Viðburðir

júlí 2010

(Sleppa dagatali)
F F L S M Þ M F F L S M Þ M F F L S M Þ M F F L S M Þ M F F L S M Þ M
1 2 3 4 5 6 7 8 9 10 11 12 13 14 15 16 17 18 19 20 21 22 23 24 25 26 27 28 29 30 31        

Ertu að koma í fyrsta skipti?

Ert þú ekki daglegur gestur á tónleikum Sinfóníuhljómsveitarinnar? Ertu kannski að fara í fyrsta skipti? Þá er kannski ágætt að fá nokkra punkta um hvað er um að vera og hvernig maður á að vera. Vanir tónleikahundar gætu líka haft gagn af að lesa þessar línur.

 
Af hverju ætti ég að fara á tónleika?
Að vera á staðnum og upplifa tónlist sem flutt er af fyrsta flokks sinfóníuhljómsveit undir stjórn góðs hljómsveitarstjóra er ómetanleg upplifun. Það er hreinlega ekki hægt að lýsa því hvernig er að vera á tónleikum og finna hvernig tónlistin skapast í samspili hljóðfæraleikara, stjórnanda og áheyrenda – þú verður bara að vera á staðnum!

 
Hvaða tónleika á ég að velja?
Eins og með alla aðra tónlist er það spurning um smekk hvaða tónleika þú ættir helst að sækja. Ef þú átt enga sérstaka uppáhaldstónlist eða tónskáld er erfitt að velja því það er úr svo mörgu að velja. Nærtækt er að spyrja einhvern sem er vanur að fara eða spyrja í miðasölu hljómsveitarinnar, svo eru til allskonar uppsláttarrit og upplýsingaveitur á vefnum sem geta komið fólki á sporið. Í raun má þó segja að best sé að mæta bara, athuga hvað manni finnst og prófa sig áfram. Það getur enginn valið nema þú.

 
Finndu gott sæti í salnum
Hvar maður situr er auðvitað líka smekksatriði. Það er auðvitað munur á sætum í salnum og það eru ekki allir staðir jafn góðir. Oftast er gott að sitja frekar framarlega en aftar og frekar nær miðju en út til hliðannna til þess heyra sem best í allri hljómsveitinni. Ráðleggingar um sætaval getur þú fengið í miðasölu og hafa ber að í huga að vinsælustu sætin seljast fyrst og því getur munað miklu að panta með fyrirvara. Um sætaval gildir þó svipað og um tónlistina að best er að prófa sig áfram.

 
Hvenær á að klappa og hósta?
Ástæða þess að ekki er alltaf klappað á milli “laga” er sú að verkin sem leikin eru á sinfóníutónleikum skiptast oftast í nokkra kafla og það tíðkast ekki að klappa inn í miðju verki. Hægt er að fylgjast með framvindu verksins í efnisskrá tónleikanna og reikna út frá kaflaheitunum hvenær verkinu líkur. Ef maður er ekki klár á hvenær á að klappa er best að bíða eftir að aðrir í salnum byrji. Með hósta og ræskingar gilda þær kurteisisvenjur að reyna að bíða með slíkt þangað til á milli kafla og láta ekkert á sér kræla á meðan hljómsveitin er að spila. Þetta er gert svo að allir geti notið tónlistarinnar sem best.

 
Komdu tímanlega
Það er ekki gott að mæta á síðustu stundu á sinfóníutónleika og gott er að vera kominn í húsið um 15 mínútum fyrir tónleika. Þú nýtur betur þess sem fram fer ef þú hefur tímann fyrir þér og það á sérstaklega við ef þú ert ekki vanur tónleikagestur því þá hefurðu tíma til þess að finna þitt sæti, lesa efnisskrána og koma þér í stemmingu fyrir verkið. Reyndar er það líka þannig að ef tónleikarnir eiga að byrja klukkan 19.30 þá er dyrunum á salnum lokað klukkan 19.30. Þeir sem koma of seint þurfa að bíða þar til að hlé verður á leik hljómsveitarinnar til þess að ganga í salinn og missa þannig af hluta tónleikanna.

 
Taktu efnisskrána
Efnisskrá tónleikana getur verið gullkista fyrir þig sem villt vita meira um sígilda tónlist og verkin á tónleikunum. Í efnisskránni finnur þú ekki aðeins upplýsingar um hvað verður leikið heldur líka söguna á bak við verkin og þá hugsun sem liggur að baki þeim. Þegar þú lest um verkin fær tónlistin alveg nýja vídd. Oft er sagt frá því hvernig tónlistin lýsir einstökum aðstæðum eins og dansi eða haustvindi – sleðaferð eða sólskini – eða þá þú færð innsýn í af hverju tónskáldið er ekki að fjalla um slíka hluti. Heimur tónlistarinnar verður æ áhugaverðari eftir því sem maður kemst betur inn í hann.

 
Í hléinu
Lestu efnisskrána aftur. Gastu heyrt meiningu tónskáldsins? Hvernig myndir þú lýsa verkinu? Lestu svo um það verk sem næst er á efnisskránni.

 
Eftir tónleikana
Ef þú hefur færi á að kaupa þér geisladisk með því verki sem þú heyrðir eða sem tengist tónleikunum (t.d. sama einleikara, Sinfóníuhljómsveit Íslands eða eftir sama tónskáld) er það gott tækifæri til þess að dýpka skilning þinn á tónlistinni. Svo er bara að athuga hvaða tónleika þú vilt sækja næst.



Aðalstyrktaraðilar

Borgun Morgunblaðið

Þetta vefsvæði byggir á Eplica