Júní 2013

júní 2013

(Sleppa dagatali)
L S M Þ M F F L S M Þ M F F L S M Þ M F F L S M Þ M F F L S
1 2 3 4 5 6 7 8 9 10 11 12 13 14 15 16 17 18 19 20 21 22 23 24 25 26 27 28 29 30

20.5.2012

Sinfónían hlýtur viðurkenningu IBBY

   

Í dag voru í Gunnarshúsi afhentar Vorvindaviðurkenningar IBBY á Íslandi við hátíðlega athöfn. Þrjár viðurkenningar voru veittar að þessu sinni fyrir störf að barnamenningu.

Sinfóníuhljómsveit Íslands fékk viðurkenningu fyrir metnaðarfullt barnastarf, m.a. með tónleikaröðinni Litla tónsprotanum og farsælu samstarfi við músina knáu Maxímús Músíkús.

Einnig hlutu Birgitta Elín Hassell og Marta Hlín Magnadóttir viðurkenningu fyrir framlag sitt til lestrarhvatningar og leikhópurinn Lotta fyrir frumlegar og skemmtilegar barnasýningar sem sýndar eru utandyra hvert sumar um land allt.

Vorvindaviðurkenningar IBBY hafa verið afhentar árlega frá árinu 1987 og eiga þær að vekja athygli á þeim fersku vindum sem blása í barnamenningunni hverju sinni.

 

http://ibbyisland.wordpress.com/

Senda grein


Bakhjarlar

VÍS Gamma


Þetta vefsvæði byggir á Eplica