EN

Hljóðfæraleikarar

Olga Björk Ólafsdóttir

  • Deild: 1. fiðla
  • Netfang: oolafsdottir ( @ ) homail ( . ) com
Olga Björk Ólafsdóttir hóf fiðlunám í Tónmenntaskóla Reykjavíkur 7 ára að aldri, kennarar hennar voru Hrönn Geirlaugsdóttir og Gígja Jóhannsdóttir. Hún var í Tónlistarskólanum í Reykjavík hjá Guðnýju Guðmundsdóttur og þreytti burtfararpróf vorið 1995. Sama ár hóf hún nám við Hochschule der Künste í Berlín og lauk þaðan B.A. prófi með ágætiseinkunn. Olga hefur sótt fjölmörg námskeið hérlendis sem og í Þýskalandi og Bandaríkjunum, bæði í einleik og kammermúsík. Árið 1999 hlaut hún Fulbright styrk til náms við bandarískan háskóla og stundaði Mastersnám við Indiana University hjá fiðlukennaranum Franco Gulli.