EN

26. janúar 2017

Vefur Sinfóníunnar tilnefndur til íslensku vefverðlaunanna

Vefur Sinfóníuhjómsveitar Íslands hefur verið tilnefndur til Íslensku Vefverðlaunanna 2016 í flokki fyrirtækjavefur ársins. Íslensku vefverðlaunin eru uppskeruhátíð vefiðnaðarins og eru haldin með það að markmiði að verðlauna fyrirtæki og einstaklinga sem hafa skarað fram úr í vefverkefnum hér á landi.  Verðlaunahátíðin verður haldin 27. janúar í Silfurbergi í Hörpu.