EN

Hljóðfæraleikarar

Pálína Árnadóttir

  • Deild: 1. fiðla
  • Netfang: palla55 ( @ ) yahoo ( . ) com
Pálína Árnadóttir fiðluleikari lauk einleikaraprófi frá Tónlistarskólanum í Reykjavík árið 1994 undir handleiðslu Guðnýjar Guðmundsdóttur. Framhaldsnám stundaði hún við University of Houston hjá Fredell Lack og lauk þaðan M.M. prófi. Einnig stundaði hún nám við Royal College of Music í London hjá prófessor Grigory Zhislin, þar sem hún lauk Postgraduate Diploma. Árið 2002 lauk hún Graduate Diploma frá Juilliard tónlistarskólanum í New York. Pálína hefur tekið þátt í fjölda keppna og vann meðal annars til 3. verðlauna í Corpus Christi International fiðlukeppninni. Þá hefur hún komið fram sem einleikari með Sinfóníuhljómsveit Íslands og hljómsveitum í Mexíkóborg, Texas og víðar.