Febrúar 2012

febrúar 2012

(Sleppa dagatali)
M F F L S M Þ M F F L S M Þ M F F L S M Þ M F F L S M Þ M
1 2
fimmtudagur
3 4 5 6 7 8 9
fimmtudagur
10 11 12 13 14 15 16 17 18 19 20 21 22 23
fimmtudagur
24 25 26 27 28 29

Hljómsveitin

Ólöf Þorvarðsdóttir

  • Netfang: vindurinndansandi ( @ ) internet ( . ) is
Fiðluleikari og Listaþerapisti í Reykjavík. Ólöf Þorvarðsdóttir hóf fiðlunám í Tónlistarskóla Reykjavíkur 13 ára gömul hjá Gígju Jóhannsdóttur, síðar hjá Mark Reedman og tók burtfarapróf hjá Guðnýju Guðmundsdóttur árið 1986. Hún lauk BM-prófi 1989 og MM- prófi 1991 í fiðluleik frá New England Conservatory of Music í Boston undir handleiðslu Masuko Ushioda og Michel Auclair. Ólöf lauk MA-prófi í alhliða listaþerapíu frá Lesley College í Cambridge árið1993 og fékk löggildingu sem alhliða listaþerapisti frá Expressive Arts Therapy Association í San Francisco árið 1998. Ólöf var fiðluleikari í Deborah Abel Dance Company í Cambridge og einnig með Playback Theatre (þerapíu leikhús) í Emerson College í Boston. Á árunum 1992-1997 í Boston kenndi hún börnum tónlist og dans, vann sem listaþerapisti á geðsjúkarahúsi og á meðferðarstofnun fyrir fullorðna. Hún kenndi í Tónlistarskóla Garðabæjar og Tónskóla Eddu Borg. Fastráðin í Sinfóníuhljómsveit Íslands haustið 2000 og stofnaði Jarðýtunefnd Sinfóníuhljómsveitar Íslands.
 


Bakhjarlar

Borgun VÍS Gamma


Þetta vefsvæði byggir á Eplica