EN

20. ágúst 2017

Klassíkin okkar - heimur óperunnar: Úrslit netkosningar

Habanera úr Carmen er uppáhalds aría landsmanna

Í vor efndu Sinfóníuhljómsveit Íslands og RÚV í samvinnu við Íslensku óperuna til netkosningar þar sem allir landsmenn gátu valið eftirlætis óperuaríurnar sínar. Tónleikarnir „Klassíkin okkar“ sem haldnir voru í fyrrahaust vöktu mikla hrifningu og nú var leikurinn endurtekinn með áherslu á óperutónlist. Hægt var að velja úr lista með vinsælum aríum eða tilnefna aðrar. Þau tónverk sem voru hlutskörpust munu hljóma á sérstökum hátíðartóneikum Sinfóníunnar sem um leið er upptaktur að glæsilegu starfsári Sinfóníuhljómsveitarinnar.

Þátttaka í kosningunni fór fram úr björtustu vonum og hlutskarpasta arían var Habanera úr Carmen, sem Sigríður Ósk Kristjánsdóttir mun flytja. 

Niðurstaða kosninganna og efnisskrá tónleikanna

- Georges Bizet: Carmen, forspil
- Gaetano Donizetti: Una furtiva lagrima úr Ástardrykknum
    - Einsöngvari: Elmar Gilbertsson
- George Gershwin: Summertime úr Porgy og Bess
    - Einsöngvari: Hallveig Rúnarsdóttir
- Pjotr Tsjajkovskíj: Ljúbíj fse vosrastíj pokorníj úr Evgení Onégin
      - Einsöngvari: Kristinn Sigmundsson
- Georges Bizet: Votre toast, Toreador úr Carmen
       - Einsöngvari: Ólafur Kjartan Sigurðarson og kórar
- Leo Delibes: Blómadúettinn úr Lakmé
       - Einsöngvarar: Hallveig Rúnarsdóttir og Sigríður Ósk Kristjánsdóttir
- Giuseppe Verdi: Va, pensiero, þrælakórinn úr Nabucco (kórar)
- Giacomo Puccini: O mio babbino caro úr Gianni Schicchi
      - Einsöngvari: Dísella Lárusdóttir
- Giacomo Puccini: Nessun dorma úr Turandot
      - Einsöngvari: Elmar Gilbertsson og kórar
- Henry Purcell: When I am laid in earth úr Dido and Aeneas
      - Einsöngvari: Hildigunnur Einarsdóttir
- Mozart: Der Hölle Rache, aría Næturdrottningarinnar úr Töfraflautunni
      - Einsöngvari: Suzanne Fischer
- Mozart: Pa-pa-gena…Pa-pa-geno úr Töfraflautunni
      - Einsöngvarar: Sigrún Hjálmtýsdóttir, Ólafur Kjartan Sigurðarson
- Antonín Dvorák: Söngur til mánans úr Rusölku
      - Einsöngvari: Þóra Einarsdóttir
- Richard Wagner: Pílagrímakórinn úr Tannhäuser 
- Pietro Mascagni: Intermezzo úr Cavalleria rusticana
- Georges Bizet: Au fond du temple saint úr Perluköfurunum
      - Einsöngvarar: Elmar Gilbertsson og Ólafur Kjartan Sigurðarson
- Georges Bizet: Habanera úr Carmen
      - Einsöngvari: Sigríður Ósk Kristjánsdóttir og kórar
- Giuseppe Verdi: Libiamo ne' lieti calici úr La traviata
      - Einsöngvarar: Þóra Einarsdóttir, Elmar Gilbertsson og kórar

10 einsöngvarar og 3 kórar

Alls koma tíu einsöngvarar fram á tónleikunum: Þóra Einarsdóttir, Sigrún Hjálmtýsdóttir, Dísella Lárusdóttir, Hallveig Rúnarsdóttir, Suzanne Fischer, Sigríður Ósk Kristjánsdóttir, Hildigunnur Einarsdóttir, Elmar Gilbertsson, Ólafur Kjartan Sigurðarson og Kristinn Sigmundsson. Með þeim syngja Kór Íslensku óperunnar undir stjórn Magnúsar Ragnarssonar, og Karlakór Kópavogs og Óperukórinn í Reykjavík undir stjórn Garðars Cortes. Daníel Bjarnason, staðarlistamaður Sinfóníuhljómsveitar Íslands er hljómsveitarstjóri tónleikanna.

Tónleikarnir fara fram í Eldborg 1. september kl. 20 og verða sendir beint út á RÚV. Miðasala er í fullum gangi á sinfonia.is og í miðasölu Hörpu.