Plötudómar
Sinfóníuhljómsveit Íslands fær lofsamlega dóma Nýr hljómdiskur þar sem
Sinfóníuhljómsveit Íslands leikur Sinfóníu nr. 2 eftir franska tónskáldið Vincent d'Indy hlýtur afar lofsamlega dóma í heimspressunni um þessar mundir. Fyrir skömmu var diskurinn valinn einn af bestu diskum mánaðarins í tímaritinu Gramophone, en fyrsti diskurinn í sömu útgáfuröð hljómsveitarinnar var tilnefndur til Grammy-verðlauna á síðasta ári.
Nýi diskurinn fær fjóra og hálfa stjörnu af fimm mögulegum í Musical Opinion og þar segir gagnrýnandinn að flutningur hinnar „afar góðu“ Sinfóníuhljómsveitar Íslands á verkum franska tónskáldsins sé einkar áhrifamikill. „Greinilegt er að þessi útgáfuröð mun setja ný viðmið þegar kemur að flutningi þessara verka, og tilhlökkunarefni að hinar sinfóníur tónskáldsins skuli brátt bætast í hópinn,“ segir gagnrýnandinn. Þá hrósar hann sérstaklega hljóðritun Chandos sem Georg Magnússon tæknimaður hjá Ríkisútvarpinu stýrði.
Í júníhefti BBC Music Magazine fær diskurinn fjórar stjörnur af fimm mögulegum. Gagnrýnandinn, Robert Maycock, segir Sinfóníuhljómsveitina leika með björtum tóni og þótt strengjasveitin hefði gjarnan mátt vera stærri einkennist leikurinn af þrótti og nákvæmni. SÍ fær einnig fjórar stjörnur í breska dagblaðinu Telegraph, og þar segir Geoffrey Norris að flutningurinn sé öruggur en einnig sveigjanlegur í hraða og hendingamótun. Þá segir Norris að hljómur sveitarinnar sé einstaklega litríkur og að blæbrigði tónsmíðarinnar komist vel til skila. Í International Record Review skrifar Stephen Pruslin og lofar Rumon Gamba sérstaklega fyrir að vita hvernig eigi að láta hljóm tónlistarinnar njóta sín til fulls, og segir að hljómur Sinfóníunnar minni á „mun hlýjari staði en Reykjavík.“
Sinfóníuhljómsveitin mun hljóðrita þriðja diskinn í d´Indy-röðinni í september nk.
Aðrir dómar
Eins og hljóðritanir Naxos sýna og sanna þá er Sinfóníuhljómsveit Íslands fær um næstum hvað sem er...
Simon Trezise, Classic CD, október 1999.
Frábærlega góður flutningur frá öllum hlutaðeigandi, og mögnuð tóngæðin jafnast fyllilega á við landslagið. Stórfenglegt.
GSR, Gramophone, september 1999.
Sinfóníuhljómsveit Íslands, undir stjórn Osmos Vanska, kom verulega á óvart með tilkomumiklum début-tónleikum í Carnegie Hall á þriðjudagskvöld... Maður tók strax eftir hinum góðu eiginleikum sveitarinnar: mjúkur og djúpur strengjatónn, bjartir og fókuseraðir tréblásarar og ágætir málmblásarar sem héldu sér í skefjum þegar átti við, jafnvægið milli raddanna var framúrskarandi. Útkoman var flutningur sem einkenndist af kaldri ástríðu, spennuþrunginn, alvörugefinn, átakanlega tjáningarmikill. Þetta voru gífurlega góðir tónleikar.
Alex Ross, The New York Times, 29. febrúar 1996.
Íslenski Sibeliusar-hringurinn með Petri Sakari gengur afskaplega vel. ... Sjötta sinfónían er einhver sú besta sem við höfum fengið lengi. Flutningurinn er úthugsaður og vel mótaður og jafnast á við þá bestu.
Robert Layton, BBC Music Magazine, ***** (performance)
Finlandia og hljómsveitarsvítur (Naxos)
Sinfóníur eftir Madetoja (Chandos)
Hljómsveitarverk eftir Vincent d'Indy (Chandos)
Editor's Choice í Gramophone:
Hljómsveitarverk eftir Vincent d'Indy (Chandos).
Tilnefning til Grammy-verðlauna



