Febrúar 2012

febrúar 2012

(Sleppa dagatali)
M F F L S M Þ M F F L S M Þ M F F L S M Þ M F F L S M Þ M
1 2
fimmtudagur
3 4 5 6 7 8 9
fimmtudagur
10 11 12 13 14 15 16 17 18 19 20 21 22 23
fimmtudagur
24 25 26 27 28 29

Hljómsveitin

Hafsteinn Guðmundsson

  • Netfang: hafgu ( @ ) tono ( . ) is
Hafsteinn er fæddur og uppalinn í Reykjavík og hóf fagottnám hjá Sigurði Markússyni við Tónlistarskólann í Reykjavík árið 1960 og varð sá fyrsti til að ljúka slíku námi á Íslandi. Hafsteinn lauk tónmenntakennaraprófi 1967 og einleikaraprófi á fagott 1968. Síðar stundaði hann framhaldsnám við Indiana University Scholol of Music í Bloomington undir handleiðslu Leonard Sharrow og útskrifaðist þaðan með gráðuna Masttser of Music árið 1970. Hafsteinn stundaði auk þess einkanám hjá Arthur Weisberg. Hafsteinn lék fyrst á tónleikum með SÍ í nóvember árið 1962. Hann var fastráðinn hjá Sinfóníuhljómsveit Íslands árið 1971 og hefur gegnt stöðu fyrsta fagottleikara frá árinu 1987. Hann hefur kennt á tréblásturshljóðfæri, aðallega fagoott, saxófón, og klarinett við ýmsa tónlistarskóla, lengst við Tónlistarskólann í Reykjavík og Tónmenntaskóla Reykjavíkur.
 


Bakhjarlar

Borgun VÍS Gamma


Þetta vefsvæði byggir á Eplica