Rumon Gamba
Rumon Gamba, aðalhljómsveitarstjóri Sinfóníuhljómsveitar Íslands, nam við Konunglegu Tónlistarakademíuna í London undir handleiðslu Colin Metters og varð fyrsti nemandinn í hljómsveitarstjórn sem vann til DipRAM-verðlaunanna. Skömmu síðar sigraði hann í keppni ungra hljómsveitarstjóra á vegum BBC og Loyds bankans og varð í framhaldi af því aðstoðarhljómsveitarstjóri Fílharmóníusveitar Breska ríkisútvarpsins.
Á fjórum árum stýrði Rumon Gamba hljómsveitinni á opinberum tónleikum, við upptökur og á fjölda útvarps- og sjónvarpstónleika, þar meðtalið PROMS tónleikum BBC.
Tónleikaröð með öllum níu sinfóníum Malcolm Arnolds og afmælistónleikar í tilefni af áttræðisafmæli hans á síðasta ári, þóttu enn ein skrautfjöður í hatt hins unga hljómsveitarstjóra. Rumon Gamba hefur komið fram sem gestastjórnandi með flestum hljómsveitum Bretlandseyja og eru þá meðtaldar hljómsveitir Breska ríkisútvarpsins.
Hann hefur starfað með fjölda þekktra hljómsveita á meginlandinu svo sem: Fílharmóníusveitinni í München, Útvarpshljómsveitinni í Berlín og Sinfóníuhljómsveitinni í Barcelona auk þess að hafa nýlega þreytt frumraun sína með Fílharmóníusveitinni í New York, Sinfóníuhljómsveitinni í Toronto sem og Sinfóníuhljómsveitunum í Sydney og Melbourne.
Rumon Gamba hefur nýlega gert fastan samning við Chandosútgáfuna en áður hefur hann tekið þátt í upptökum á fjölda geisladiska fyrir fyrirtækið með Fílharmóníusveit Breska ríkisútvarpsins. Má þar m.a. nefna upptökur á verkum Arnold, Bax, Auric, Vaughan-Williams, Eric Coates, Bliss, svo og kvikmyndatónlist eftir Alwyn og Richard Rodney Bennets.
Rumon Gamba tók við stöðu aðalhljómsveitarstjóra og listræns stjórnanda Sinfóníuhljómsveitar Íslands í september 2002.
Rumon Gamba er á mála hjá enska umboðssfyrirtækinu Harrison Parrot.
Heimasíða Rumon Gamba: rumongamba.com


