Febrúar 2012

febrúar 2012

(Sleppa dagatali)
M F F L S M Þ M F F L S M Þ M F F L S M Þ M F F L S M Þ M
1 2
fimmtudagur
3 4 5 6 7 8 9
fimmtudagur
10 11 12 13 14 15 16 17 18 19 20 21 22 23
fimmtudagur
24 25 26 27 28 29

Hljómsveitin

Sigurgeir Agnarsson

  • Starfsheiti: staðgengill leiðara
  • Netfang: sigurgeir ( @ ) tono ( . ) is
Sigurgeir Agnarsson lauk einleikaraprófi frá Tónlistarskólanum í Reykjavík og síðar MM prófi frá New England Conservatory í Boston og „Konzertexamen” prófi frá Robert Schumann tónlistarháskólanum í Düsseldorf. Helstu kennarar hans voru Gunnar Kvaran, David Wells, Laurence Lesser og Johannes Goritzki. Sigurgeir hefur komið fram sem einleikari með Sinfóníuhljómsveit Íslands og Bochumer Symphoniker. Hann var valinn sem fulltrúi Íslands til að koma fram í tónleikaröðinni “Podium of Young European Musicians” í Goethe stofnunni í Brussel. Sigurgeir hefur verið virkur í flutningi á kammertónlist og hefur m.a. komið fram á tónleikum hjá Kammermúsíkklúbbnum, Kammersveit Reykjavíkur og er meðlimur í Kammerhóp Salarins (KaSa). Sigurgeir er yfirmaður strengjdadeildar Tónlistarskólans í Reykjavík og stundakennari við Listaháskóla Íslands. Sigurgeir kom til starfa hjá Sinfóníuhljómsveit Íslands sem uppfærslumaður í sellódeild haustið 2003.
 


Bakhjarlar

Borgun VÍS Gamma


Þetta vefsvæði byggir á Eplica