Febrúar 2012

febrúar 2012

(Sleppa dagatali)
M F F L S M Þ M F F L S M Þ M F F L S M Þ M F F L S M Þ M
1 2
fimmtudagur
3 4 5 6 7 8 9
fimmtudagur
10 11 12 13 14 15 16 17 18 19 20 21 22 23
fimmtudagur
24 25 26 27 28 29

Hljómsveitin

Daði Kolbeinsson

  • Starfsheiti: leiðari
  • Netfang: englahorn ( @ ) gmail ( . ) com
Daði Kolbeinsson lauk einleikaraprófi frá Royal College of Music í London árið 1972 en kennarar hans þar voru Terence MacDonagh og Sydney Sutcliffe. Hann fæddist og ólst upp í Skotlandi og þar hóf hann nám á óbó hjá Margaret Moncrieff. Árið 1973 réðst hann til Sinfóníuhljómsveitar Íslands sem uppfærsluóbóleikari og tók síðan englahornið að sér árið 1977. Daði hefur oft komið fram sem einleikari, bæði á óbó og englahorn, með Sinfóníuhljómsveit Íslands og Kammersveit Reykjavíkur, en hann hefur einnig leikið mikið með Kammersveitum Hallgríms- og Langholtskirkju, svo og Íslensku Óperunni og KaSa hópnum. Hann er einn af stofnendum Blásarakvintetts Reykjavíkur sem hefur komið fram víða um heim og leikið inn á marga hljómdiska. Daði var ráðinn fyrsti óbóleikari SÍ árið 2000. Hann hefur gaman af skíðagöngu á vetrum, fjallgöngum og skútusiglingum á sumrin og bókalestri allan ársins hring. Daði er kvæntur Sesselju Halldórsdóttur víóluleikara.
 


Bakhjarlar

Borgun VÍS Gamma


Þetta vefsvæði byggir á Eplica