September 2010

september 2010

(Sleppa dagatali)
M F F L S M Þ M F F L S M Þ M F F L S M Þ M F F L S M Þ M F
1 2 3 4 5 6 7 8 9 10
föstudagur
11 12 13 14 15 16
fimmtudagur
17 18 19 20 21 22 23 24 25 26 27 28 29 30

Hljómsveitin

Jónína Auður Hilmarsdóttir

  • Netfang: joninaaudur ( @ ) hive ( . ) is
Jónína Auður Hilmarsdóttir víóluleikari hóf fiðlunám níu ára gömul en skipti fimmtán ára yfir á víólu. Árið 1994 lauk hún námi frá Tónlistarskólanum í Reykjavík þar sem aðalkennari hennar var Ingvar Jónasson. Hún stundaði framhaldsnám 1994-1995 við Tónlistarháskólann í Brussel hjá Ervin Schiffer en fluttist svo til Amsterdam og hóf nám hjá Marjolein Dispa. Hún lauk B.A.-og kennaraprófi frá Tónlistarháskólanum í Amsterdam árið 1999. Árið 2001 lauk hún svo mastersgráðu frá sama skóla með áherslu á einleik og kammertónlist. Einnig var hún gestanemi við Hochschule der Kűnste í Berlín frá 1999-2001 og sótti tíma hjá Hartmut Rohde og Hans Joachim Greiner. Hún hefur að auki sótt fjölda námskeiða, m.a. hjá Vladimir Mendelssohn á Festival Pablo Casals í Frakklandi, Thomas Riebl og Diemut Poppen. Hún hefur leikið með ýmsum hljómsveitum og tónlistarhópum innan lands sem utan, m.a. Nederlands Kammerorkest í Amsterdam, Sinfóníuhljómsveit Íslands, Caput og Kammersveit Reykjavíkur. Hún er eftirsóttur kammermúsíkspilari og hefur m.a. komið fram á tónleikum með tónlistarhópnum Camerartica. Hún stofnaði Tríó Artis sem hún lék með frá 2002-2005. Hún var meðlimur í strengjaoktett Bjarkar Guðmundsdóttur og fór árið 2003 í tónleikaferðalag um Evrópu, Rússland, Japan og Norður-Ameríku. Árið 2004 kom Jónína fram sem einleikari með Sinfóníuhljómsveit áhugamanna ásamt Sif Tulinius 2.konsertmeistara SÍ í Sinfonia Concertante eftir Mozart. Frá 2002 hefur hún starfað með Sinfóniuhljómsveit Íslands ásamt því að kenna. Jónína var einn skipuleggjenda 33. alþjóðlegu víóluráðstefnunnar sem haldin var í Reykjavík árið 2005 og spilaði þar á fjölda tónleika.
 


Aðalstyrktaraðilar

VÍS Borgun Morgunblaðið

Þetta vefsvæði byggir á Eplica