Febrúar 2012

febrúar 2012

(Sleppa dagatali)
M F F L S M Þ M F F L S M Þ M F F L S M Þ M F F L S M Þ M
1 2
fimmtudagur
3 4 5 6 7 8 9
fimmtudagur
10 11 12 13 14 15 16 17 18 19 20 21 22 23
fimmtudagur
24 25 26 27 28 29

Hljómsveitin

Oddur Björnsson

  • Starfsheiti: leiðari
  • Netfang: oddurb ( @ ) ismennt ( . ) is
Oddur Björnsson stundaði nám í básúnuleik hjá Birni R. Einarssyni við Tónlistarskólann í Reykjavík og framhaldsnám við New England Conservatory of Music í Boston. Oddur sótti sumarnámskeið í Tanglewood í Berkshirefjöllunum og Aspen Music Festival í Colorado. Oddur hefur verið fyrsti básúnuleikari SÍ frá 1985 auk þess að leika með Hljómsveit Íslensku óperunnar frá sama tíma. Oddur frumflutti með SÍ Jubilus II fyrir básúnu, blásárasveit, slaverk og segulband eftir Atla Heimi Sveinsson 1987 og einnig Sinfonia Consertante fyrir málmblásaratríó og hljómsveit eftir Pál P.Pálsson með Íslensku Hljómsveitinni. Oddur hefur tekið þátt í alþjóðamótum International Trombone Association í Eton, Englandi 1989; Rochester, New York 1991; Minneapolis/Saint Paul, Minnesota 1994; Feldkirch, Austurríki 1997; Utrecht, Hollandi 2000; og í Helsinki, Finnlandi 2003. Oddur hefur kennt við Tónlistarskólann í Reykjavík frá árinu 1985 og við Skólahljómsveitir Reykjavíkurborgar frá árinu 1989.
 


Bakhjarlar

Borgun VÍS Gamma


Þetta vefsvæði byggir á Eplica