EN

Hljóðfæraleikarar

David Bobroff

  • Deild: Básúna
  • Starfsheiti: bassabásúna
  • Netfang: bobroff ( @ ) centrum ( . ) is
David Bobroff er fæddur í Chicago í Illinois. 14 ára gamall hóf hann að læra á básúnu og lauk síðar tónlistarnámi frá Háskólanum í Jacksonville. Hann hélt áfram námi við Konservatoríu Háskólans í Cincinnati og lauk þaðan mastersprófi. Í framhaldi af því varð David Bobroff sá fyrsti til að hefja diplóma-nám við sama skóla. Á námsárunum lék David reglulega sem aukamaður með Sinfóníuhljómsveit Cincinnati, auk þess að leika við Cincinnati-óperuna, -balletinn og með Cincinnati Pops hljómsveitinni. David lék víða með hljómsveit Glenn Millers í nokkur ár eftir það áður en hann var ráðinn við Sinfóníuhljómsveit Tenerife á Kanaríeyjum. Þaðan lá leiðin til Sinfóníuhljómsveitar Íslands þar sem David hefur leikið síðan 1995.