Febrúar 2012

febrúar 2012

(Sleppa dagatali)
M F F L S M Þ M F F L S M Þ M F F L S M Þ M F F L S M Þ M
1 2
fimmtudagur
3 4 5 6 7 8 9
fimmtudagur
10 11 12 13 14 15 16 17 18 19 20 21 22 23
fimmtudagur
24 25 26 27 28 29

Hljómsveitin

staff009

Anna Guðný Guðmundsdóttir

  • Starfsheiti: leiðari
  • Netfang: agg ( @ ) simnet ( . ) is
ANNA GUÐNÝ GUÐMUNDSDÓTTIR er fædd í Reykjavík. Hún brautskráðist frá Tónlistarskólanum í Reykjavík árið 1979 og stundaði Post Graduate-nám við Guildhall School of Music and Drama í London með sérstaka áherslu á kammertónlist og meðleik með söng. Hún hefur starfað á Íslandi í aldarfjórðung og komið fram sem einleikari meðal annars með Sinfóníuhljómsveit Íslands. Anna Guðný hefur verið píanóleikari Kammersveitar Reykjavíkur um langt árabil; ferðast víða með henni og leikið inn á geisladiska, meðal annars píanókonserta eftir Leif Þórarinsson, Atla Heimi Sveinsson og Þorkel Sigurbjörnsson. Samstarf hennar og Sigrúnar Hjálmtýsdóttur, sópransöngkonu hefur staðið síðan á námsárunum í London. Sumarið 2004 starfaði Anna sem píanóleikari við tónlistarakademíuna í Sion í Sviss. Hún hefur komið fram á Listahátíð í Reykjavík og leikur reglulega innan raðar TÍBRÁR-tónleikanna í Salnum í Kópavogi. Anna var bæjarlistamaður Mosfellsbæjar 2002. Hún var tilnefnd til Íslensku tónlistarverðlaunanna 2004 sem flytjandi ársins. Hún kenndi við tónlistardeild Listaháskóla Íslands frá stofnun hennar 2001 til 2005, en það haust var hún ráðin píanóleikari við Sinfóníuhljómsveit Íslands.
 


Bakhjarlar

Borgun VÍS Gamma


Þetta vefsvæði byggir á Eplica