Febrúar 2012

febrúar 2012

(Sleppa dagatali)
M F F L S M Þ M F F L S M Þ M F F L S M Þ M F F L S M Þ M
1 2
fimmtudagur
3 4 5 6 7 8 9
fimmtudagur
10 11 12 13 14 15 16 17 18 19 20 21 22 23
fimmtudagur
24 25 26 27 28 29

Hljómsveitin

Einar Jóhannesson

  • Starfsheiti: leiðari
  • Netfang: einarjoh ( @ ) ismennt ( . ) is
Einar Jóhannesson fæddist í Reykjavík árið 1950. Hann nam klarínettuleik við Tónlistarskólann í Reykjavík og The Royal College of Music í London, þar sem hann vann til Frederick Thurston verðlaunanna. Hann hóf störf hjá Sinfóníuhljómsveit Íslands og gegnir nú stöðu 1. klarínettuleikara. Árið 1976 vann Einar samkeppni um þáttöku í " Live Music Now " sem Sir Yehudi Menuhin stofnaði, og hlaut síðar Sonning verðlaunin fyrir unga norræna einleikara. Einars er einn þeirra sem fjallað er um í bók breska tónlistarfræðingsins Pamelu Westons " Clarinet Virtuosi of Today ". Hann er tíður gestur á tónlistarhátíðum víða um heim og hefur leikið fyrir útvarps og sjónvarpsstöðvar margra landa. Einar hefur frumflutt fjölda verka, sem eru sérstaklega skrifuð fyrir hann, jafnt einleikskonserta, kammerverk og verk fyrir einleiksklarínettu. Einar er stofnfélagi nokkurra kammerhópa, til dæmis Blásarakvintetts Reykjavíkur og Tríós Borealis. Hann er einnig 1. klarínettuleikari Kammersveitar Reykjavíkur og félagi í miðaldasönghópnum Voces Thules.
 


Bakhjarlar

Borgun VÍS Gamma


Þetta vefsvæði byggir á Eplica