Tónleikaupptökur og bein útsending RÚV
Tónleikar Sinfóníhljómsveitar Íslands eru sendir út í beint á Rás 1. Hægt er að hlusta á beinar útsendingar hér á vefnum. Upptökur frá fyrri tónleikum eru aðgengilegar í allt að tvær vikur frá útsendingu.
Upptökur frá fyrri tónleikum
Fimmtudagur 26. janúar 2012Myrkir Músíkdagar
Stjórnandi: Ilan Volkov
Hymnos eftir Giacinto Scelsi.
Mani eftir Atla Ingólfsson.
Orkestur eftir Huga Guðmundsson – frumflutningur.
Metastasis eftir Iannis Xenakis.
10 sinfóníur eftir Hans Abrahamsen.
Fimmtudagur 5. janúar 2012Vínartónleikar
Stjórnandi: Willy Büchler
Einsöngvari: Sigrún Hjálmtýsdóttir
Á efnisskrá er sígild Vínartónlist
Föstudagur 12. mars 2010
Víðsjá - Sinfóníuhljómsveit Íslands 60 ára
Sextug Sinfóníuhljómsveit Íslands er í aðalhlutverki í þessari Víðsjá. Gamlar og nýjar hljóðritanir með sveitinni hljóma -- heyra má gömul og ný viðtöl við hljómsveitarmeðlimi, hljómsveitarstjóra og aðra velunnara og óspart verður sótt í sarp segulbandasafns Ríkisútvarpsins.
Fimmtudagur 9. mars 1950
Fyrstu tónleikar Sinfóníuhljómsveitar Íslands
Hér má heyra hljóðritun frá fyrstu tónleikum Sinfóníuhljómsveitar Íslands, með ávarpsorðum dr. Páls Ísólfssonar, sem haldnir voru í Austurbæjarbíói 9. mars árið 1950.
Efnisskráin er svohljóðandi:
Tónleikarnir hefjast á ávarpi dr. Páls Ísólfssonar, þá er Þjóðsöngurinn leikinn og þá koma þessi verk: Beethoven: Egmont forleikurinn, Sjö rúmenskir þjóðdansar eftir Béla Bartók og Divertemento í b-dúr eftir Haydn fyrir flautu, óbó, klarinettu, fagott og horn.
Að lokum má heyra ófullgerðu sinfóníuna . Tekið skal fram að vegna höfundarréttar þá varð að sleppa verki Bartóks í þessu hlaðvarpi.
Stjórnandi á þessu fyrstu tónleikum var dr. Róbert A. Ottósson



