Febrúar 2012

febrúar 2012

(Sleppa dagatali)
M F F L S M Þ M F F L S M Þ M F F L S M Þ M F F L S M Þ M
1 2
fimmtudagur
3 4 5 6 7 8 9
fimmtudagur
10 11 12 13 14 15 16 17 18 19 20 21 22 23
fimmtudagur
24 25 26 27 28 29

Hljómsveitin

Hallfríður Ólafsdóttir

  • Starfsheiti: leiðari
  • Netfang: hallola ( @ ) simnet ( . ) is
Hallfríður Ólafsdóttir hefur verið fastráðin við hljómsveitina um 11 ára skeið. Hallfríður er einnig kennari við Tónlistarskólann í Reykjavík og flautuleikari kammerhópsins Camerarctica. Hallfríður lauk Einleikaraprófi og Kennaraprófi frá Tónlistarskólanum í Reykjavík vorið 1988 og var kennari hennar þar Bernharður Wilkinson. Hún fór þá utan til náms og var fyrst við nám hjá Trevor Wye og Kate Hill í Royal Northern College of Music í Manchester, og lauk þaðan Postgraduate Diploma eftir einn vetur. Hún komst þá að hjá William Bennett við RoyalAcademy of Music í Lundúnum, ein þriggja úr um hundrað manna hópi, og hlaut eftir tveggja ára nám Diploma of Advanced Studies, auk þess að hljóta styrk frá skólanum og önnur verðlaun í keppni tréblástursnemenda. Hallfríður lagði að lokum stund á franska tónlist hjá Alain Marion í París veturinn 1991-92 en kom þá alkomin heim og hefur síðan verið starfandi flautuleikari og kennari í Reykjavík. Hallfríður hefur ásamt starfi sínu hjá Sinfóníuhljómsveitinni leikið einleikskonserta, m.a. með Sinfóníuhljómsveit Íslands, og lagt stund á kammertónlist, fyrst og fremst með Camerarctica, auk þess að sinna uppfræðslu verðandi flautuleikara við Tónlistarskólann í Reykjavík. Hallfríður hefur hljóðritað og gefið út á geisladiskum flautukvartetta eftir W.A. Mozart og ýmis íslensk kammerverk. Árið 2002 var Hallfríði veitt heiðursnafnbótin Honorary Associate of the Royal Academy of Music (HonARAM) sem veitist þeim fyrrum nemendum RAM sem notið hafa velgengni í starfi. Einnig hefur Royal Academy leitað eftir Hallfríði sem gestakennara við flautudeildina. Árið 2003 var Hallfríður valin Bæjarlistamaður Garðabæjar.
 


Bakhjarlar

Borgun VÍS Gamma


Þetta vefsvæði byggir á Eplica