| Þ | M | F | F | L | S | M | Þ | M | F | F | L | S | M | Þ | M | F | F | L | S | M | Þ | M | F | F | L | S | M | Þ | M | F |
|---|---|---|---|---|---|---|---|---|---|---|---|---|---|---|---|---|---|---|---|---|---|---|---|---|---|---|---|---|---|---|
| 1 | 2 | 3 | 4 | 5 | 6 | 7 | 8 | 9 | 10 | 11 | 12 | 13 | 14 | 15 | 16 | 17 | 18 | 19 | 20 | 21 | 22 | 23 | 24 | 25 | 26 | 27 | 28 | 29 | 30 | 31 |
Maxímús Músíkús bjargar ballettinum er þriðja bókin um músina tónelsku sem heillað hefur börn um allan heim. Sögurnar um Maxa hafa verið fluttar á fjölmörgum tónleikum og bækurnar um hann hafa komið út á ensku, þýsku, kóresku og færeysku. Höfundarnir, Hallfríður Ólafsdóttir og Þórarinn Már Baldursson, eru tónlistarmenn og leika með Sinfóníuhljómsveit Íslands. Geisladiskur með tónlist flutt af Sinfóníuhljómsveitinni fylgir bókinni. Tónleikarnir með nýja ævintýrinu eru laugardaginn 19. maí kl. 14 og 17.
Lesa meira
Sinfóníuhljómsveit Íslands býður upp á barnastund laugardaginn 28. apríl kl. 11.30 sem er sértaklega ætluð yngstu hlustendunum á aldrinum tveggja til fjögurra ára. Í Barnastundinni flytur hljómsveitin létta og skemmtilega tónlist í u.þ.b. 30 mínútur sem er sniðið að þeim hópi barna sem er of ungur til að sitja heila tónleika í Litla tónsprotanum. Barnastundin er haldin í opna rýminu fyrir framan Eldborg á annari hæð í Hörpu. Kynnir er trúðurinn Barbara og hljómsveitarstjóri er Bernharður Wilkinson. Vinsamlega takið með ykkur púða til að sitja á.
Allir velkomnir og aðgangur ókeypis.
Lesa meiraÍ vikunni býður Sinfóníuhljómsveit Íslands ungu fólki í efri bekkjum grunnskóla á tónleika í Eldborg þar sem flutt verður Rómeó og Júlía eftir Prokofíev. Leikararnir Esther Talía Casey og Jóhannes Haukur Jóhannesson eru sögumenn og stíga í hlutverk ungu elskendanna. Hljómsveitarstjóri er Baldur Brönnimann og handritshöfundur er Ólafur Egilsson.
Lesa meiraHljómsveitarstjórinn Bernard Labadie hefur afboðað komu sína á tónleika Sínfóníunnar föstudaginn 30. mars vegna forfalla. Í hans stað kemur Eivind Aadland er einn af virtustu hljómsveitarstjórum Noregs, en hann var aðalstjórnandi Sinfóníuhljómsveitarinnar í Þrándheimi um sjö ára skeið frá árinu 2004.
Lesa meiraSinfóníuhljómsveit Íslands hefur ráðið Bengt Årstad sem listrænan rágjafa hljómsveitarinnar. Hann mun m.a. hafa yfirumsjón með dagskrárgerð komandi starfsára, bókun hljómsveitarstjóra og listamanna, sem og aðra tilfallandi ráðgjöf.
Bengt Årstad er sænskur og hefur mikla reynslu á sviði listrænnar stjórnunar. Undanfarin 12 ár hefur hann starfað hjá Fílharmóníuhljómsveitinni í Ósló.
Lesa meiraÍ þessari viku flytja Sinfóníuhljómsveit Íslands og Bernd Ogrodnik brúðugerðameistari Pétur og úlfinn á sex grunnskólatónleikum í Norðurljósum fyrir nemendur í 1. til 4. bekk. Sögumaður er Halldóra Geirharðsdóttir og hljómsveitarstjóri er Guðmundur Óli Gunnarsson.
Lesa meiraFöstudagskvöldið 24.febrúar 2012 fór fram hin árlega afhending íslensku auglýsingaverðlaunanna. Sinfóníuhljómsveit Íslands og auglýsingastofan Jónsson og Le´macks fengu verðlaun fyrir bestu útvarpsauglýsinguna.
Lúðurinn er veittur í 16 flokkum þar sem auglýsingar sem skara fram úr á árinu 2011 eru verðlaunaðar. Það sem ræður úrslitum er hversu frumleg, snjöll og skapandi hugmyndin er og svo hversu vel hún er útfærð.
Lesa meira
Hlustendur og starfsmenn Rásar 1 og Rásar 2 velja Björtustu vonina á Íslensku tónlistarverðlaununum í ár. Gjaldgengir eru allir íslenskir „nýliðar“ eða „nýliðar“ sem búa og starfa á Íslandi og vöktu athygli á nýliðnu tónlistarári, óháð útgáfu. Ungsveit Sinfóníuhljómsveitar Íslands hlaut tilnefningu í flokknum.
Lesa meira
Hljómsveitarnámskeið Ungsveitar Sinfóníuhljómsveitar Íslands 2012 stendur frá laugardeginum 8. september til sunnudagsins 30. september. Að þessu sinni verður verkefni hljómsveitarinnar Pláneturnar, op. 32 eftir Gustav Holst. Svissneski hljómsveitarstjórinn Baldur Brönnimann stjórnar námskeiðinu sem lýkur með tónleikum í Hörpu, 30. september kl. 14:00
Lesa meira
Áhugamenn um nýja og spennandi tónlist ættu að taka frá dagana 1. til 3. mars en þá hleypir Sinfóníuhljómsveit Íslands nýrri tónlistarhátíð af stokkunum í Hörpu. Á þremur dögum verður boðið upp á ótal tónleika í hinum ýmsu rýmum Hörpu þar sem leiða saman hesta sína Sinfóníuhljómsveit Íslands og ungir íslenskir tónlistarmenn úr raf- og spunageiranum. Auk þess stíga á stokk þekktir erlendir tónlistarmann úr heimi samtímatónlistar, þeirra á meðal breski píanóleikarinn John Tilbury, einn virtasti túlkandi heims á sviði nýrrar og nýlegrar píanótónlistar, sem og ástralski tónlistarmaðurinn Oren Ambarchi.
Lesa meiraTónskáldastofa í Eldborg föstudaginn 27. janúar kl. 9:30-11:30
Föstudaginn 27. janúar efnir Sinfóníuhljómsveitin í annað sinn til Tónskáldastofu, þar sem þrjú íslensk tónskáld undir 35 ára aldri fá þjálfun og leiðsögn í að skrifa verk fyrir sinfóníuhljómsveit.
Valið er úr innsendum verkum og í ár var það danska tónskáldið Hans Abrahamsen sem valdi tónverkin Lancharan eftir Gunnar Karl Másson, Grafgötu eftir Guðmund Stein Gunnarsson og Kviku eftir Kristján Guðjónsson. Hljómsveitarstjóri er Ilan Volkov og fá tónskáldin athugasemdir og leiðbeiningar frá honum, hljómsveitarmeðlimum og tónskáldinu Hans Abrahamsen eftir flutninginn.
Með Tónskáldastofu tekur SÍ virkan þátt í uppeldi íslenskra hljómsveitartónskálda.
Tónskáldastofan er opin öllum og er aðgangur er ókeypis.
Lesa meira