Margt um manninn á opnu húsi - 5.9.2010

Sinfóníuhljómsveit Íslands bauð gestum og gangandi í opið hús laugardaginn 4. september. Húsfylli var í Háskólabíói en þar voru ýmsir skemmtilegir atburðir á dagskrá og efnisskrá vetrarins kynnt. Víkingur Heiðar lék einleik með hljómsveitinni og spjallaði við gesti um lífið og listina eftir tónleikana.

Lesa meira
 

Uppselt á Pál Óskar - Aukatónleikar - 2.9.2010

Miðasala á tónleika Páls Óskars með Sinfóníuhljómsveit Íslands, sem verða haldnir í Háskólabíói í nóvember, hófst í gær. Seldist upp á tvenna tónleika á fyrsta degi og símkerfi Sinfóníunnar lá niðri um stund vegna of mikils álags. Lesa meira
 

Almenn miðasala hafin - 1.9.2010

Almenn miðasala er hafin á alla tónleika vetraris í miðsölu okkar og á www.sinfonia.is

Sala áskriftakorta er enn í fullum gangi og hefur hún farið ótrúlega vel af stað. Sala korta stefnir í það að vera mjög mikil og slá öll fyrri sölumet. Það er því um að gera að tryggja sér sæti á tónlistarveislu vetrarins sem fyrst. Lesa meira
 

VÍS gerist aðalstyrktaraðili SÍ - 24.8.2010

VÍS og Sinfóníuhljómsveit Íslands hafa undirritað samning um að VÍS verði einn af aðalstyrktaraðilum hljómsveitarinnar næstu þrjú starfsárin. Það voru Guðmudur Örn Gunnarsson forstjóri VÍS og Sigurður Nordal framkvæmdastjóri Sinfóníuhljómsveitarinnar sem undirrituðu samstarfssamninginn sem gildir til ársins 2013.

Lesa meira
 

Tónverk til flutnings við opnun Hörpu - 16.7.2010

 

Tónlistarhúsið Harpa og Sinfóníuhljómsveit Íslands efna til samkeppni um nýtt tónverk sem frumflutt verður við opnunarhátíð Hörpu í maí 2011.

 

Miðað er við að tónverkið sé 5-10 mínútur að lengd og skal það samið fyrir sinfóníuhljómsveit (að hámarki 3.3.3.3. 4.3.3.1, 3slv + pákur, píanó/selesta, harpa, strengir). Verkið skal hæfa tilefninu og er mælst til þess að höfundar notfæri sér hin ýmsu fjölbreyttu litbrigði sinfóníuhljómsveitarinnar.

 

Verðlaunafé er kr. 1.000.000.

Lesa meira
 

Harpa opnar 4. maí 2011 - 30.6.2010

Harpa verður formlega opnuð þann 4. maí 2011með tónleikum Sinfóníuhljómsveitar Íslands undir stjórn Vladimir Ashkenazy. Föstudaginn 13. maí verður glæsileg opnunardagskrá sem sjónvarpað verður beint í Ríkissjónvarpinu. Opnunardagskráin verður kynnt í haust en þar verður boðið upp á fjölbreytta tónlistarviðburði. Vladimir Ashkenazy og Jasper Parrott eru listrænir ráðgjafar Hörpu auk Listráðs Hörpu.

Lesa meira
 

Óperuveisla Kristins 5. júní - Uppselt - 25.5.2010

Varla hefur nokkur íslenskur óperusöngvari náð jafn langt í sínu fagi og Kristinn Sigmundsson, sem er fastagestur í virtustu óperuhúsum heims og fær hvarvetna mikið lof fyrir flutning sinn. Nýlega söng hann hlutverk Ochs baróns í Rósariddaranum við Metropolitan-óperuna. Tónleikarnir eru í samvinnu við Listahátíð í Reykjavík og fara fram í Háskólabíói laugardaginn 5. júní kl. 17.  Lesa meira
 

Prufuspil í Ungsveitina - 12.5.2010

Þessa dagana standa yfir prufuspil í Ungsveit Sinfóníuhjómsveitar Íslands. Alls koma 115 tónlistarnemendur í prufuspil, flestir á aldrinum 12-22 ára. Alls verða 80 þeirra valin til þátttöku í sveitinni. Í prufuspilinu þarf hver nemandi að leika undirbúið verk að eigin vali #um 5 mínútur að lengd# og valda staði úr 4. sinfóníu Tsjajkovskíjs.  Dómnefndir eru skipaðar leiðandi hljóðfæraleikurum úr Sinfóníuhljómsveit Íslands,og í prufuspilunum leika nemendur á bak við skerm til þess að tryggja algjört hlutleysi þegar kemur að úrskurði dómnefndanna. Lesa meira
 

Vinafélagskynning og aðalfundur 6. maí - 5.5.2010

Vinafélag Sinfóníuhljómsveitar Íslands heldur tónleikakynningu á undan Sinfóníutónleikum fimmtudagskvöldið 6. maí nk. Árni Heimir Ingólfsson tónlistarstjóri SÍ fjallar um Vorsinfóníuna eftir Schumann og píanókonsert nr. 1 eftir Brahms, auk þess sem hann segir frá því sem ber hæst á næsta starfsári hljómsveitarinnar. Kynningin fer fram í Safnaðarheimili Neskirkju og hefst kl. 18. Hægt er að kaupa ljúffenga súpu á 1500 kr. Allir eru velkomnir.

Aðalfundur Vinafélags SÍ verður haldinn fyrir kynninguna og hefst hann kl. 17.30.

Lesa meira
 

SÍ fær 5 stjörnur hjá tónlistartímariti BBC - 21.4.2010

Kominn er á markað þriðji hljómdiskurinn í útgáfuröð breska plötuforlagsins Chandos þar sem Sinfóníuhljómsveit Íslands flytur tónverk eftir Vincent d'Indy. Á diskinum er að finna þriðju sinfóníu tónskáldsins auk smærri verka, meðal annars Choral Varié fyrir saxófón og hljómsveit, þar sem Sigurður Flosason fer með einleikshlutverkið. Stjórnandi á diskinum er Rumon Gamba, aðalstjórnandi SÍ.

Lesa meira
 

Á sjötta þúsund gestir sáu Maxímús Músíkús! - 21.4.2010

Sinfóníuhljómsveit Íslands hélt ferna leikskólatónleika 16. og 17. apríl fyrir tæplega 4000 börn. Laugardaginn 17. apríl var svo uppselt á tvenna fjölskyldutónleika kl. 14 og 17.

Lesa meira
 

Kynning - Dafnis og Klói 25/03 - 24.3.2010

 Árni Heimir Ingólfsson tónlistarfræðingur og tónlistarstjóri SÍ heldur fræðandi og skemmtilegan fyrirlestur um verkin á tónleikunum á súpufundi sem haldin er á Kaffitorginu í Safnaðarheimili Neskirkju kl. 18.00 á tónleikadag. 
Aðgangur er ókeypis - allir velkomnir.
Þeir sem vilja geta keypt ljúffenga súpu á aðeins 1.500 krónur.

Lesa meira
 

Súpufundur á undan Mahler - 17.3.2010

Árni Heimir Ingólfsson tónlistarfræðingur og tónlistarstjóri SÍ heldur fræðandi og skemmtilegan fyrirlestur um verkin á afmælistónleikunum á súpufundi sem haldin er á Kaffitorginu í Safnaðarheimili Neskirkju kl. 18.00 á tónleikadag. 


Aðgangur er ókeypis - allir velkomnir.


Þeir sem vilja geta keypt ljúffenga súpu á aðeins 1.500 krónur.

Lesa meira
 

Skráðu þig á póstlistann - Bókarverðlaun - 25.11.2009

Skráðu þig á póstlistann okkar og fáðu reglulegar fréttir af starfi hljómsveitarinnar og óvænt tilboð. 17. desember verða þrjú netföng dregin út og fá þeir heppnu bókina  Líf í tónum sem  er ný ævisaga Jóns Leifs rituð af Árna Heimi, tónlistarfræðingi og tónlistarstjóra SÍ.

Lesa meira
 

Vinafélagskynning 19. nóvember - 19.11.2009

Árni Heimir Ingólfsson tónlistarfræðingur og tónlistarstjóri SÍ kynnir verkin sem á leikin verða á tónleikum kvöldsins, píanókonsertinn eftir Schumann og Sinfóníu nr. 4 eftir Brahms. Hann rekur tilurð tónlistarinnar, segir frá örlagaríkri vináttur tónskáldanna og ást þeirra á Clöru Schuman.

Lesa meira
 

Úrslit í einleikarakeppni SÍ og LHÍ - 4.11.2009

Samkeppni Listaháskólans og SÍ um að fá að koma fram með Sinfóníuhljómsveit Íslands á tónleikum ungra einleikara 14. janúar 2010 fór fram í Háskólabíói 2. og 3. nóvember. Alls tóku ellefu nemendur þátt og dómnefnd úrskurðaði tvo þeirra hæfa til að koma fram á tónleikunum með SÍ. Þeir eru: Helga Svala Sigurðardóttir, flautuleikari og Matthías Sigurðsson, klarínettuleikari. Bæði eru þau nemendur við Tónlistarskólann í Reykjavík.

Lesa meira
 

Svarthöfði og Sinfónían á CNN - 26.10.2009

Enginn annar en Svarthöfði úr Stjörnustríði steig á svið og stjórnaði Sinfóníuhljómsveit Íslands. Myndskeið af tónleikunum hefur ratað inn á vefsvæði CNN sjónvarpsstöðvarinnar.

Myndskeiðið á CNN


Lesa meira
 

Áskrifendum fjölgar um 40% - 15.10.2009

Sextugasta starsárið hefur farið vel af stað hjá Sinfóníuhljómsveit Íslands. Sala áskriftakorta hefur farið fram úr björtustu vonum og hefur áskrifendum okkar fjölgað um 40% frá síðasta starfsári og hafa þeir aldrei verið fleiri. Lesa meira
 

Skólabörnum boðið á tónleika - 8.10.2009

Sinfóníuhljómsveit Íslands býður grunnskólabörnum í  4-7 bekk á tónleika í Háskólabíói 8. og 9. október.

Á  tónleikunum mun Sinfóníuhljómsveitin flytja Eldfuglinn eftir Ígor Stavinskíj. Rumon Gamba aðalhjómsveitarstjóri hljómsveitarinnar mun halda um sprotann og Halldóra Geirharðsdóttir leikkona er sögumaður.

Lesa meira
 

Íslensk tónlistarsaga í Harvard háskóla - 6.10.2009

Árni Heimir Ingólfsson, tónlistarstjóri SÍ, hélt fyrirlestur um íslenska tónlist við Harvard-háskóla laugardaginn 3. október síðastliðinn. Fyrirlesturinn bar yfirskriftina „Echoes from the Periphery: Rask 98, Modal Change, and Oral Transmission in 17th-century Iceland“ og var hluti ráðstefnu sem haldin var til heiðurs Thomas Kelly, sem er prófessor í miðaldatónlist við Harvard.

Lesa meira
 

Fullt hús hjá Ungsveit SÍ - 27.9.2009

Ungsveit SÍ flutti hina magnþrungnu fimmtu sinfóníu Sjostakovitsj undir stjórn Rumons Gamba á tónleikum í Háskólabíói laugardaginn 26. september. Góð mæting var á tónleikana og stemmningin var frábær á þessum fyrstu tónleikum Ungsveitarinnar.

Lesa meira
 

Sinfónían hljóðritar fyrir Chandos - 23.9.2009

Sinfóníuhljómsveit Íslands hljóðritaði þriðja geisladisk sinn með verkum franska tónskáldsins Vincent d'Indy fyrir Chandos-útgáfuna nú um miðjan september. Eins og áður stýrði Rumon Gamba hljómsveitinni, en auk þess lék Sigurður Flosason einleik á saxófón í verkinu Choral varié.  Einnig var hljóðrituð þriðja sinfónía tónskáldsins, auk tveggja smærri hljómsveitarverka.

Lesa meira
 

Opið hús laugardaginn 5. september - 22.7.2009

Tónleikar með Ashkenazy og opin æfing með Maxímús. Allir velkomnir og frítt inn.

Nú er sextugasta starfsár Sinfóníuhljómsveitar Íslands að hefjast og við bjóðum öllum á opið hús í Háskólabíói laugardaginn 5. september. Efnisskrá starfsársins verður kynnt og börnum og fullorðnum skemmt með tónlist og uppákomum.

Lesa meira
 

Næstu skref - 23.10.2008

 

Sumarlokun - 30.6.2008

 

Opin æfing - 28.9.2007

 


Aðalstyrktaraðilar

Borgun VÍS Morgunblaðið

Þetta vefsvæði byggir á Eplica