Viðburðir

júlí 2010

(Sleppa dagatali)
F F L S M Þ M F F L S M Þ M F F L S M Þ M F F L S M Þ M F F L S M Þ M
1 2 3 4 5 6 7 8 9 10 11 12 13 14 15 16 17 18 19 20 21 22 23 24 25 26 27 28 29 30 31        

haflidi_listi

Staðartónskáld

Sérsamin verk í bland við eldri perlur

Hafliði Hallgrímsson gegnir stöðu staðartónskálds SÍ fram til ársins 2011. Hafliði er eitt virtasta tónskáld Íslendinga bæði heima og erlendis og hefur hlotið margvíslegar viðurkenningar fyrir verk sín, meðal annars Tónskáldaverðlaun Norðurlandaráðs fyrir fiðlukonsertinn Poemi árið 1986. Hafliði hóf tónlistarnám sitt á Akureyri en stundaði síðar nám í Reykjavík, Róm og Lundúnum. Hann var aðalsellisti Skosku kammersveitarinnar um árabil en ákvað árið 1983 að helga sig algjörlega tónsmíðum.

Hafliði mun semja ný verk sérstaklega fyrir Sinfóníuhljómsveit Íslands á næstu árum og á sextugsafmælinu í mars 2010 verður eitt þeirra frumflutt á Íslandi, Norðurdjúp sem var pantað sameiginlega af SÍ og Fílharmóníuhljómsveitinni í Tampere.

Þá verða eldri verk hans tekin til flutnings á næstu árum, m.a. sellókonsert hans og sinfónía nr. 1.



Aðalstyrktaraðilar

Borgun Morgunblaðið

Þetta vefsvæði byggir á Eplica