Miðasala
Miðasala fer fram hér á vefnum og á vef Hörpu www.harpa.is
Miðasala Hörpu sér um miðasölu og áskriftakortasölu fyrir Sinfóníuhljómsveit Íslands.
Opið frá kl. 10-18 virka daga, 12-18 um helgar og fram að tónleikum á tónleikadögum.
Sími: 528 5050
Vinsamlega athugið
Fjórði bekkur á tónleikum SÍ í Eldbog er fremsti bekkur þar sem hjómsveitin spilar á stækkuðu sviði.
Tónleikar hefjast stundvíslega á þeim tíma sem er tilgreindur á aðgöngumiðanum.
Vinsamlegast gefið ykkur nægan tíma fyrir tónleikana til þess að leggja bílnum, ná í miða og nota fatahengið.
Staðsetning
Harpa er í miðbæ Reykjavíkur við gömlu höfnina. Innkeyrsla er frá Sæbraut, góð gönguleið er yfir Tryggvagötuna að húsinu. Hægt er að ganga meðfram sjónum og koma að Hörpu austanmegin.
Bílastæði
Bílastæðahús með 545 stæðum er við Hörpuna. Bílastæðahúsið er upplýst og beint aðgengi inn í hús. Bílastæði fyrir hreyfihamlaða eru næst inngöngum. Gjaldskylda er í bílastæðin.
Fyrir framan Hörpu er einungis hægt að hleypa gestum út úr farartækjum. Ekki er gert ráð fyrir að bílar leggi þar.
Miðar
Vinsamlegast geymið aðgöngumiðann vel þar sem þið þurfið að sýna hann við innganginn á sal.
Efnisská tónleika
Efnisská tónleika er innifalin í miðaverði og er afhent við innganginn í sal.
Stundvísi
Til þess að gestir njóti tónleikanna sem best er ekki hleypt inn á tónleika eftir að þeir hefjast, heldur verða þeir sem eru seinir fyrir að bíða þar til hlé verður í efnisskránni.
Hlé
Hlé er gert á tónleikum og er það 20 mínútur. Hægt er að kaupa veitingar í hléi.



