Einarsdóttur sem framkvæmdastjóra Sinfóníuhljómsveitarinnar frá og með 1. september næstkomandi. Ráðið er í starfið til fjögurra ára.
Arna Kristín hefur verið tónleikastjóri og staðgengill framkvæmdastjóra hjá Sinfóníuhljómsveit Íslands frá árinu 2007. Áður starfaði hún við skipulagningu menningarviðburða hjá Hafnarfjarðarbæ og í Norræna húsinu. Þá hefur hún starfað sem flautuleikari hjá Sinfóníuhljómsveit Íslands og í Bretlandi. Arna er með meistaragráðu í menningar- og menntastjórnun frá Háskólanum á Bifröst ásamt því að hafa lokið framhaldsmenntun í þverflautuleik í Bandaríkjunum og Bretlandi .
Arna tekur við af Sigurði Nordal sem gegnt hefur starfi framkvæmdastjóra undanfarin fjögur ár og líkur starfstíma hans 1. september nk.
Þann 7. maí síðastliðinn var auglýst til umsóknar staða framkvæmdastjóra Sinfóníuhljómsveitar Íslands. Umsækjendur um stöðuna voru tuttugu talsins, en fjórir drógu umsóknir sínar til baka vegna ákvæða um nafnbirtingu í upplýsingalögum.
Umsækjendur um stöðuna voru:
Arna Kristín Einarsdóttir
Árni Helgason
Gerður Ríkharðsdóttir
Gunnar Guðbjörnsson
Indriði Jósafatsson
Ingibjörg Sigurðardóttir
Jón Gunnar Borgþórsson
Jón Pálsson
Kjartan Már Kjartansson
Kristján Eiríksson
Njörður Sigurjónsson
Pétur Ó. Stephensen
Sigríður Ásta Árnadóttir
Sigrún Kjartansdóttir
Steinar Almarsson
Una Sveinsdóttir
Lesa meira