| L | S | M | Þ | M | F | F | L | S | M | Þ | M | F | F | L | S | M | Þ | M | F | F | L | S | M | Þ | M | F | F | L | S | M |
|---|---|---|---|---|---|---|---|---|---|---|---|---|---|---|---|---|---|---|---|---|---|---|---|---|---|---|---|---|---|---|
| 1 | 2 | 3 | 4 | 5 | 6 | 7 | 8 | 9 | 10 | 11 | 12 | 13 | 14 | 15 | 16 | 17 | 18 | 19 | 20 | 21 | 22 | 23 | 24 | 25 | 26 | 27 | 28 | 29 | 30 | 31 |
Varla hefur nokkur íslenskur óperusöngvari náð jafn langt í sínu fagi og Kristinn Sigmundsson, sem er fastagestur í virtustu óperuhúsum heims og fær hvarvetna mikið lof fyrir flutning sinn. Nýlega söng hann hlutverk Ochs baróns í Rósariddaranum við Metropolitan-óperuna. Tónleikarnir eru í samvinnu við Listahátíð í Reykjavík og fara fram í Háskólabíói laugardaginn 5. júní kl. 17.
Lesa meiraÞessa dagana standa yfir prufuspil í Ungsveit Sinfóníuhjómsveitar Íslands. Alls koma 115 tónlistarnemendur í prufuspil, flestir á aldrinum 12-22 ára. Alls verða 80 þeirra valin til þátttöku í sveitinni. Í prufuspilinu þarf hver nemandi að leika undirbúið verk að eigin vali #um 5 mínútur að lengd# og valda staði úr 4. sinfóníu Tsjajkovskíjs. Dómnefndir eru skipaðar leiðandi hljóðfæraleikurum úr Sinfóníuhljómsveit Íslands,og í prufuspilunum leika nemendur á bak við skerm til þess að tryggja algjört hlutleysi þegar kemur að úrskurði dómnefndanna.
Lesa meiraVinafélag Sinfóníuhljómsveitar Íslands heldur tónleikakynningu á undan Sinfóníutónleikum fimmtudagskvöldið 6. maí nk. Árni Heimir Ingólfsson tónlistarstjóri SÍ fjallar um Vorsinfóníuna eftir Schumann og píanókonsert nr. 1 eftir Brahms, auk þess sem hann segir frá því sem ber hæst á næsta starfsári hljómsveitarinnar. Kynningin fer fram í Safnaðarheimili Neskirkju og hefst kl. 18. Hægt er að kaupa ljúffenga súpu á 1500 kr. Allir eru velkomnir.
Aðalfundur Vinafélags SÍ verður haldinn fyrir kynninguna og hefst hann kl. 17.30.
Lesa meira