Viðburðir

júlí 2010

(Sleppa dagatali)
F F L S M Þ M F F L S M Þ M F F L S M Þ M F F L S M Þ M F F L S M Þ M
1 2 3 4 5 6 7 8 9 10 11 12 13 14 15 16 17 18 19 20 21 22 23 24 25 26 27 28 29 30 31        

band308b

Tónskáldastofa

Spennandi vettvangur fyrir íslensk tónskáld

Sinfóníuhljómsveit Íslands vill gjarnan stuðla að því með ýmsu móti að íslensk tónskáld fái þá þjálfun og leiðsögn sem nauðsynleg er til að skrifa fyrir hljómsveit. Oft reynist tónskáldum erfitt að öðlast reynslu á þessu sviði þar sem tækifærin eru fá og samkeppnin mikil.

Síðastliðið vor efndi SÍ í fyrsta sinn til svokallaðrar Tónskáldastofu þar sem valin voru þrjú hljómsveitarverk: Flow eftir Önnu Þorvaldsdóttur, Þórdísarhyrna eftir Hafdísi Bjarnadóttur og Norður eftir Pál Ragnar Pálsson. Verkin voru í kjölfarið leikin á æfingu undir stjórn Rumons Gamba og verða hljóðrituð á vegum Ríkisútvarpsins nú í september.

Aftur verður efnt til Tónskáldastofu vorið 2010 og er skilafrestur til 1. febrúar 2010. Verkin skulu ekki vera lengri en 15 mínútur og samin fyrir hefðbundna stærð Sinfóníuhljómsveitar Íslands. Þau skulu merkt með dulnefni og skal umslag með nafni höfundar fylgja hverju innsendu verki.

Í dómnefnd Tónskáldastofunnar sitja Rumon Gamba, aðalstjórnandi SÍ, Árni Heimir Ingólfsson, tónlistarstjóri SÍ og
Bernharður Wilkinson hljómsveitarstjóri.

 



Aðalstyrktaraðilar

Borgun Morgunblaðið

Þetta vefsvæði byggir á Eplica