Viðburðir

júlí 2010

(Sleppa dagatali)
F F L S M Þ M F F L S M Þ M F F L S M Þ M F F L S M Þ M F F L S M Þ M
1 2 3 4 5 6 7 8 9 10 11 12 13 14 15 16 17 18 19 20 21 22 23 24 25 26 27 28 29 30 31        

SÍ tilnefnd sem Tónlistarflytjandi ársins

daniel_listiTilnefningar til Íslensku tónlistarverðlaunanna 2010 liggja nú fyrir en þau verða afhent í Íslensku óperunni 13. mars.

Sinfóníuhljómsveitin er tilnefnd í flokknum Tónlistarflytjandi ársins fyrir eftirminnilega tónleika með Gennadíj Rosdestvenskíj á Listahátíð sem og tónleika með Daníel Bjarnasyni og Víkingi Heiðari Ólafssyni á Myrkum músíkdögum.  Þá fær Daníel tilnefningu fyrir píanókonsertinn Processions í flokknum Tónverk ársins, en konsertinn var einmitt frumfluttur á tónleikum SÍ á Myrkum músíkdögum. Daníel er einnig tilnefndur sem Höfundur ársins fyrir sama verk.

Edda Erlendsdóttir og Sinfóníuhljómsveit Íslands fá tilnefningu fyrir Plötu ársins í flokknum sígild / samtíðartónlist fyrir píanókonserta Haydn sem gefin er út af forlaginu Erma.

Gaman er að geta þess að Sæunn Þorsteinsdóttir sellóleikari er tilnefnd sem Bjartasta vonin en hún var einmitt einleikari á tónleikum Sinfóníuhljómsveitarinnar í þessari viku og Þóra Einarsdóttir er tilnefnd sem Rödd ársins en hún söng svo eftirminnilega á síðustu Vínartónleikum SÍ.

Víkingur Heiðar er tilnefndur Tónlistarflytjandi ársins en hann er einleikari á tvennum tónleikum Sinfóníuhljómsveitar Íslands í næstu viku þar sem hann mun leika píanókonsert nr. 1 eftir Fréderic Chopin. Nær uppselt er á báða tónleikana – aðeins örfá sæti laus.

Senda grein



Aðalstyrktaraðilar

Borgun Morgunblaðið

Þetta vefsvæði byggir á Eplica