Júní 2010

júní 2010

(Sleppa dagatali)
Þ M F F L S M Þ M F F L S M Þ M F F L S M Þ M F F L S M Þ M
1 2 3 4 5 6 7 8 9 10 11 12 13 14 15 16 17 18 19 20 21 22 23 24 25 26 27 28 29 30

Fréttasafn

band308c

Sinfóníuhljómsveitin fer í jólaheimsóknir - 15.12.2010

Þessa dagana fer Sinfóníuhjómsveit Íslands í jólaheimsóknir á sjúkrahús og hjúkrunarheimili á höfuðborgarsvæðinu. Hljómsveitin skiptir sér þá upp í minni strengjasveitir og blásarahópa sem fara á milli staða og leika létta og ljúfa jólatónlist. Farið hefur verið í þessar jólaheimsóknir árlega frá árinu 1985 og er þeirra beðið með eftirvæntingu jafnt af hjómsveitarmeðlimum og þeim sem á hlýða.
Lesa meira
 
tofra_listi

Fimm vinningshafar -Töfraflautan - 6.12.2010

Í kjölfar skóla- og Tónsprotatónleika í október síðastliðnum, þar sem Töfraflauta Mozarts var flutt í styttri útgáfu, efndi Sinfóníuhljómsveit Íslands til samkeppni um tónleikaumfjöllun meðal ungra tónleikagesta.

Fimm vinningshafar hafa verið valdir úr þeim sem sendu inn tónleikaumfjöllun. Vinningshafar fá tvo miða á jólatónleika Sinfóníunnar 17. og 18. desember næstkomandi. Sinfónían þakkar öllum nemendum fyrir frábæra þátttöku og vonast til að sjá ykkur aftur á Sinfóníutónleikum sem fyrst.

Lesa meira
 
Kaufmann_listi

Jonas Kaufmann á Listahátið í vor - 3.12.2010

Þýski tenórinn Jonas Kaufmann syngur með Sinfóníuhljómsveit Íslands á tónleikum á Listhátíð 21. maí 2011. Tónleikarnir eru samstarfsverkefni Listahátíðar í Reykjavík, Sinfóníuhljómsveitar Íslands og Hörpu. Jonas Kaufmann er einn frægasti óperusöngvari samtímans og hefur hlotið einróma lof fyrir flutning sinn í öllum helstu óperuhúsum heims. Kaufmann er fæddur í München í Þýskalandi árið 1969 og hóf feril sinn hjá Staatstheater Saarbrucken árið 1994. Síðan hefur hann sungið m.a. við Metropolitan-óperuna, Parísaróperuna, og við tónlistarhátíðirnar í Bayreuth og Salzburg. Nýverið hlaut hann mikið lof gagnrýnenda fyrir túlkun sína á Don José í Carmen og Cavaradossi í Toscu Puccinis í Covent Garden.

Lesa meira
 
maxi3_listi

Maxímús í iPhone! - 3.12.2010

Hugbúnaðarhúsið Fancy Pants Global hefur gefið út tölvuleikinn Maximus Musicus fyrir iPhone, iPad og iPod Touch. Leikurinn er byggður á vinsælum barnabókum Hallfríðar Ólafsdóttur og Þórarins Más Baldurssonar um forvitnu og tónelsku músina Maxímús Músíkús þar sem hann fræðist um heim tónlistarinnar og hljóðfæranna. Leikurinn samanstendur af  sjö smáleikjum sem koma inn á mismunandi þætti tónlistar og er unninn í nánu samstarfi við höfunda og aðstandendur músarinnar, Maximus Musicus ehf.

Lesa meira
 

Tónleikakynning fyrir Mahler 02.12. kl.18 - 30.11.2010

Vinafélag Sinfóníunnar stendur fyrir tónleikakynningu í safnaðarheimili Neskirkju fimmtudaginn 2. desember kl. 18. Árni Heimir Ingólfsson tónlistarstjóri SÍ mun fjalla í tali og tónum um hina stórbrotnu 5. Sinfóníu  Mahlers, sem er samin fyrir risavaxna hljómsveit með stækkuðum blásara- og slagverksdeildum

Lesa meira
 

Úrslit í einleikarakeppni SÍ og LHÍ - 30.11.2010

Einleikarakeppnin í ár fór fram í Háskólabíói 31. október síðastliðinn. Sjö nemendur tóku þátt í keppninni, fjórir söngvarar og þrír hljóðfæraleikarar. Dómnefnd valdi þau Andra Björn Róbertsson, söngvara, Birgi Þórisson, píanóleikara og Jane Ade Sutarjo, píanóleikara til að koma fram á tónleikum Sinfóníuhljómsveitar Íslands á tónleikum 13.  janúar kl. 19.30. Hljómsveitarstjóri er Bernharður Wilkinson. Lesa meira
 
Gudny_Gudmundsdottir_CD

Guðný Guðmundsdóttir – nýr hljómdiskur - 24.11.2010

Kominn er út tvöfaldur hljómdiskur með einleik Guðnýjar Guðmundóttur fiðluleikara með Sinfóníuhljómsveit Íslands í fjórum einleikskonsertum.  Auk fiðlukonserta eftir Edward Elgar og Benjamin Britten leikur Guðný tvo konserta eftir íslensk tónskáld með austurrískar rætur, Herbert H. Ágústsson og Pál P. Pálsson. Upptökurnar eru frá árunum 1992 – 2001, en öll voru verkin frumflutt á Íslandi af Guðnýju og er hún sú eina sem hefur leikið opinberleg íslensku einleiksverkin.

Lesa meira
 
imageCA5XW72L

Mynd- og hljóðdiskur með Hjaltalín og Sinfó - 23.11.2010

Hjaltalín og Sinfóníuhljómsveit Íslands héldu saman tónleika í Háskólabíói sumarið 2010. Óhætt er að fullyrða að tónleikarnir slógu rækilega í gegn því salurinn var meira en troðfullur á þremur töfrandi tónleikum, þar sem hvert sæti var löngu uppselt.

Lesa meira
 

Tónleikakynning 18. nóvember - 15.11.2010

Vinafélag SÍ stendur fyrir tónleikakynningu í safnaðarheimili Neskirkju fimmtudaginn 18. nóvember kl. 18. Árni Heimir Ingólfsson tónlistarstjóri SÍ mun fjalla um píanókonsert í d-moll eftir Mozart og Sinfóníu nr. 1 eftir Beethoven í tali og tónum, og leitast við að útskýra hvernig snilld þessara tveggja meistara birtist í verkum þeirra.

Lesa meira
 
chaplin_kid_listi

Chaplin - Maðurinn á bak við snilldarverkin - 11.11.2010

 

Charles Spencer Chaplin er einn af helstu frumkvöðlum kvikmyndanna og skipar hann sér á bekk með Edwin S. Porter og David Wark Griffith, en kvikmyndir hans eru fyrir löngu orðin viðurkennd listaverk og margar þeirra eru frægustu perlur kvikmyndasögunnar, hvort sem um er að ræða þöglar myndir eða talmyndir. 

Lesa meira
 
palli_og_sinfo_listi

Páll Óskar & Sinfó - frábærar viðtökur - 7.11.2010

Sinfóníuhljómsveit Íslands þakkar hreint ótrúlegar viðtökur síðustu daga og Palla fyrir frábært samstarf. Uppselt var á ferna tónleika Páls Óskars og Sinfóníuhljómsveitar Íslands enda er þar á ferð einn ástsælasti poppari þjóðarinnar. Páll Óskar og Sinfó munu endurtaka tónleikana í Hörpu á næsta starfsári, þannig að þeir sem misstu af þeim (og hinir sem vilja koma aftur) geta farið að hlakka til.

Lesa meira
 
thorunn_osk_listi

Víóluleikarinn sem þorir, getur og vill - 28.10.2010

Tónleikar Sinfóníuhljómsveitar Íslands að þessu sinni eru að mörgu leyti mjög sérstakir. Ein ástæðan er sú að á tónleikunum kveður Guðný Guðmundsdóttir sveitina en hún á að baki 36 ára farsælt starf með hljómsveitinni.

Lesa meira
 
gudny_listi

Konsertmeistari kveður hjómsveitina - 28.10.2010

Tónleikarnir í kvöld eru þeir síðustu sem Guðný Guðmundsdóttir leikur sem konsertmeistari Sinfóníuhljómsveitar Íslands. Ekki þarf að fara mörgum orðum um ómetanlegt framlag Guðnýjar til Sinfóníuhljómsveitarinnar og íslensks tónlistarlífs.


Í 36 ár hefur hún leitt hljómsveitina úr sæti konsertmeistara, jafnframt því sem hún hefur skapað hljómsveitinni bjarta framtíð sem framúrskarandi kennari. Þá hefur Guðný reglulega komið fram sem einleikari með Sinfóníuhljómsveitinni og frumflutt fjölmarga fiðlukonserta hér á landi, íslenska og erlenda.

Lesa meira
 
tofra_listi

Skólabörnum boðið á Töfraflautuna - 20.10.2010

Sinfónhljómsveit Íslands býður skólabörnum á tónleika þar sem flutt verður Ævintýrið um töfraflautuna. Það er álit margra að Töfraflautan sé einhver fullkomnasta ópera sem samin hefur verið. Þar kemur bæði til stórfengleg tónlist Mozarts og skemmtilegt ævintýri þar sem kennir margra grasa. Lesa meira
 

Indira (Bess) í viðtali við Menningarpessuna - 7.10.2010

"Ég held að Bess sé flókin og viðkvæm og á vissan hátt má sjá hana í neikvæðu ljósi.  Hún er brotin og Gershwin gefur henni ekki sína eigin aríu, eins og langflestar kvenhetjur óperubókmenntana fá, af ástæðu."

Lesa meira
 

Ný stjórn Sinfóníuhljómsveitarinnar - 5.10.2010

Mennta- og menningarmálaráðherra hefur skipað nýja stjórn Sinfóníuhljómsveitar Íslands til næstu fjögurra ára.
Stjórnin er þannig skipuð:

Guðni Tómasson, skipaður formaður af mennta- og menningarmálaráðuneyti
Anna María Urbancic, tilnefnd af mennta- og menningarmálaráðuneyti
Margrét Kristín Blöndal, tilnefnd af Reykjavíkurborg
Hrafnkell Orri Egilsson, tilnefndur af Starfmannafélagi Sinfóníuhljómsveitar Íslands
Sigursveinn Kr. Magnússon, tilnefndur af fjármálaráðuneyti

Lesa meira
 

Ungsveit Sinfóníunnar að störfum - 23.9.2010

Sinfóníuhljómsveit Íslands efnir í annað sinn til hljómsveitarnámskeiðs fyrir tónlistarnema. Markmiðið er að gefa íslenskum tónlistarnemum tækifæri til að kynnast hinum sinfóníska heimi undir leiðsögn þeirra fremst í greininni. Verkefni Ungsveitarinnar að þessu sinni verða Nótt á nornagnípu eftir Músorgskíj og Sinfónía nr. 4 eftir Tsjajkovskíj. Rumon Gamba leiðbeinir á námskeiðinu ásamt hljóðfæraleikurum úr Sinfóníuhljómsveitinni.  Náðseiðið er dagana 18. september - 2. Október og er  nemendum að kostnaðarlausu.  Því líkur með tónleikunum Ungsveitarinnar í Háskóabíói laugardaginn 2. október. Kl. 17.00.

Lesa meira
 

Margt um manninn á opnu húsi - 5.9.2010

Sinfóníuhljómsveit Íslands bauð gestum og gangandi í opið hús laugardaginn 4. september. Húsfylli var í Háskólabíói en þar voru ýmsir skemmtilegir atburðir á dagskrá og efnisskrá vetrarins kynnt. Víkingur Heiðar lék einleik með hljómsveitinni og spjallaði við gesti um lífið og listina eftir tónleikana.

Lesa meira
 

Uppselt á Pál Óskar - Aukatónleikar - 2.9.2010

Miðasala á tónleika Páls Óskars með Sinfóníuhljómsveit Íslands, sem verða haldnir í Háskólabíói í nóvember, hófst í gær. Seldist upp á tvenna tónleika á fyrsta degi og símkerfi Sinfóníunnar lá niðri um stund vegna of mikils álags. Lesa meira
 

Almenn miðasala hafin - 1.9.2010

Almenn miðasala er hafin á alla tónleika vetraris í miðsölu okkar og á www.sinfonia.is

Sala áskriftakorta er enn í fullum gangi og hefur hún farið ótrúlega vel af stað. Sala korta stefnir í það að vera mjög mikil og slá öll fyrri sölumet. Það er því um að gera að tryggja sér sæti á tónlistarveislu vetrarins sem fyrst. Lesa meira
 

VÍS gerist aðalstyrktaraðili SÍ - 24.8.2010

VÍS og Sinfóníuhljómsveit Íslands hafa undirritað samning um að VÍS verði einn af aðalstyrktaraðilum hljómsveitarinnar næstu þrjú starfsárin. Það voru Guðmudur Örn Gunnarsson forstjóri VÍS og Sigurður Nordal framkvæmdastjóri Sinfóníuhljómsveitarinnar sem undirrituðu samstarfssamninginn sem gildir til ársins 2013.

Lesa meira
 

Tónverk til flutnings við opnun Hörpu - 16.7.2010

 

Tónlistarhúsið Harpa og Sinfóníuhljómsveit Íslands efna til samkeppni um nýtt tónverk sem frumflutt verður við opnunarhátíð Hörpu í maí 2011.

 

Miðað er við að tónverkið sé 5-10 mínútur að lengd og skal það samið fyrir sinfóníuhljómsveit (að hámarki 3.3.3.3. 4.3.3.1, 3slv + pákur, píanó/selesta, harpa, strengir). Verkið skal hæfa tilefninu og er mælst til þess að höfundar notfæri sér hin ýmsu fjölbreyttu litbrigði sinfóníuhljómsveitarinnar.

 

Verðlaunafé er kr. 1.000.000.

Lesa meira
 

Harpa opnar 4. maí 2011 - 30.6.2010

Harpa verður formlega opnuð þann 4. maí 2011með tónleikum Sinfóníuhljómsveitar Íslands undir stjórn Vladimir Ashkenazy. Föstudaginn 13. maí verður glæsileg opnunardagskrá sem sjónvarpað verður beint í Ríkissjónvarpinu. Opnunardagskráin verður kynnt í haust en þar verður boðið upp á fjölbreytta tónlistarviðburði. Vladimir Ashkenazy og Jasper Parrott eru listrænir ráðgjafar Hörpu auk Listráðs Hörpu.

Lesa meira
 

Óperuveisla Kristins 5. júní - Uppselt - 25.5.2010

Varla hefur nokkur íslenskur óperusöngvari náð jafn langt í sínu fagi og Kristinn Sigmundsson, sem er fastagestur í virtustu óperuhúsum heims og fær hvarvetna mikið lof fyrir flutning sinn. Nýlega söng hann hlutverk Ochs baróns í Rósariddaranum við Metropolitan-óperuna. Tónleikarnir eru í samvinnu við Listahátíð í Reykjavík og fara fram í Háskólabíói laugardaginn 5. júní kl. 17. 

Lesa meira
 

Prufuspil í Ungsveitina - 12.5.2010

Þessa dagana standa yfir prufuspil í Ungsveit Sinfóníuhjómsveitar Íslands. Alls koma 115 tónlistarnemendur í prufuspil, flestir á aldrinum 12-22 ára. Alls verða 80 þeirra valin til þátttöku í sveitinni. Í prufuspilinu þarf hver nemandi að leika undirbúið verk að eigin vali #um 5 mínútur að lengd# og valda staði úr 4. sinfóníu Tsjajkovskíjs.  Dómnefndir eru skipaðar leiðandi hljóðfæraleikurum úr Sinfóníuhljómsveit Íslands,og í prufuspilunum leika nemendur á bak við skerm til þess að tryggja algjört hlutleysi þegar kemur að úrskurði dómnefndanna.

Lesa meira
 

Vinafélagskynning og aðalfundur 6. maí - 5.5.2010

Vinafélag Sinfóníuhljómsveitar Íslands heldur tónleikakynningu á undan Sinfóníutónleikum fimmtudagskvöldið 6. maí nk. Árni Heimir Ingólfsson tónlistarstjóri SÍ fjallar um Vorsinfóníuna eftir Schumann og píanókonsert nr. 1 eftir Brahms, auk þess sem hann segir frá því sem ber hæst á næsta starfsári hljómsveitarinnar. Kynningin fer fram í Safnaðarheimili Neskirkju og hefst kl. 18. Hægt er að kaupa ljúffenga súpu á 1500 kr. Allir eru velkomnir.

Aðalfundur Vinafélags SÍ verður haldinn fyrir kynninguna og hefst hann kl. 17.30.

Lesa meira
 

SÍ fær 5 stjörnur hjá tónlistartímariti BBC - 21.4.2010

Kominn er á markað þriðji hljómdiskurinn í útgáfuröð breska plötuforlagsins Chandos þar sem Sinfóníuhljómsveit Íslands flytur tónverk eftir Vincent d'Indy. Á diskinum er að finna þriðju sinfóníu tónskáldsins auk smærri verka, meðal annars Choral Varié fyrir saxófón og hljómsveit, þar sem Sigurður Flosason fer með einleikshlutverkið. Stjórnandi á diskinum er Rumon Gamba, aðalstjórnandi SÍ.

Lesa meira
 

Á sjötta þúsund gestir sáu Maxímús Músíkús! - 21.4.2010

Sinfóníuhljómsveit Íslands hélt ferna leikskólatónleika 16. og 17. apríl fyrir tæplega 4000 börn. Laugardaginn 17. apríl var svo uppselt á tvenna fjölskyldutónleika kl. 14 og 17.

Lesa meira
 

Kynning - Dafnis og Klói 25/03 - 24.3.2010

 Árni Heimir Ingólfsson tónlistarfræðingur og tónlistarstjóri SÍ heldur fræðandi og skemmtilegan fyrirlestur um verkin á tónleikunum á súpufundi sem haldin er á Kaffitorginu í Safnaðarheimili Neskirkju kl. 18.00 á tónleikadag. 
Aðgangur er ókeypis - allir velkomnir.
Þeir sem vilja geta keypt ljúffenga súpu á aðeins 1.500 krónur.

Lesa meira
 

Súpufundur á undan Mahler - 17.3.2010

Árni Heimir Ingólfsson tónlistarfræðingur og tónlistarstjóri SÍ heldur fræðandi og skemmtilegan fyrirlestur um verkin á afmælistónleikunum á súpufundi sem haldin er á Kaffitorginu í Safnaðarheimili Neskirkju kl. 18.00 á tónleikadag. 


Aðgangur er ókeypis - allir velkomnir.


Þeir sem vilja geta keypt ljúffenga súpu á aðeins 1.500 krónur.

Lesa meira
 


Bakhjarlar

VÍS Gamma


Þetta vefsvæði byggir á Eplica