| M | Þ | M | F | F | L | S | M | Þ | M | F | F | L | S | M | Þ | M | F | F | L | S | M | Þ | M | F | F | L | S | M | Þ |
|---|---|---|---|---|---|---|---|---|---|---|---|---|---|---|---|---|---|---|---|---|---|---|---|---|---|---|---|---|---|
| 1 | 2 | 3 | 4 | 5 | 6 | 7 | 8 | 9 | 10 | 11 | 12 | 13 | 14 | 15 | 16 | 17 | 18 | 19 | 20 | 21 | 22 | 23 | 24 | 25 | 26 | 27 | 28 | 29 | 30 |
Vinafélag Sinfóníunnar stendur fyrir tónleikakynningu í safnaðarheimili Neskirkju fimmtudaginn 2. desember kl. 18. Árni Heimir Ingólfsson tónlistarstjóri SÍ mun fjalla í tali og tónum um hina stórbrotnu 5. Sinfóníu Mahlers, sem er samin fyrir risavaxna hljómsveit með stækkuðum blásara- og slagverksdeildum
Lesa meira
Kominn er út tvöfaldur hljómdiskur með einleik Guðnýjar Guðmundóttur fiðluleikara með Sinfóníuhljómsveit Íslands í fjórum einleikskonsertum. Auk fiðlukonserta eftir Edward Elgar og Benjamin Britten leikur Guðný tvo konserta eftir íslensk tónskáld með austurrískar rætur, Herbert H. Ágústsson og Pál P. Pálsson. Upptökurnar eru frá árunum 1992 – 2001, en öll voru verkin frumflutt á Íslandi af Guðnýju og er hún sú eina sem hefur leikið opinberleg íslensku einleiksverkin.
Lesa meira
Hjaltalín og Sinfóníuhljómsveit Íslands héldu saman tónleika í Háskólabíói sumarið 2010. Óhætt er að fullyrða að tónleikarnir slógu rækilega í gegn því salurinn var meira en troðfullur á þremur töfrandi tónleikum, þar sem hvert sæti var löngu uppselt.
Lesa meiraVinafélag SÍ stendur fyrir tónleikakynningu í safnaðarheimili Neskirkju fimmtudaginn 18. nóvember kl. 18. Árni Heimir Ingólfsson tónlistarstjóri SÍ mun fjalla um píanókonsert í d-moll eftir Mozart og Sinfóníu nr. 1 eftir Beethoven í tali og tónum, og leitast við að útskýra hvernig snilld þessara tveggja meistara birtist í verkum þeirra.
Lesa meira
Charles Spencer Chaplin er einn af helstu frumkvöðlum kvikmyndanna og skipar hann sér á bekk með Edwin S. Porter og David Wark Griffith, en kvikmyndir hans eru fyrir löngu orðin viðurkennd listaverk og margar þeirra eru frægustu perlur kvikmyndasögunnar, hvort sem um er að ræða þöglar myndir eða talmyndir.
Lesa meira
Sinfóníuhljómsveit Íslands þakkar hreint ótrúlegar viðtökur síðustu daga og Palla fyrir frábært samstarf. Uppselt var á ferna tónleika Páls Óskars og Sinfóníuhljómsveitar Íslands enda er þar á ferð einn ástsælasti poppari þjóðarinnar. Páll Óskar og Sinfó munu endurtaka tónleikana í Hörpu á næsta starfsári, þannig að þeir sem misstu af þeim (og hinir sem vilja koma aftur) geta farið að hlakka til.
Lesa meira