Febrúar 2012

febrúar 2012

(Sleppa dagatali)
M F F L S M Þ M F F L S M Þ M F F L S M Þ M F F L S M Þ M
1 2
fimmtudagur
3 4 5 6 7 8 9
fimmtudagur
10 11 12 13 14 15 16 17 18 19 20 21 22 23
fimmtudagur
24 25 26 27 28 29

Hljómsveitin

Hávarður Tryggvason

  • Starfsheiti: leiðari
Hávarður Tryggvason kontrabassaleikari stundaði fyrst nám við Tónskóla S.D.K. en hélt árið 1983 til framhaldsnáms við Tónlistarháskólann í París þar sem aðalkennari hans var J.M. Rollez. 1986 útskrifaðist hann þaðan með láði. og lauk Ttveimur árum síðar lauk hann einnig námi frá einleiksdeild skólans. og s Samhliða náminu lék hann í atvinnuhljómsveit Tónlistarháskólans. Árið 1989 fluttist Hávarður til Belgíu og hóf störf með Konunglegu Flæmsku Óperuhljómsveitinni í Antwerpen. Jafnframt stundaði hann framhaldsnám við Tónlistarháskólann þar í borg. Árið 1995, eftir 12 ára dvöl erlendis, fluttist Hávarður aftur til Íslands og tók við stöðu leiðandi kontrabassaleikara við hjá Sinfóníuhljómsveit Íslands og gegnir nú því starfi. Jafnframt kennir hann við Tónlistarskóla Reykjavíkur. Hávarður hefur bæði komið fram sem einleikari og verið virkur í flutningi kammertónlistar hér heima og erlendis, m.a. með CaputCAPUT og , Kammersveit Reykjavíkur ofl. Árið 2002 fékk Hávarður úthlutað starfslaunum listamanna í 6 mánuði.
 


Bakhjarlar

Borgun VÍS Gamma


Þetta vefsvæði byggir á Eplica