Febrúar 2012

febrúar 2012

(Sleppa dagatali)
M F F L S M Þ M F F L S M Þ M F F L S M Þ M F F L S M Þ M
1 2
fimmtudagur
3 4 5 6 7 8 9
fimmtudagur
10 11 12 13 14 15 16 17 18 19 20 21 22 23
fimmtudagur
24 25 26 27 28 29

Hljómsveitin

Inga Rós Ingólfsdóttir

Inga Rós Ingólfsdóttir hóf fiðlunám við Tónlistarskólann í Reykjavík 8 ára að aldri en skipti yfir á selló 14 ára gömul. Hún lauk einleikaraprófi frá Tónlistarskólanum í Reykjavík árið 1976. Framhaldsnám stundaði hún við Tónlistarháskóla Rínarlanda í Düsseldorf hjá Johannes Goritzki frá 1976 og lauk þaðan einleikaraprófi 1981. Inga Rós hefur tekið virkan þátt í tónlistarlífi landsins m.a. með Kammersveit Reykjavíkur, Reykjavíkurkvartettinum og Mótettukór Hallgrímskirkju og komið fram með þeim víða um heim. Hún hefur haldið fjölda tónleika með Herði Áskelssyni orgelleikara. Inga Rós hefur unnið mikið að félagsmálum, m.a. sem formaður Félags íslenskra tónlistarmanna, í stjórn Bandalags íslenskra listamanna og Nordisk Solistråd, og í stjórn Kammersveitar Reykjavíkur 1994-2002. Hún hefur verið fastráðinn sellóleikari við S.Í. frá árinu 1982 og framkvæmdastjóri Kirkjulistahátíðar frá 2001.
 


Bakhjarlar

Borgun VÍS Gamma


Þetta vefsvæði byggir á Eplica