| M | F | F | L | S | M | Þ | M | F | F | L | S | M | Þ | M | F | F | L | S | M | Þ | M | F | F | L | S | M | Þ | M | F |
|---|---|---|---|---|---|---|---|---|---|---|---|---|---|---|---|---|---|---|---|---|---|---|---|---|---|---|---|---|---|
| 1 | 2 | 3 | 4 | 5 | 6 | 7 | 8 | 9 | 10 | 11 | 12 | 13 | 14 | 15 | 16 | 17 | 18 | 19 | 20 | 21 | 22 | 23 | 24 | 25 | 26 | 27 | 28 | 29 | 30 |
Dagana 11. og 12. nóvember síðastliðinn fór fram samkeppni Listaháskólans og Sinfóníuhljómsveitar Íslands um þátttöku einleikara eða einsöngvara á tónleikum hljómsveitarinnar þann 12. janúar næstkomandi. Keppnin var ætluð tónlistarnemendum sem eru á bakkalárstigi í sínu námi.
Þáttakendur voru 14 að þessu sinni, fimm hljóðfæraleikarar og níu söngvarar. Sex manna dómnefnd valdi fjóra keppendur. Þeir eru Chrissie Thelma Guðmundsdóttir, fiðluleikari, Elín Arnardóttir, píanóleikari, Hrafnhildur Árnadóttir, söngkona, og Ísak Ríkharðsson, fiðluleikari.
Lesa meiraUna Eyþórsdóttir hefur verið ráðin mannauðsstjóri SÍ frá og með 1. desember nk. og Hjördís Ástráðsdóttir hefur verið ráðin fræðslustjóri SÍ og mun hún hefja störf 1. janúar .
Lesa meira
Í næstu viku býður hljómsveitin gunnskólanemum úr 5-7 bekk á tónleika þar sem hljómsvein kynnir sig og krökkunum gefst tækifæri til að kynnast hljóðfærunum betur. Haldnir veða þrennir tónleikar í Eldborg enda munum við taka á móti allt að 3000 nemendum.
Kynnir á tónleikunum er Halldóra Geirharðsdóttir leikkona en hún hefur einstakt lag á að opna heim tónlistarinnar fyrir börnum, auka upplifun þeirra og ánægju. Hjómsveitarstjóri er Bernharður Wilkinson.
Lesa meiraHljóðfæraleikarar Sinfóníuhljómsveitar Íslands undirrituðu kjarasamning í húsi ríkissáttasemjara nú á áttunda tímanum í kvöld. Verkfall hefur verið afboðað og ljóst að fyrirhugaðir tónleikar á fimmtudag og föstudag verða haldnir.
Lesa meiraKjaraviðræður hljóðfæraleikara Sinfóníuhljómsveitar Íslands og ríkisins sanda nú yfir hjá ríkissáttasemjara og verið er að leita allra leiða svo ekki komi til boðaðra verkfallsaðgerða þann 3. og 4. nóvember næstkomandi.
Hægt er að fylgjast með fréttum af gangi mála hér á vefnum og í fjölmiðlum.
Ef til verkalls kemur verður þeim sem hafa keypt miða á tónleikana boðið að koma á aðra tónleika eða að fá miðana endurgreidda.
Lesa meiraStjórn Sinfóníuhljómsveitar Íslands lýsir yfir þungum áhyggjum af stöðu mála í kjaraviðræðum hljóðfæraleikara Sinfóníuhljómsveitarinnar og ríkisins. Stjórnin hvetur málsaðila til að leita allra leiða svo ekki komi til boðaðra verkfallsaðgerða þann 3. nóvember næstkomandi.
Lesa meiraHljómsveitarnámskeið Ungsveitarinnar mun standa frá laugardeginum 15. október til sunnudagsins 6. nóvember 2011. Þetta er í Þriðja sinn Sinfóníuhljómsveit Íslands heldur námskeiðið og að þessu sinni fer það fram í Hörpu og endar með tónleikum í Eldborg sunnudaginn 6. nóvember kl. 14:00.
Að þessu sinni mun verkefni hljómsveitarinnar vera hin stórbrotna sinfónía nr. 5 eftir Mahler. Svissneski hljómsveitarstjórinn Baldur Brönnimann mun stjórna námskeiðinu en jafnframt munu nemendur njóta leiðsagnar leiðandi hljóðfæraleikara SÍ.
Lesa meira
Nú tekur Sinfóníuhljómsveitin í fyrsta sinn þátt í Iceland Airwave. Á þrennum tónleikum 13. október verða leikin verk eftir Daníel Bjarnason og Valgeri Sigurðsso, auk þess sem einn fremsti nútímatónlistarhópur Bandaríkjanna, ITC, flytur eitt af meistaraverkum mínímalismans, Different Trains eftir Steve Reich.
Kl. 20:00
Valgeir Sigurðsson: Draumalandið
Kl. 21:00
Daníel Bjarnason: Processions, píanókonsert
Daníel Bjarnason: Birting
Einleikari: Víkingur Heiðar Ólafsson
Kl. 22:00
Steve Reich: Different Trains
Einleikarar: ICE (International Contemporary Ensemble) strengjakvartett
Miðaverð er 2.500 kr. og gildir miðinn á alla þrenna tónleikana. Þeir sem kaupa sig inn á Airwaves fá ókeypis aðgang.
Mánudagskvöldið 26. september stendur Vinafélag Sinfóníuhljómsveitar Íslands fyrir fyrirlestri Árna Heimis Ingólfssonar, "Allt sem þú vildir vita um klassíska tónlist en þorðir ekki að spyrja". Í fyrirlestrinum, sem hefst kl. 20 í Kaldalóni í Hörpu, stiklar Árni Heimir á stóru um sögu klassískrar tónlistar, sinfóníuformið, og ólíkar leiðir til þess að njóta sígildrar tónlistar. Kynningin er sérstaklega ætluð þeim sem hafa lítil kynni haft af klassískri tónlist en hafa áhuga á að kynnast þeim töfrum sem hún býr yfir.
Lesa meira
Nýverið var undirritaður samstarfssamningur á milli Sinfóníuhljómsveitar Íslands og GAMMA þar sem GAMMA verður einn af aðalstyrktaraðilum hljómsveitarinnar fram til ársins 2014.
Gísli Hauksson framkvæmdastjóri GAMMA og Sigurður Nordal framkvæmdastjóri Sinfóníuhljómsveitar Íslands undirrituðu samstarfssamninginn.
Sinfóníuhljómsveit Íslands býður á tvenna tónleika á vígsludegi Hörpu á Menningarnótt. Frítt er inn á tónleikana og allir eru velkomnir á meðan húsrúm leyfir. Hægt verður að sækja aðgöngumiða í miðasölu Hörpu á tónleikadegi. Byrjað er að afhenda miða tveimur tímum fyrir tónleika.
Kl. 14:00 - Eldborg
Maxímús Músikús heimsækir hljómsveitina
Kl. 17:00 - Eldborg
Klassík fyrir alla
Bernharður Wilkinsson hljómsveitarstjóri
Föstudaginn 27. janúar 2012 efnir SÍ í annað sinn til svokallaðrar Tónskáldastofu, þar sem valin verða til þátttöku þrjú hljómsveitarverk eftir tónskáld undir 35 ára aldri. Hljómsveitin mun leika verkin undir stjórn Ilans Volkov, og í kjölfarið fá tónskáldin athugasemdir og leiðbeiningar frá hljómsveitarmeðlimum, stjórnanda, og tónskáldinu Hans Abrahamsen sem einnig verður viðstaddur. Með þessu framtaki vonast SÍ til að taka virkari þátt en áður í uppeldi íslenskra hljómsveitartónskálda í fremstu röð.
Lesa meiraSJÓNVARPIÐ sunnudagur 12. júní 2011 kl. 21.45. Upptaka frá tónleikum í Hörpu í byrjun maí. Víkingur Heiðar Ólafsson leikur einleik á píanó og Vladimír Ashkenazí stjórnar Sinfóníuhljómsveit Íslands. Flutt var verkið Velkomin Harpa eftir Þorkel Sigurbjörnsson, píanókonsert eftir Edvard Grieg og Níunda sinfónía Beethovens. Auk þess ræðir Arndís Björk Ásgeirsdóttir við Vladimír Ashkenazí og Víking Heiðar Ólafsson. Stjórn upptöku: Helgi Jóhannesson.
Lesa meiraSinfóníuhljómsveit Íslands býður áskrifendum Litla tónsprotans í heimsókn í ný heimkynni sín í Hörpu þriðjudaginn 31. Maí kl. 16.30.
Lesa meiraVinsamlega athugið að miðasalan er nú flutt í Hörpu og er staðsett í anddyri á jarðhæð. Miðasalan er opin alla daga frá kl.& 12-18 og á tónleikadögum er hún opin fram að tónleikum. Miðasölusíminn er 528-5050.
Lesa meira
Á sunnudaginn verður sérstakur barnadagur í Hörpu. Húsið opnar kl.11:00 og verður fjölbreytt barnadagskrá í gangi allan daginn.
Uppselt er á tvenna barnatónleika með Sinfóníuhljómsveit Íslands og Maxímús Músíkus í Eldborg.
Lesa meiraHarpa heldur upp á barnahátíð sunnudaginn 15. maí þar sem fjöldi viðburða verða í boði fyrir unga tónlistarunnendur. Meðal viðburða eru tvennir tónleikar Sinfóníuhljómsveitar Íslands og Maxímús Músikús, hinnar tónelsku músar sem fengið hefur heimili í Hörpu. Tónleikar Maxímús fara fram í aðalsalnum Eldborg. Þeir eru ætlaðir yngstu börnunum og dagskráin byggist upp á stuttum, þekktum og aðgengilegum verkum. Hver miði á þessa tvennu tónleika Maxímús verður seldur á aðeins 100 kr. Sú upphæð er táknræn fyrir að senn lýkur aldarlangri bið eftir tónlistarhúsi á Íslandi.
Lesa meiraSinfóníuhljómsveit Íslands hefur nú flutt alla starfsemi sína í Hörpu, tónlistar og ráðstefnuhúsið í Reykjavík.
Síminn á skrifstofu hljómsveitarinnar er óbreyttur, 545-2500.
Miðasala fer fram á heimasíðu okkar www.sinfonia.is og á www.harpa.is
Miðasölusíminn er 528-5050
Lesa meiraAuglýst er laus til umsóknar staða tónlistarstjóra (programme director) Sinfóníuhljómsveitar Íslands
frá og með 1. september 2011.
Tónlistarstjóri leggur drög að dagskrá komandi starfsára Sinfóníuhljómsveitarinnar í samráði við verk efnavalsnefnd og gerir tillögur tillögur um hljómsveitarstjóra og aðra listamenn sem fram koma með hljómsveitinni. Tónlistarstjóri heyrir undir framkvæmdastjóra en starfar auk þess náið með aðalhljómsveitarstjóra/ listrænum stjórnanda við að framfylgja listrænni stefnu hans. Tónlistarstjóri hefur umsjón með tónleikaskrá og annast ritun ýmiskonar efnis sem snertir tónleikahald hljómsveitarinnar. Þá sinnir tónlistarstjóri mótun og framkvæmd fræðslustarfs og tónlistaruppeldis á vegum Sinfóníu hljómsveitar Íslands.
Lesa meiraSinfóníuhljómsveit Íslands kvaddi Háskólabíó þann 15. apríl og gekk fylktu liði að Hörpu þar sem fyrsta hljóðprufan var haldin í nýjum tónleikasal. Á leiðinni léku lúðraþeytarar og slagverksleikarar Sinfóníunnar á sín hljóðfæri. Lokatónleikar í Háskólabíói fóru fram kvöldið áður, en þar hefur hljómsveitin frá árinu 1961.
Fyrir skömmu kom á markað nýr hljómdiskur þar sem Sinfóníuhljómsveit Íslands leikur tvö hljómsveitarverk eftir franska tónskáldið Vincent d’Indy. Diskurinn er sá fjórði í útgáfuröð Chandos-forlagsins sem vakið hefur mikla hrifningu. Gagnrýnendur fara fögrum orðum um nýja diskinn, sem var meðal annars valinn diskur maímánaðar hjá breska veftímaritinu MusicWeb. Gagnrýnandi MusicWeb, Dan Morgan, segir að Sinfóníuhljómsveit Íslands sé „fyrsta flokks sveit“ og að varla eigi nokkur eftir að heyra meira sannfærandi flutning en þennan. Lokaorð hans eru að diskurinn sé „algjörlega óflekkuð ánægja“ og hvetur lesendur til að gleðja sig með því að fjárfesta í honum.
Lesa meiraHljómsveitarnámskeið Ungsveitar Sinfóníuhljómsveitar Íslands 2011 mun standa frá laugardeginum 15. október til sunnudagsins 6. nóvember 2011.
Að þessu sinni mun verkefni hljómsveitarinnar vera hin stórbrotna sinfónía nr. 5 eftir Mahler. Svissneski hljómsveitarstjórinn Baldur Brönnimann mun stjórna námskeiðinu sem endar með tónleikum í Eldborg Hörpu, 6. nóvember kl. 14:00.
Prufuspil verða haldin fyrir öll hljóðfæri og munu þau fara fram 6.,14.og 15. júní.
Lesa meira
Það er árviss hefð að á jólatónleikum okkar fái ungur hljóðfæraleikari að leika einleik með hljómsveitinni. Stefnt er að því að halda prufuspil 23. maí. Umsækjendur þurfa að vera á grunnskólaaldri og eiga á prufuspilinu að leika konsertþátt eða annað verk fyrir einleikara eða hljómsveit, ekki lengra en 6 mínútur.
Lesa meiraSinfóníuhljómsveit Íslands heldur fimm leikskólatónleika í þessari viku og á því von á hátt í 4000 börnum í heimsókn í Háskólabíó. Að þessu sinni flytur hljómsveitin hið sígilda ævintýri um Tobba Túbu, eftir George Kleinsinger. Tim Buzbee, túbuleikari Sinfóníunnar er að sjálfsögðu í aðalhlutverki en sögumaður er Trúðurinn Barbara.
Lesa meira
Í ljósi mikils áhuga á opnunartónleikum Sinfóníuhljómsveitar Íslands í Hörpu 4. og 5. maí hefur hljómsveitarstjórinn Vladimir Ashkenazy ákveðið að breyta fyrri áformum sínum svo unnt sé að bæta við þriðju tónleikunum föstudagskvöldið 6. maí.
Áætlað er að tónleikarnir fara í sölu þriðjudaginn 15. mars kl. 12.00 í miðasölu Hörpu Aðalstræti 2, í síma 528 5050, á harpa.is og sinfonia.is. Miði.is vinnur að því að efla miðasölukerfið áður en miðasala á fleiri tónleika í Hörpu hefst til þess að tryggja að kerfið anni álagi. Allir miðar á tónleikana fara í almenna sölu.
Lesa meira
Nær uppselt er á þrenna tónleika Páls Óskar og Sinfó í Hörpu í júní. Vegna þessa gífurlega áhuga hefur verið ákveðið að bæta við tvennum aukatónleikum, miðvikudaginn 8. júní kl. 20.00 og laugardaginn 11. júní kl. 16.00. Miðasala á aukatónleikana hefst í næstu viku.
Lesa meiraMikil eftirspurn var eftir miðum á vordagskrá Sinfóníuhljómsveitar Íslands í Hörpu þegar sala hófst 1. mars. Uppselt er á opnunartónleika hljómsveitarinnar undir stjórn Vladimir Ashkenazy.
Einnig er stutt í að uppselt verði á tónleika þýska óperusöngvarans Jonasar Kaufman á Liatahátíð.
Enn er hægt að tryggja sér sæti á Mahler-veislu 28. maí þar sem Sinfóníuhljómsveit Íslands heldur upp á 100 ára ártíð sinfóníusnillingsins Gustavs Mahler. Lesa meira
ÍMARK, félag íslensks markaðsfólks, hefur tilnefnt auglýsingu Sinfóníuhljómsveitar Íslands til verðlauna í flokki prentauglýsinga. Auglýsingin er hluti af herferð SÍ sem unnin var með auglýsingastofunni Jónsson og LeMack's. Keppninni um Lúðurinn, Íslensku auglýsingaverðlaunin, er ætlað að vekja athygli á vel gerðum auglýsingum og auglýsingaefni og veita aðstandendum þess verðskuldaða athygli.
Lesa meira
Það er skammt stórra högga á milli í útrás Sinfóníunnar og músíkölsku músarinnar Maxa. Nú fyrir skemmstu kom fyrsta bókin um Maxa, Maxímús Músíkús heimsækir hljómsveitina, út í Þýskalandi og Ástralíu. Með bókunum fylgir geisladiskur sem ekki einungis inniheldur söguna lesna með öllum þeim umhverfishljóðum og tónlist sem henni tilheyrir, heldur einnig flutning Sinfóníuhljómsveitar Íslands á verkum eftir Ravel, Copland og Sigvalda Kaldalóns að ógleymdu Laginu hans Maxa sem er, eins og sagan, eftir leiðandi flautuleikara hljómsveitarinnar, Hallfríði Ólafsdóttur.
Lesa meiraVinafélag SÍ stendur fyrir tónleikakynningu í safnaðarheimili Neskirkju fimmtudaginn 3. febrúar kl. 18. Árni Heimir Ingólfsson tónlistarstjóri SÍ mun fjalla um verkin á efnisskrá tónleika kvöldsins. Hann rekur tilurð tónlistarinnar á áhugaverðan og aðgengilegan hátt með tóndæmum og frásögn.
Kynningarnar njóta mikilla vinsælda meðal tónleikagesta og margir hafa á orði að þær séu ómissandi hluti af tónleikaupplifuninni. Hægt er að kaupa súpu og kaffi á undan kynningunni, sem lýkur um kl. 19.
Allir eru velkomnir.
Á tónleikum Sinfóníuhljómsveitar Íslands á Myrkum músíkdögum á sl. fimmtu dagskvöld tilkynnt um verðlaunahafa í samkeppni um nýtt íslenskt tónverk sem Harpa efndi til í samstarfi við Sinfóníuhljómsveit Íslands. Verðlaunahafi er Haukur Tómasson og verkið verður frumflutt á opnunarhátíð Hörpu þann 13. maí næstkomandi. Haukur fær að verðlaunum eina milljón króna sem Harpa leggur til.
Lesa meira
Sinfóníuhljómsveit Íslands sendi í dag frá sér tilkynningu um ráðningu ísraelska hljómsveitarstjórans Ilan Volkov sem aðalhljómsveitarstjóra og listræns stjórnanda til þriggja starfsára. Volkov tekur við stöðunni í september 2011, við upphaf fyrsta starfsárs Sinfóníuhljómsveitar Íslands í nýja tónlistarhúsinu Hörpu..
Lesa meira
Frestur til að skila inn tónverkum í samkeppni um verk til flutnings á opnunarhátíð Hörpu 13. maí nk. rann út föstudaginn 7. janúar. Alls bárust 17 verk í keppnina, öll á bilinu 5-10 mínútur að lengd og samin fyrir sinfóníuhljómsveit.
Fimm manna dómnefnd hefur nú það hlutverk að velja sigurverkið, en höfundur þess hlýtur 1.000.000 kr. í verðlaun.
Í febrúarmánuði efnir Sinfóníuhljómsveitin til sannkallaðrar einleikaraveislu enda koma fjórir frábærir sólistar fram með hljómsveitinni á jafn mörgum tónleikum. Ari Þór Vilhjálmsson hefur vakið mikla athygli fyrir glæsilegan leik sinn undanfarin ár, og flytur nú með hljómsveitinni hinn magnaða fiðlukonsert nr. 1 eftir Dmitrí Sjostakovitsj. Þýsk-japanski sellóleikarinn Danjulo Ishizaka leikur sellókonsert eftir Hafliða Hallgrímsson, staðartónskáld Sinfóníuhljómsveitar Íslands.
Lesa meira