Maí 2012

maí 2012

(Sleppa dagatali)
Þ M F F L S M Þ M F F L S M Þ M F F L S M Þ M F F L S M Þ M F
1 2 3
fimmtudagur
4 5 6 7 8 9 10 11 12 13 14 15 16 17 18 19 20 21 22 23 24 25
föstudagur
26 27 28 29 30 31

Hljómsveitin

Ari Þór Vilhjálmsson

  • Starfsheiti: staðgengill leiðara
  • Netfang: ariviolin ( @ ) gmail ( . ) com
Ari Þór Vilhjálmsson hefur starfað sem aðstoðarleiðari annarrar fiðlu Sinfóníuhljómsveitar Íslands frá árinu 2006. Hann tók fyrst upp fiðluna 5 ára gamall og lærði samkvæmt Suzuki aðferðinni en 15 ára hóf hann nám hjá Guðnýju Guðmundsdóttur við Tónlistarskólann í Reykjavík. Hann lauk einleikaraprófi frá skólanum árið 2001 og hélt til frekara náms í Bandaríkjunum þar sem helstu kennarar hans voru Almita og Roland Vamos, Rachel Barton Pine og Sigurbjörn Bernharðsson. Ari útskrifaðist með mastersgráðu frá Northwestern University í júní 2008. Hann hefur leikið fiðlukonserta eftir Saint-Saëns, Bach, Mozart, Hafliða Hallgrímsson og Shostakovich með SÍ. Á undanförnum árum hefur hann einnig komið fram sem einleikari með Sinfóníuhljómsveit Norðurlands og hljómsveit Northwestern University, leikið bæði kammer- og einleikstónleika á Listahátíð í Reykjavík og spilað árlega fyrir Kammermúsikklúbbinn. Ari hefur mikinn áhuga á kennslu og kennir um 15 fiðlunemendum við Tónlistarskólann í Reykjavík og Listaháskóla Íslands. Fiðlan sem hann leikur á var smíðuð af Giovanni Maggini snemma á 17. öld og er í láni frá Sinfóníuhljómsveit Íslands.
 


Bakhjarlar

Borgun VÍS Gamma


Þetta vefsvæði byggir á Eplica