Febrúar 2012

febrúar 2012

(Sleppa dagatali)
M F F L S M Þ M F F L S M Þ M F F L S M Þ M F F L S M Þ M
1 2
fimmtudagur
3 4 5 6 7 8 9
fimmtudagur
10 11 12 13 14 15 16 17 18 19 20 21 22 23
fimmtudagur
24 25 26 27 28 29

Hljómsveitin

Sif Tulinius

  • Starfsheiti: 2. konsertmeistari
  • Netfang: sifmtul ( @ ) yahoo ( . ) com
Sif Tulinius hóf nám í fiðluleik sjö ára gömul hjá Gígju Jóhannsdóttur og lauk einleikaraprófi frá Tónlistarskólanum í Reykjavík vorið 1991 undir handleiðslu Guðnýjar Guðmundsdóttur. Hún stundaði framhaldsnám í Bandaríkjunum og lauk B.A. prófi frá Oberlin College sem nemandi Almitu og Rolands Vamos og meistaragráðu frá New York þar sem kennarar hennar voru Joyce Robbins og Joel Smirnoff. Hún hefur tekið þátt í fjölda tónlistarhátíða í Bandaríkjunum, Evrópu og Japan og hefur einnig starfað sem leiðbeinandi á námskeiðum í Bandaríkjunum. Sif hefur tekið virkan þátt í flutningi nútímatónlistar og hefur starfað með ýmsum tónlistarhópum m.a. Ensemble Modern og CAPUT-hópnum. Sif hefur á undanförnum árum komið fram á öllum helstu tónlistarhátíðum á Íslandi og einnig sem einleikari með Kammersveit Reykjavíkur og Sinfóníuhljómsveit Íslands. Sif hefur gegnt stöðu 2. konsertmeistara frá hausti 2000.
 


Bakhjarlar

Borgun VÍS Gamma


Þetta vefsvæði byggir á Eplica