Hljómsveitarstjórar
Leitin að næsta aðalstjórnanda
Nú stendur leitin að næsta aðalstjórnanda Sinfóníuhljómsveitar Íslands sem hæst. Undanfarin ár hafa verið gerðar skoðanakannanir meðal hljómsveitarinnar að loknum tónleikum þar sem gestastjórnendur koma fram og á grundvelli þeirra hefur sumum þeirra verið boðið að spreyta sig aftur. Nú er hringurinn farinn að þrengjast og þótt erfitt sé að spá er hugsanlegt að næsti aðalstjórnandi verði valinn úr eftirfarandi hópi:
Eva Ollikainen
Finnskur hljómsveitarstjóri
Susanna Mälkki
Finnskur hljómsveitarstjóri,
aðalstjórnandi IRCAM í París
Eivind Aadland
Norskur hljómsveitarstjóri, aðalstjórnandi
Sinfóníuhljómsveitarinnar í Þrándheimi
Kirill Karabits
Úkraínskur hljómsveitarstjóri, aðalstjórnandi
Sinfóníuhljómsveitarinnar í Bournemouth
Ilan Volkov
Ísraelskur hljómsveitarstjóri, fyrrum
aðalstjórnandi BBC-sinfóníunnar í Skotlandi
Pietari Inkinen
Finnskur hljómsveitarstjóri, aðalstjórnandi
Sinfóníuhljómsveitar Nýja-Sjálands


